Geir H. Haarde:
Herra forseti. Þessi brtt. lýtur að því að í húsnæðisnefndum á vegum sveitarfélaga verði eingöngu menn kjörnir af stjórn sveitarfélagsins, af sveitarstjórninni, en ekki aðrir. Með frv. er gert ráð fyrir að húsnæðisnefndir fái mjög víðtækt vald og umboð, m.a. til fjárhagslegra ráðstafana sem er óeðlilegt að aðrir en þeir sem sveitarstjórnin hefur sjálf til þess kjörið fjalli um. Þessi tillaga er flutt til að þannig verði um hnútana búið og ég segi já.