Húsnæðisstofnun ríkisins
Laugardaginn 05. maí 1990


     Frsm. meiri hl. félmn. (Rannveig Guðmundsdóttir):
    Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir nál. meiri hl. félmn. um frv. til laga um breytingar á lögum nr. 86/1988, um Húsnæðisstofnun ríkisins, með síðari breytingum.
    ,,Nefndin hefur fjallað um frv. og fengið um það umsagnir frá Húsnæðisstofnun ríkisins, Seðlabanka Íslands, Alþýðusambandi Íslands, Félagi fasteignasala, G-samtökunum, stjórn Landssambands lífeyrissjóða, Vinnuveitendasambandi Íslands, Félagi eldri borgara, Neytendasamtökunum, Öryrkjabandalagi Íslands og Sambandi almennra lífeyrissjóða.
    Í ljósi fyrirliggjandi umsagna og umræðna innan nefndarinnar leggur meiri hl. nefndarinnar til að frv. verði afgreitt með svofelldri rökstuddri dagskrá:
    Þar sem:
    1. Það hefur legið ljóst fyrir að stefna ríkisstjórnarinnar er að hækkanir vaxta hjá Byggingarsjóði ríkisins taki ekki til þegar veittra lána og að sú stefna kom skýrt fram í nál. meiri hl. fjh.- og viðskn. Nd. um vaxtabætur 3. maí 1989 án þess að athugasemd væri við það gerð á Alþingi;
    2. Alþýðusamband Íslands mælir ekki með samþykkt frv.;
    3. húsnæðisstjórn bendir í umsögn á að tæknilegir vankantar séu á framkvæmd ákvæða frv.;
    4. vaxtahækkanir á þegar veittum lánum eru óréttlátar og koma í veg fyrir að íbúðakaupendur geti gert raunhæfar áætlanir um greiðslubyrði;
    5. kjarasamningar geta raskast við hækkun vaxta
    telur deildin engar forsendur fyrir því að afgreiða frv. og samþykkir að taka fyrir næsta mál á dagskrá.``
    Undir þetta nál. skrifa fjórir nefndarmenn, Rannveig Guðmundsdóttir, Guðrún Helgadóttir, Jón Kristjánsson og Anna Ólafsdóttir Björnsson.