Geir H. Haarde:
    Herra forseti. Eins og fram kom í máli frsm. nefndarinnar er nál. um þetta þingmál afgreitt sameiginlega af öllum nefndarmönnum.
    Þó hef ég undirritað nál. með fyrirvara sem ég hyggst nú gera grein fyrir.
    Áður en ég kem að því vildi ég taka undir með formanni nefndarinnar að það er ánægjulegt að samstaða skuli hafa tekist um afgreiðslu þessa máls. Og það er sérstaklega eftirtektarvert í ljósi allra þeirra mörgu athugasemda og fyrirvara sem fram komu við 1. umr. málsins. Samkomulagið hefur hins vegar byggst á því að mjög verulega hefur verið komið til móts við þær athugasemdir sem m.a. ég og aðrir þingmenn Sjálfstfl. fluttu hér við 1. umr. Sömuleiðis við athugasemdir sem einstakir stjórnarþingmenn höfðu hér fram að færa við þá umræðu.
    Ég vil sérstaklega þakka formanni nefndarinnar fyrir vel unnið starf í þessu máli, eins og reyndar öðrum þingmálum sem vísað hefur verið til þessarar nefndar. En samstarf í félmn. hefur verið með afbrigðum gott á þessum vetri og er þar ekki síst að þakka sanngjarnri fundarstjórn og lipurð formannsins, sem á heiður og þakkir skildar.
    Ég vil nú koma, herra forseti, að þeim efnisatriðum sem minn fyrirvari varðar. Hann lýtur að ákvæði því í 6. gr. sem tengist hinni svokölluðu öfugu sönnunarbyrði. Við þetta atriði komu fram athugasemdir við 1. umr. Það er auðvitað alveg ljóst að ákvæðið eins og það var upphaflega orðað fær illa, ef á nokkurn hátt, staðist almenn réttarfarsákvæði í landinu. Ákvæðið var svohljóðandi, með leyfi forseta: ,,Ef einhver telur rétt á sér brotinn samkvæmt ákvæðum þessarar greinar skal atvinnurekandi sýna fram á að aðrar ástæður en kynferði hafi legið til grundvallar ákvörðun hans.``
    Mín tillaga í nefndinni var sú að þetta ákvæði félli brott. Og það er raunar svo að Lögmannafélag Íslands hefur í álitsgerð til félagsins einnig gert þá
tillögu. Í álitsgerð Lögmannafélagsins segir svo, með leyfi forseta:
    ,,Í 6. gr. frv. eru veigamiklar breytingar á sönnunarbyrði frá almennum réttarfarsreglum. Atvinnurekanda er gert að sýna fram á að aðrar ástæður en kynferði hafi legið til grundvallar ráðningar starfsmanns sem deilt er um. Í greinargerð með frv. er því haldið fram að reynslan sýni að lögin þjóni ekki tilgangi sínum nema sönnunarbyrði sé snúið við.
    Það er ljóst að ef þessi regla verður lögfest þá mun hún valda miklu umróti og vafalaust harðvítugum deilum. Mjög veigamiklar ástæður þurfa að vera fyrir hendi til þess að vikið sé frá almennum sönnunarreglum. Dómstólar gera það ekki nema ríkar ástæður séu til þess og almennt má segja að ekki sé mikil tilhneiging til þess á þeim vettvangi. Það er sjálfsagt pólitísk spurning hvort ástand í jafnréttismálum sé þannig í samfélagi okkar að knýjandi þörf sé til breytinga á almennt viðurkenndum

sönnunarreglum. Öfug sönnunarbyrði gengur sem undantekningarregla í skaðabótarétti en alls ekki í refsirétti. Því er algert skilyrði, ef regla þessi verður lögfest, að fella út ákvæði 23. gr. frv. um fésektir.``
    Ég les ekki lengra úr þessari álitsgerð, en það er bent á í þessu áliti að ef áhersla er lögð á að hafa þetta ákvæði inni þá sé nauðsynlegt að þetta gildi eingöngu fyrir kærunefnd. Væri þá eðlilegast að það ákvæði kæmi inn í kaflann um kærunefnd sem gert er ráð fyrir í frv. og er nýmæli. Nefndin komst hins vegar að því samkomulagi að breyta greininni á þann hátt sem formaður gerði hér grein fyrir og fella jafnframt niður 23. gr. frv. um fésektir, svo sem Lögmannafélagið bendir á.
    Á þeim grundvelli gat ég sætt mig við að þetta ákvæði fengi að vera í frv. svo breyttu, og taldi ekki ástæðu til að gera frekara mál úr þessu. Ég vil hins vegar benda á að til að mynda 1. málgr. 8. gr., um ráðningar í störf, þar sem í upphaflega frv. var gert ráð fyrir að ætíð skyldi það kynið sem væri í minni hluta í starfsgrein ganga fyrir til starfa, hefur verið fellt brott. Sömuleiðis hafa verið gerðar veigamiklar breytingar á 12. gr. sem ég gerði athugasemdir við við 1. umr. Það hefur verið komið til móts og horfið frá því fráleita ákvæði að hafa ótakmarkaðan fjölda aðila í Jafnréttisráði, eins og frv. gerði ráð fyrir, þar sem fjöldi aðila í Jafnréttisráði færi eftir fjölda þingflokka og hefði þá væntanlega fækkað um einn í gær. Ef Jafnréttisráð hefði verið skipað svo sem frv. gerði ráð fyrir þá hefði verið fækkað um einn í gær vegna þess að þingflokkum fækkaði hér um einn í gær.
    Að öðru leyti hefur verið komið verulega til móts við þau sjónarmið sem ég hef flutt í þessu máli. Því hef ég ekki talið ástæðu til annars en standa að þessu frv. eins og það er breytt og tel reyndar að allir áhugamenn um jafna stöðu og jafnan rétt hljóti að reyna að greiða fyrir því að mál sem þetta nái fram að ganga. Eins og ég gat um við 1. umr. málsins eru í þessu frv. nýmæli sem horfa til bóta, eins og kærunefnd jafnréttismála og sitthvað fleira.
    Að því er varðar brtt. nefndarinnar um jafnréttisþing sem halda skuli á a.m.k. þriggja ára fresti, þá hefði ég talið eðlilegast að slík þing yrðu haldin þegar þurfa þætti án þess að það væri bundið við þennan ákveðna
árafjölda en sé ekki ástæðu til að gera veður út af því.
    Að svo mæltu endurtek ég þakkir mínar til formanns og annarra nefndarmanna fyrir gott samstarf um þetta mál og leyfi mér að lýsa stuðningi við frv. eins og það er nú frágengið.