Húsnæðisstofnun ríkisins
Laugardaginn 05. maí 1990


     Alexander Stefánsson:
    Herra forseti. Ég vil nú lýsa óánægju með nál. sem hér kemur fram frá meiri hl. félmn. Ég ætla aðeins að minna á að þegar þessi ákvörðun var tekin af hæstv. ríkisstjórn á sl. hausti, um að gera þessa breytingu, hafði áður verið þingað um það í þingflokkum stjórnarflokkanna. Í þingflokki Framsfl. var þetta mál tekið fyrir og einróma samþykkt að heimila ekki ríkisstjórninni fyrir hönd þingflokks Framsfl. að gera þessa breytingu á vöxtum sem var lögfest 5. des. sl. Þetta vildi ég láta koma fram enn, því að það sýnir að þingflokkurinn hafði nákvæmlega sömu skoðun og kemur fram í því frv. til laga á þskj. 412 sem hér er verið að taka til afgreiðslu og það fór ekkert á milli mála að afstaðan til málsins var afgerandi og er bókuð í fundargerð þingflokksins. Þingflokkurinn heimilaði ekki fyrir sitt leyti að þessi ákvörðun væri tekin, en hins vegar, eins og allir vita, þarf ríkisstjórnin ekki að bera slíkar ákvarðanir undir Alþingi.
    Ég þarf ekki að hafa lengra mál, herra forseti. Þessi ákvörðun skapar óréttlæti sem á ekki að viðhafa í þessum þýðingarmiklu málum eins og ákvörðun um vexti af hinum ýmsu lánaflokkum í húsnæðiskerfinu.