Landbúnaðarráðherra (Steingrímur J. Sigfússon):
Herra forseti. Ég mæli hér fyrir frv. til laga um flokkun og mat á gærum og ull. Þetta er 546. mál á þskj. 1231 eins og það kom breytt eftir 2. umr. í Ed.
Þetta frv. felur í sér að sameinuð eru þau tvenn lög sem áður hafa gilt um mat annars vegar á ull og hins vegar á gærum. Þetta eru lög nr. 21 frá 1976, um flokkun og mat ullar, og lög nr. 22/1976, um flokkun og mat á gærum. Þau eru hér felld saman í einn lagabálk og ýmsum ákvæðum breytt til samræmis við það sem þeir, sem fyrst og fremst meðhöndla og vinna úr gærum og ull, hafa óskað eftir. Er þar byggt á tillögum sérstakrar nefndar sem starfað hefur að undanförnu og gerði tillögur um ráðstafanir til að bæta meðferð og gæði þessarar vöru. Þetta tengist reyndar talsverðu átaki sem í gangi er til að stórauka gæði á þessu sviði.
Hv. landbn. Ed. náði fullkominni samstöðu um þetta mál og afgreiddi frv. einróma frá sér með einni lítils háttar breytingu. Hefur hún sem sagt verið felld inn í efni frv. eins og það er nú prentað eftir 2. umr. í Ed.
Að lokinni þessari umræðu legg ég til að málinu verði vísað til 2. umr. og hv. landbn.