Fjárgreiðslur úr ríkissjóði
Laugardaginn 05. maí 1990


     Frsm. fjh.- og viðskn. (Páll Pétursson):
    Herra forseti. Á þskj. 1222 er álit fjh.- og viðskn. um frv. til laga um fjárgreiðslur úr ríkissjóði sem prentað er á þskj. 399. Nefndin varð sammála um að leggja til að frv. yrði afgreitt með svofelldri rökstuddri dagskrá:
    ,,Nefndin hefur athugað frv. og telur að hér sé hreyft mjög þörfu máli. Í ljósi þess að fjmrh. hefur lagt fram hugmyndir sem ganga í sömu átt og frv. og þar sem forsrh. er að láta gera lögfræðilega úttekt á málinu telur nefndin rétt að unnið sé áfram að þessu máli og eðlilegt að kveðja til fleiri aðila. Í trausti þess að unnið verði að málinu í sumar samþykkir deildin að taka fyrir næsta mál á dagskrá.``
    Undir þetta rita Páll Pétursson, Þórhildur Þorleifsdóttir, Matthías Bjarnason, Friðrik Sophusson, Þórður Skúlason, Guðmundur G. Þórarinsson og Jón Sæmundur Sigurjónsson.