Skipan prestakalla
Laugardaginn 05. maí 1990


     Matthías Bjarnason:
    Herra forseti. Með tilliti til þeirrar yfirlýsingar sem hv. formaður allshn. hefur gefið og hæstv. dóms- og kirkjumrh. hefur tekið undir, þá tel ég ekki ástæðu til þess að sú tillaga sem ég flutti hér komi til atkvæða og tek hana því aftur í trausti þess að þessi mál verði athuguð og tillögur lagðar fyrir þing í haust.