Frsm. iðnn. (Hjörleifur Guttormsson):
Virðulegur forseti. Ég mæli fyrir nál. iðnn. um frv. til laga um að leggja Þróunarsjóð lagmetisiðnaðarins niður og ráðstafa eignum hans til lagmetisframleiðenda og samtaka þeirra.
,,Nefndin hefur fjallað um frv. og leggur til að það verði samþykkt óbreytt.
Guðmundur G. Þórarinsson var fjarverandi við afgreiðslu málsins.``
Aðrir fulltrúar í iðnn. rita undir þetta álit.