Húsnæðisstofnun ríkisins
Laugardaginn 05. maí 1990


     Geir H. Haarde (um atkvæðagreiðslu) :
    Herra forseti. Ég er ekkert undrandi á því þó að forseti og kannski aðrir ruglist eilítið í ríminu þegar verið er að greiða atkvæði um brtt. við frv. sem er svo fáránlega upp sett að það er ekki neinu líkt að gera við það breytingartillögur. Hér er um að ræða frv. þar sem öll efnisatriði eru í einni grein, þ.e. 3. gr. frv. En þessi brtt., nr. 3 á þskj. 1195, er við a-lið sem verði 51. gr. og sú brtt. er í tveimur liðum, nr. 1 og 2. B-liðurinn sem getið er um í nr. 2 er innan þessa a-liðar í frv. Þessi undarlega uppsetning verður auðvitað að skrifast á ábyrgð þeirra sem flutt hafa þetta mál, en það er óhjákvæmilegt að mínum dómi að það fari fram sérstök atkvæðagreiðsla um fyrri lið 3. brtt. og um síðari lið 3. brtt.