Húsnæðisstofnun ríkisins
Laugardaginn 05. maí 1990


     Halldór Blöndal (um þingsköp) :
    Herra forseti. Þó svo að við séum hér á síðasta degi og að reyna að ljúka þinghaldinu þá dugir ekki annað en að hæstv. félmrh. svari þessari spurningu: Er búið að loka fyrir umsóknir hjá Húsnæðisstofnun varðandi erfiðleikalán? Ef svo er ekki, hversu miklir eru þeir fjármunir sem Húsnæðisstofnun hefur til ráðstöfunar vegna erfiðleikalána það sem eftir lifir ársins og hvað liggja fyrir umsóknir varðandi háa fjárhæð? Ég held að nauðsynlegt sé að fá svar við þessu.