Húsnæðisstofnun ríkisins
Laugardaginn 05. maí 1990


     Frsm. minni hl. félmn. (Geir H. Haarde):
    Herra forseti. Ég mæli hér fyrir áliti minni hl. félmn. sem skipa auk mín hv. þm. Alexander Stefánsson og Eggert Haukdal. Frv. sem hér er til umræðu var flutt hér fyrir jólin síðustu í kjölfar ákvörðunar ríkisstjórnarinnar um að breyta vöxtum á lánum Byggingarsjóðs ríkisins með þeim hætti að fullkomlega óviðunandi er. Til þess að freista þess að fá þeirri ákvörðun hnekkt var þetta frv. flutt en eins og menn eflaust muna tók ríkisstjórnin hinn 5. des. sl. þá ákvörðun að vextir af almennum lánum Byggingarsjóðs ríkisins skyldu hækka úr 3,5% í 4,5% af þeim lánum sem sjóðurinn veitti frá þeim degi. Hins vegar fólst jafnframt í þeirri ákvörðun að vextir af lánum sem veittir voru fyrir þennan dag skyldu vera óbreyttir þótt þau lán sem veitt voru fyrir og eftir 5. des. séu í sama lánaflokki og algerlega sambærileg að öllu öðru leyti.
    Í hópi flm. þessa frv. eru m.a. fyrrv. félmrh. sem bar ábyrgð á þeirri lagasetningu og því frv. sem flutt var vorið 1986 og hér er gerð tillaga um að breyta og sömuleiðis þáv. formaður félmn. sem hafði framsögu fyrir málinu hér í hv. deild á sínum tíma. Þessir menn eiga að vita hvað þeir voru að fjalla um og þeirra skilningur var sá að sú ákvörðun sem tekin var 5. des. af núv. ríkisstjórn væri fullkomlega óeðlileg og í andstöðu við anda þeirra laga sem þeir beittu sér fyrir á sínum tíma. Og ef þeir vita ekki hver hugmyndin var með lagasetningunni þá veit ég ekki hverjir vita það, alla vega ekki núv. hæstv. ráðamenn.
    Frv. gerir ráð fyrir því að framvegis verði óheimilt að taka ákvörðun sem þessa þar sem nákvæmlega eins lán beri mismunandi vexti bara eftir því á hvaða degi þau voru tekin. Það er rétt að vekja athygli á því að til að mynda í bankakerfinu er ekki um þetta að ræða og það er fyrirvari í skuldabréfum Byggingarsjóðs ríkisins um að vöxtum kunni að verða breytt. Þetta mál er því allt ein endaleysa frá upphafi til enda af hálfu ríkisstjórnarinnar.
    Hins vegar var varla við því að búast að ríkisstjórnin eða helstu fulltrúar hennar í félmn. stæðu að því að ómerkja þessa ákvörðun. Í staðinn er lagt til að næsta mál verði tekið fyrir og þetta mál tekið út af dagskrá með þeirri rökstuddu dagskrá sem svo er kölluð en er í raun og veru órökstudd dagskrá eins og kemur til að mynda fram í 5. lið, að kjarasamningar geti raskast við hækkun vaxta. Hvaða nýju tíðindi eru það? Hvaða sannleik og hvaða rökstuðning er verið að boða með slíkri fullyrðingu í þessu máli?
    Ég vil vekja athygli deildarmanna á því að meiri hluti þeirra umsagnaraðila sem þetta mál fengu til meðferðar hefur lýst stuðningi sínum við frv. en hluti umsagnaraðila, þar á meðal Seðlabanki Íslands, skilar áliti þar sem hvorki er tekin afstaða með eða móti og í umsögn húsnæðismálastjórnar er bent bæði á kosti og galla þessa máls, reyndar tekið fram að þetta kunni að verða erfitt í framkvæmd en því ekki lýst yfir að þetta sé óframkvæmanlegt. Og þá er verið að tala um eldri lánaflokka, einkum óverðtryggða flokka.

    Við höfum tekið þá afstöðu flm. að halda okkur við frv. óbreytt þrátt fyrir ábendingu húsnæðismálastjórnar og teljum að hún muni geta leyst úr þeim hugsanlegu ágöllum sem hún hefur fjallað um varðandi eldri lánaflokka. Málið snýr hins vegar fyrst og fremst að þeim lánum sem Byggingarsjóður ríkisins, ekki verkamanna, hefur veitt á tímabilinu frá 1. sept. 1986.
    Ég vek athygli á því sérstaklega, herra forseti, að í þeim umsögnum sem borist hafa, m.a. frá Félagi fasteignasala, frá Landssambandi lífeyrissjóða, Neytendasamtökunum, Vinnuveitendasambandi Íslands og Sambandi ísl. sveitarfélaga, er tekið undir rökstuðning flm. frv. Og ég vek sérstaklega athygli á því sem kemur fram hjá Félagi fasteignasala og fleirum og sem kom fram í okkar málflutningi við 1. umr. að með þessari ákvörðun er verið að raska verði nákvæmlega sams konar íbúða sem á hvíla lán úr Byggingarsjóði ríkisins úr nákvæmlega sama málaflokki. Það er verið að raska verðinu þarna á milli vegna þess að á lánum Byggingarsjóðsins kunna að hvíla mismunandi vextir eftir því hvort lánin voru tekin fyrir eða eftir 5. des. sl. Auðvitað er það fullkomlega óeðlileg íhlutun í fasteignamarkaðinn, eins og fram kemur í viðhorfum þessara aðila, að breyta vöxtum með þessum hætti og algerlega óviðunandi. Enda segir í áliti Félags fasteignasala svo, með leyfi forseta:
    ,,Ákvörðun ríkisstjórnarinnar frá 5. des. sl. var afar óheppileg að því leyti til að þar fór hún á undan með slæmu fordæmi sem slævir vitund fólks fyrir því hvernig halda skuli samninga. Sambærilegir lánssamningar eru skyndilega túlkaðir á mismunandi vegu. Hvers eiga þeir að gjalda sem leystu út lán sín eftir 5. des. sl.? Ákvörðunin hefur einnig slæm áhrif á fasteignamarkaðinn og urðu fasteignasalar áþreifanlega varir við það í störfum sínum. Ef ákvörðun þessi verður ekki endurskoðuð mun hún fyrirsjáanlega hafa alvarleg áhrif þegar frá líður. Kaupverð fasteigna er í sífellt vaxandi mæli að verða meira eða minna verðtryggt. Allir kaupsamningar um nýbyggingar eru að fullu verðtryggðir. Með tilkomu húsbréfanna greiðist kaupverðið mun hraðar en áður og allt stefnir í að innan fárra ára verði kaupverð allra eldri íbúða einnig að fullu verðtryggt. Þetta er afar eðlileg þróun því að engin rök eru fyrir
því að seljandi láni kaupanda stóran hluta kaupverðsins án verðtryggingar. Í öllum öðrum lánssamningum þurfa skuldarar að greiða verðbætur eða vexti sambærilega verðbólgu.
    Þessi þróun mun aftur leiða til þess að nauðsynlegt verður að núvirða öll þau lán sem á íbúðum hvíla og kaupendur taka yfir. Öll lán Byggingarsjóðs ríkisins eru bundin við tiltekna fasteign og getur seljandi (skuldari) því ekki flutt lánið með sér og komist þannig hjá núvirðingu þeirra. Flest lán Byggingarsjóðs veitt eftir gildistöku laga nr. 84/1986 eru frekar há og um leið hátt hlutfall af verði íbúða. Það gefur auga leið að seljandi sem skuldar lán með 4,5% vöxtum kemur lakar út úr núvirðingu þessari en seljandi sem

skuldar lán með 3,5% vöxtum sem þó er úr sama lánaflokki. Af þessu má ljóst vera að sú ákvörðun ríkisstjórnarinnar frá 5. des. sl., sem fyrr er lýst, mun verðfella eignir þeirra sem skulda lán með 4,5% vöxtum í samanburði við eignir þeirra sem fengu lán fyrir 5. des. og bera 3,5% vexti. Hér er því verið að mismuna lántakendum illilega.``
    Hér er tekið í einu og öllu undir rökstuðning flm. í grg. frv. og í framsögu með því og umræðum sem um þetta urðu við 1. umr. Það er verið með fullkomlega óeðlilegum og handahófskenndum hætti að mismuna lántakendum úr Byggingarsjóði ríkisins og lækka verð fasteigna þeirra sem fengu lán eftir 5. des. sl. Og hvers konar réttarfar er það þar sem þannig er staðið að málum, þar sem stjórnvöld ganga fram fyrir skjöldu með þessum hætti?
    Ég ætla ekki að setja hér á lengri ræðu, virðulegi forseti. Tíminn er naumur, en ég vek athygli á þessu og ég vænti þess að þeir hv. þm. í þessari deild sem eiga einhvern snefil af sannfæringu eftir, ekki síst eftir allt samningamakkið innan ríkisstjórnarflokkanna, láti hana ráða í þessu máli og greiði nú einu sinni skynseminni atkvæði og felli dagskrártillögu meiri hl. félmn.