Flm. (Ingi Björn Albertsson):
Hæstv. forseti. Það er því miður svo að hér á landi er ekki nægilega vel hugsað til íþróttamanna okkar. Hið opinbera hefur vanrækt íþróttamenn þjóðarinnar allt of mikið í gegnum tíðina. Þegar hér var lagt fram frv. um launasjóð íslenskra skákmanna ákváðum við hv. þm. Hreggviður Jónsson að láta til skarar skríða með hugmynd sem lengi hafði blundað í okkur, að leggja fram svipaða tillögu fyrir íþróttamenn, þ.e. að stofnaður yrði afreksmannasjóður íþróttamanna. Við teljum að þetta sé afar brýnt og beri að gera. Við teljum að slíkur sjóður eigi fyrst og fremst og eingöngu að snúa að æsku landsins og ungu fólki en ekki --- ja, maður má kannski ekki segja útbrunnum íþróttamönnum eða mönnum sem eru að taka þátt í eldri flokka íþróttum þótt þeir teljist til afreksmanna á því sviði.
Slíkir sjóðir þekkjast víða erlendis. Þar þekkist einnig að menn eru vakandi fyrir því að þar sem efnilegir íþróttamenn sjást á ferð, í skólum eða hvar sem þeir finnast, þá er þeim kippt til hliðar og það er hlúð að þeim og þeim gefið tækifæri til þess að rækta sína íþrótt. Þetta er kannski meginhugsunin í þessu frv., að finna þessa ungu, efnilegu íþróttamenn og gefa þeim kost á að leggja rækt við íþrótt sína.
Í því frv. sm lagt var fram um launasjóð ísl. skákmanna var gert ráð fyrir að mig minnir sem samsvarar launum fimm háskólakennara. Í okkar frv. er hins vegar gert ráð fyrir launum 40 háskólakennara og skýrist það með því að innan Íþróttasambands Íslands eru 20 greinar. Það var reiknað með að tvö stöðugildi geti falist í hverri grein. Hins vegar er það ekkert skilyrði af okkar hálfu
að þannig sé með sjóðinn farið. Það má allt eins eyða 4--5 stöðugildum á einhverja eina íþróttagrein. Það er ekki meginatriðið.
Það þarf varla að fjölyrða um það að íþróttamenn eru stolt þjóðarinnar hvar sem er. Hvar sem þeir keppa og nánast hvernig sem þeir standa sig eru þeir landkynning og verðugir sendiherrar landsins. Það væri fróðlegt að fá það reiknað út pr. auglýsingadálk hvað slík landkynning hefur sparað okkur mikið í auglýsingafé. Við viljum, eins og fram hefur komið, gefa ungu, efnilegu fólki tækifæri á að rækta sína íþrótt og að því sé hlúð sem mest.
Ég veit ekki hvort ég á eins og málum er hagað núna að fara mjög grannt í frv. Við gerum okkur grein fyrir því að það nær ekkert lengra en fyrir því sé mælt hér. Okkur þótti engu að síður rétt að ýta því úr vör. Við munum hins vegar leggja það fram aftur á haustþingi og þá jafnvel enn betur unnið. Við teljum að það megi útfæra þetta enn betur en við höfum gert hér.
Því er hins vegar ekki að neita að það er töluverður áhugi fyrir þessu og sérstaklega innan sjálfrar íþróttahreyfingarinnar. Okkur hafa borist stuðningsyfirlýsingar. Það má t.d. nefna að framkvæmdastjórn ÍSÍ ályktaði um málið og sendi okkur svohljóðandi bréf, með leyfi forseta:
,,Fundur framkvæmdastjórnar ÍSÍ haldinn 5. apríl 1990 lýsir fyllsta stuðningi sínum við tilgang fram komins frv. Inga Björns Albertssonar og Hreggviðs Jónssonar um stofnun afreksmannasjóðs íslenskra íþróttamanna.
Jafnframt er lýst stuðningi við fram komið stjfrv. um stofnun Launasjóðs stórmeistara í skák.
Framkvæmdastjórn Íþróttasambands Íslands skorar því á hv. alþingismenn úr öllum þingflokkum að ljá báðum þessum málum liðveislu og sýna þannig vilja Alþingis í verki gagnvart þeim sem fram úr skara og varpa ljóma á nafn Íslands um víða veröld með frammistöðu sinni og afrekum. Leggur framkvæmdastjórn áherslu á að slíkir afreksmenn eru einna athyglisverðustu sendiherrar landsins á hverjum tíma á erlendri grund.``
Þannig var ályktun framkvæmdastjórnar ÍSÍ. Nú hafa menn vafalaust heyrt um að til er afreksmannasjóður sem kenndur er við ÍSÍ. Úr honum eru veittir árlegir styrkir og má geta þess að t.d. fyrir árið 1989 veitti sá sjóður styrki að upphæð 1 millj. 220 þús. kr. sem skiptist á sex aðila. Til að mynda á handknattleikslandslið 21 árs og yngri, knattspyrnulandslið 21 árs og yngri og síðan á einstaklinga, svo sem Einar Vilhjálmsson spjótkastara, Bjarna Friðriksson júdómeistara, Sigurð Einarsson spjótkastara og Véstein Hafsteinsson sem ég hygg að sé kringlukastari. Árið 1990 var einnig veitt úr þessum sjóði en þá aðeins til fjögurra aðila, Bjarna Friðrikssonar, Einars Vilhjálmssonar, Sigurðar Einarssonar og Vésteins Hafsteinssonar. Að heildarupphæð var sú styrkveiting 480 þús. kr. Þarna kemur náttúrlega í ljós að ekki er endilega um einstaklinga að ræða. Það er einnig hægt að veita styrki til hópa og hópíþrótta eins og gert hefur verið úr afreksmannasjóði ÍSÍ. Þannig voru handknattleikslandsliði og knattspyrnulandsliði veittir styrkir upp á 350 þús. kr. Það sjá hins vegar allir í hendi sér að þessir styrkir duga ákaflega skammt.
Hæstv. forseti. Þetta er málefni sem er mér mjög hugleikið og ég legg ríka áherslu á að slíkur sjóður verði stofnaður. Ég geri mér hins vegar fulla grein fyrir því eins og ég hef fyrr sagt að þingslit verða í dag og ekkert verður afgreitt hér meira af nýjum málum. Hins vegar vænti ég þess að þingmenn sem á
tyllidögum flytja fallegar ræður um íþróttir og æsku landsins en gleyma þeim jafnharðan og þeir eru komnir út úr því ræðupúlti þar sem þeir mæltu þau orð, að þeir muni standa við fínu orðin sín þegar þeir koma inn á haustþing og taka undir jafnsjálfsagða og eðlilega tillögu og hér er verið að ræða um og endurflutt verður á næsta þingi. Það kom reyndar fram hjá hv. þm. Hreggviði Jónssyni í eldhúsdagsumræðunni að fyrir aðeins rekstrarfé Þjóðleikhússins væri hægt að framfleyta 182 afreksmönnum í íþróttum.
Ég ætla ekki að fara nánar út í það, hæstv. forseti. Ég held að ég láti þetta nægja svona rétt til að fylgja þessu úr hlaði en ítreka það að ég reikna með
stuðningi þingmanna við þetta mál þegar það verður endurflutt að hausti.