Skipan prestakalla
Laugardaginn 05. maí 1990


     Frsm. allshn. (Jón Kristjánsson):
    Herra forseti. Ég mæli fyrir áliti allshn. um frv. til laga um skipan prestakalla og prófastsdæma og starfsmenn þjóðkirkju Íslands.
    Nefndin hefur fjallað um málið og komu séra Gunnlaugur Garðarsson og séra Kristinn Ágúst Friðfinnsson frá Félagi brauðlausra presta á fund nefndarinnar. Umsagnir bárust um frv. frá Hraungerðis- og Villingaholtssóknum.
    Nefndin er samþykk flestum þeim breytingum sem gerðar voru á frv. í meðförum Ed. en leggur þó til breytingu á Stóranúps- og Selfossprestaköllum. Felst hún í því að Hraungerðis-, Villingaholts- og Laugardælasóknir verði sameinaðar í nýju prestakalli, Hraungerðisprestakalli.
    Þá flytur nefndin nokkrar nýjar brtt. Lagt er til að ráðningartími aðstoðarpresta lengist úr þremur árum í fjögur. Þá er lagt til að vígslubiskup í Skálholti njóti aðstoðar nágrannapresta eða farprests í stað þess að ráðinn sé aðstoðarprestur að Skálholti. Er þetta sama fyrirkomulag og er í Hólaprestakalli. Enn fremur leggur nefndin til að 48. gr. frv. falli brott en hún fjallar um réttarstöðu prests ef prestakall leggst niður. Nefndin telur að greinin geti brotið í bága við lög um veitingu prestakalla, nr. 44/1987, auk þess sem 14. gr. laga nr. 38/1954, um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, fjallar um réttarstöðu ríkisstarfsmanna ef staða er lögð niður. Að lokum er lagt til að gerð verði orðalagsbreyting á ákvæði til bráðabirgða og að lögin verði endurskoðuð eigi síðar en 1995 í stað 1998.
    Nefndin leggur til að frv. verði samþykkt með þessum breytingum sem gerð er tillaga um á sérstöku þskj. en einstakir nefndarmenn áskilja sér rétt til að flytja eða fylgja breytingartillögum.
    Friðjón Þórðarson var fjarverandi við afgreiðslu málsins en undir nál. rita Jón Kristjánsson, Ólafur G. Einarsson, Aðalheiður Bjarnfreðsdóttir, Ingi Björn Albertsson, Sighvatur Björgvinsson og Guðni Ágústsson.