Matthías Bjarnason:
Herra forseti. Ég leyfi mér að flytja hér brtt. við 1. gr. frv. þess efnis að fyrirsögn IX. töluliðar orðist svo: ,,Ísafjarðar- og Strandaprófastsdæmi`` og aftan við liðinn bætist prestaköll í Strandasýslu og jafnframt þriðju tillöguna um að þar af leiðandi falli fyrstu þrír töluliðir X. töluliðar niður og röð töluliða breytist í samræmi við það.
Þegar lög um skipan prestakalla og prófastsdæma voru samþykkt 1970 var gerð sú breyting að prestaköll í Strandasýslu voru færð undir Húnavatnsprófastsdæmi. Það vakti þá þegar nokkra óánægju í þeirri sýslu að slíta það þannig úr sambandi við það kjördæmi sem Strandasýsla er í. Hins vegar voru rök fyrir því að þetta var gert þau að samgöngur væru slæmar á milli Strandasýslu og annarra héraða á Vestfjörðum. Á þessu hefur nú orðið gerbreyting sem flestir ættu að þekkja með tilkomu nýs vegar yfir Steingrímsfjarðarheiði og um Lágadal sem haldið er opnum árið um kring nema í verstu aftökum. Hér hefur því orðið mikil breyting á og er það ósk manna þar vestra að þessi breyting verði gerð. Ég tel eðlilegt að Ísafjarðar- og Strandaprófastsdæmi verði sameinuð með þessum hætti.
Í bréfi sem sent var til hæstv. forsrh. og hæstv. kirkjumrh. frá prestum á Hólmavík og Prestsbakka er lögð áherslu á að þeir telji sig vera afskipta í Húnavatnsprófastsdæmi á flesta grein og segjast t.d. ekki vera í félagsskap prestafélags Hólastiftis, eins og prestar í Húnavatnssýslu eru, heldur eru þeir í prestafélagi Vestfjarða. Þá má geta þess Strandaprestar kusu vígslubiskup Skálholtsstiftis á sl. vori en eiga ekki atkvæðisrétt í Hólastifti þó að prófastsdæmi þeirra tilheyri því umdæmi. Þannig segja þeir að mætti lengi telja og leggja áherslu á það og benda, sem ég raunar gerði áðan, á stórbættar samgöngur milli Strandasýslu og Ísafjarðarsýslu sem gerir tiltölulega auðvelt að hafa samskipti þar á milli, svo að segja árið um kring.
Þetta eru rökin fyrir þessari brtt. og ég tel að þau séu sjálfsögð og augljós. Hins vegar geri ég mér grein fyrir því að þetta frv. er langt komið hér í þinginu en þó verður það af öðrum ástæðum, vegna brtt. nefndarinnar, að fara aftur til Ed.