Viðskiptaráðherra (Jón Sigurðsson):
Virðulegi forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. 2. þm. Austurl., formanni iðnn. Nd., fyrir vandaða og skjóta vinnu við skipulagningu starfa nefndarinnar undanfarna daga. Reyndar vil ég líka láta koma fram að iðnaðarnefndir beggja deilda hafa unnið mjög gott starf við meðferð þessa máls. Þær hafa aflað margvíslegra upplýsinga sem varpa nýju ljósi á þetta mál, skýra það betur, einkum það sem líta má á sem forsendur frv. fremur en málið sjálft. Af eðlilegum ástæðum hafa umræðurnar mikið snúist um álver og áhrif þess, stöðu þess í okkar þjóðarbúskap. Það er að vonum. Ég vil leyfa mér að benda á að ef að vonum verður, þá verður unnt að mæla fyrir heimildarlagafrv. vegna álvers að hausti. Þá mun gefast gott tækifæri til þess að ræða öll þau málsatvik sem ekki verða nú útrædd.
Það eru ýmsir hlutir í þessu máli sem ástæða væri til að flytja um langar ræður. Ég ætla þó aðeins að víkja að örfáum þáttum í málinu, þeim sem fram hafa komið í máli þeirra sem hér hafa talað á undan mér í þessari umræðu. En áður en ég sný mér að þessum einstöku atriðum vildi ég taka fram tvennt:
Í fyrsta lagi að varnaðarorð nefndarmanna í iðnaðarnefndum þingsins og þingmanna sem talað hafa í málinu um það að snúast skjótt og skynsamlega við hugsanlegri hættu á þenslu af völdum framkvæmda sem orkuveri og álveri fylgja, þau varnaðarorð falla sannarlega ekki á daufar hlustir. Það eru orð sem eru heyrð og skilin og munu móta framhald málsins. Sama máli gegnir --- og er ekki síður mikilvægt --- sem hér hefur komið fram í máli margra, að gæta þurfi ýtrustu varkárni þegar gerðir eru samningar um umhverfishlið þessa mikla máls. Það er eins með það og með þensluáhrifin, efnahagsáhrifin sem ég vék aðeins að. Þar er sannarlega þörf á því að menn hugi að hverjum þætti málsins, hverju atriði.
Ég sný mér þá að því sem komið hefur fram í máli einstakra nefndarmanna og einstakra ræðumanna og þá fyrst að því sem kom fram í máli hv. 2. þm. Austurl. Mér þykir miður að hv. 2. þm. Austurl. vænir mig enn um blekkingar og ósannindi. Það gerði hann í áliti sínu sem hér liggur fyrir skriflega og í ræðu sinni áðan. En ég vildi leyfa mér að benda hv. þm. á það að þegar hann vitnar í álit eða svör Þjóðhagsstofnunar við spurningum sem nefndin beindi til hennar, þá lætur hann hjá líða að nefna þau orð sem að minni hyggju eru nú mikilvægust í því máli sem hér er rætt og fram koma í fskj. IX með séráliti minni hl. sem hv. 2. þm. Austurl. gerði grein fyrir, en þar segir: ,,Vergur innlendur virðisauki af áltonni og þorsktonni er svipaður ...``
Þetta staðfestir nákvæmlega það sem ég hef sagt um þetta mál, staðfestir það
í einu og öllu. Ég hef aldrei haldið því fram að hreinar gjaldeyristekjur séu jafnmiklar af áltonni og þorsktonni. Það hefur lengi ljóst verið, og kemur reyndar fram í gögnum Þjóðhagsstofnunar, að hvert þorsktonn skilar í fyrstu umferð 2--3 sinnum meiri
gjaldeyri nettó í þjóðarbúið en áltonnið. Þetta hefur verið lengi ljóst. Hitt er annað mál að sá mælikvarði á hagsæld þjóða, þótt hann sé nú ekki einhlítur hitamælir á hagsæld manneskjunnar, sá mælikvarði sem algengastur er og notaður er í alþjóðlegum samanburði er verg landsframleiðsla. Það er nákvæmlega hún sem hér er verið að tala um.
Auðvitað verður svo stóru máli og margslungnu ekki lýst með einni tölu og það veit hv. þm. ofurvel. Ég vil þess vegna leyfa mér að halda því fram að hafi einhver gert sig sekan um blekkingar í þessu máli þá sé það nú því miður hv. 2. þm. Austurl. en ekki sá er hér stendur. Og mér þótti hinn nákvæmi vísindamaður fara nokkuð ógætilega með tölurnar þegar hann var allt í einu búinn að sanna það að efnið sem Þjóðhagsstofnun hafði lagt fram staðfesti fréttirnar í dagblaðinu DV sem hv. þm. gerði hér að umtalsefni öðru sinni og munaði þó ekki smáu milli þeirra talna sem þarna eru sýndar, þótt hugtakið sem við er miðað væri ,,hreinar gjaldeyristekjur``, sem þó var aldrei skýrt í þessum skrifum DV-blaðamannsins sem til var vitnað og enn síður í máli hv. 2. þm. Austurl.
Ég kem þá örfáum orðum að því sem sagt var hér um orkuverð. Eins og kom fram hjá hv. 1. þm. Norðurl. v. er það lögbundið að samningar um stórorkusölu skuli ekki valda hækkun á verði til almenningsveitna. Þess verður vandlega gætt og hefur reyndar komið rækilega fram. Hins vegar vil ég líka benda á að það er að sjálfsögðu ekki unnt að ræða hér í heyranda hljóði eða opinberlega, þar sem vitað er að málin færu fyrir margra augu og eyru, um einstakar tölur í orkuverðssamningum við gagnaðila okkar þegar málið er á því stigi sem það er nú. ( SV: Við vitum það nú.) Hv. 6. þm. Norðurl. e. upplýsir að hann viti það og það er vel.
Þá kem ég að því sem hér var talað um umhverfismál. Ekki síst vildi ég víkja að því sem kom fram hjá hv. 12. þm. Reykv. og einkum þar sem látið er að því liggja að eftirspurn eftir áli í heiminum, sem er á vissan hátt forsenda fyrir þessum framkvæmdum, stafi helst frá hergagnaframleiðslu. Því er slegið fram að nú sé svo friðvænlegt í veröldinni að úr vopnabúnaði muni draga og þess vegna dragist eftirspurn eftir áli saman. Ég vil leyfa mér að halda því fram að
þvert á móti þessari skoðun þá eru hinar vænlegu friðarhorfur til þess fallnar að auka mönnum bjartsýni um eftirspurn eftir þessu efni, einfaldlega af því að hjá þeim þjóðum, t.d. í Austur-Evrópu sem hafa lagt mjög mikið af sínum þjóðartekjum í hergagnaframleiðslu, mun við breytingar í hagskipulagi og stjórnskipulagi losna um fé og framleiðslugetu sem mun í vaxandi mæli beinast að einkaneysluþörfum, uppbyggingu nútímaneysluþjóðfélags í þessum ríkjum. Með því að lesa tölfræðina um það hvað þjóðir nota á hvert höfuð af áli má fljótt sjá að komist Austur-Evrópuríkin í tölu Vestur-Evrópuríkja hvað þetta snertir verður stóraukning á eftirspurn eftir áli. Virðulegur hv. 12. þm. Reykv. hefur því gjörsamlega misskilið þróunarhorfurnar hvað þetta varðar.
Þá kem ég að því sem er nú eiginlega alvarlegra og það er að hv. 12. þm. Reykv. lætur að því liggja, gefur í skyn að tengsl séu á milli alvarlegs sjúkdóms, Alzheimer-sjúkdómsins, og álnotkunar í umbúðum og búsáhöldum. Engar slíkar upplýsingar liggja fyrir. Hvergi er til á blöðum umræða sem staðfestir þetta í fagtímaritum eða fræðiritum sem um þetta mál fjalla. (Gripið fram í.) Það er vægast sagt vafasamur málflutningur að bera þetta hér á borð sem röksemdir í þessu máli. Að sjálfsögðu verður og er vandlega með því fylgst hvað þarna er á ferðum en að leyfa sér að halda því fram að svona sé ástatt er óheiðarlegur málflutningur og ekki sæmandi á Alþingi Íslendinga. Að vekja upp ótta fólks um slíka hluti er mikið ábyrgðarmál. ( SV: Ég trúi því ekki að ...)
Síðan mun ég koma að því, virðulegur 6. þm. Norðurl. e., að það hefur sennilega aldrei við undirbúning stórframkvæmda af þessu tagi verið jafnmikið lagt í það að umhverfishlið málsins væri skipulega, vandlega og nákvæmlega undirbúin. Ekkert verður heldur til sparað að það verði gert jafn vel og kostur er. Ég verð að segja það að mig stórfurðar að hv. 6. þm. Norðurl. e. skuli ekki skilja hvers vegna umræður hófust að þessu sinni um það að álver yrði hugsanlega staðsett við Eyjafjörð, hvers vegna Eyjafjörður er meðal þeirra svæða sem eru í staðarvalsathugun og umræðu um þessar mundir. Hann virðist þá ekki hlusta grannt eftir röddum fólksins í byggðunum við Eyjafjörð.
Upphaf þeirrar athugunar sem nú fer fram er kannski fyrst og fremst það að samtök byggðanna við Eyjafjörð, öll sveitarfélögin við fjörðinn, komu til fundar við iðnrn. til þess að fara sérstaklega fram á að slík athugun yrði gerð. Þetta var á liðnu ári, (Gripið fram í.) áður en málið fór af stað. --- Ég er ekki að biðja hv. þm. um umræður en hann hlýtur að þurfa að gá að því sem sagt er í þessu máli.
Ég ætla ekki, virðulegi forseti, að hafa hér fleiri orð. Ég vil ljúka máli mínu með því að segja að hér er á ferðinni mjög mikilvægt mál, mikilvæg forsenda framfara í okkar landi. En að sjálfsögðu eru heimildirnar sem frv. veitir, ef að lögum verður, eingöngu til þess að nota þær í ljósi framvindu samninga um byggingu nýs álvers því að það er aldrei ætlunin að stofna hér til kostnaðar við virkjunarframkvæmdir sem ekki standa undir sér. Þar eru vítin til að varast þau. Það er ekkert sérkennilegt við orðalag frv. um þetta. Þetta er góð og gild íslenska, að heimildirnar verða nýttar í ljósi framvindu saminga um nýtt álver. Þetta veit ég að hv. 2. þm. Austurl., formaður iðnn., skilur mætavel ef hann vill skilja.