Húsnæðisstofnun ríkisins
Laugardaginn 05. maí 1990


     Alexander Stefánsson:
    Herra forseti. Ég vil aðeins segja hér örfá orð að lokum um þetta mál. Ég harma það vissulega að þessi heildarendurskoðun á félagslega kerfi húsnæðismála sem vissulega er brýnt að fari fram skyldi vera með svo miklum vanköntum. Eins og hefur ljóslega komið fram við síðustu lotu málsins þá hefur félmn. hvað eftir annað orðið að gera leiðréttingar sem jafnvel koma beint frá stjórnarandstöðunni og eru svo augljósar að þeir sem hafa unnið að samningu frv. hefðu átt að sjá þetta fyrir. Þetta er nokkuð sem er ákaflega erfitt að sætta sig við, að heildarendurskoðun á heilum lagabálki skuli vera þannig unnin að hægt væri í næstum því annarri hverri grein að benda á vansmíð á þessari lagasetningu sem rekst á við hið raunverulega sem þarf að vera í þessum lögum. Og ég vil segja það alveg eins og er að það má ekki koma fyrir að á hverju einasta þingi sé verið að leggja fram heila lagabálka sem hafa mikla þýðingu sem eru með þessum annmörkum. Hins vegar er rétt að viðurkenna það að félmn. hefur orðið sammála um að taka á síðustu stundu nauðsynlegustu leiðréttingar þó það séu miklu fleiri atriði sem eiga eftir að verða árekstrar um þegar á að fara að framkvæma þessa lagabreytingu.