Raforkuver
Laugardaginn 05. maí 1990


     Frsm. 1. minni hl. iðnn. (Hjörleifur Guttormsson):
    Virðulegi forseti. Ég hafði ekki ætlað mér að ræða þetta mál neitt frekar hér og nú, en orð hæstv. iðnrh. áðan, þegar hann var að bregðast við ábendingum frá hv. 12. þm. Reykv., urðu þess valdandi að ég bað aftur um orðið. Ég tel ekki þörf á því að vera að strá frekara salti í sárin hjá hæstv. iðnrh. og hæstv. utanrrh., formanni Alþfl., vegna þeirra blekkinga sem þeir, sem ábyrgðarmenn þess flokks, hafa staðið fyrir í sambandi við þann hagnað sem íslenskt þjóðarbú hefði af álframleiðslu og vera að leggja það til jafns við þorskafla pr. tonn. Þær blekkingar liggja nú fyrir afhjúpaðar. Ég vænti þess að hæstv. ráðherrar mæli ekki oftar úr þessum ræðustól orð í þá átt.
    Hvað var það sem hæstv. iðnrh. var að segja í flokksmálgagni sínu? Var hann eitthvað að tala um verga landsframleiðslu? Var hann með fræðilegar útlistanir? Nei, hann var að tala til þjóðarinnar, svipað og hæstv. utanrrh. hér í eldhúsdagsumræðunum og segja það og endurtaka ósannindin um það að ein þyngdareining af áli jafngilti jafnmiklum þunga af þorski fyrir íslenskt þjóðarbú. Þetta er það sem liggur hér fyrir í máli hæstv. iðnrh. í þremur útgáfum úr Alþýðublaðinu á liðnum vetri. Og landslýður hefur vissulega og eðlilega skilið ráðherrana þannig, eðlilega eins og þeir hafa hagað máli sínu. Nú eru þeir að reyna að hörfa í annað vígi og sveipa mál þetta einhverjum fræðilegum útlistunum. Verði þeim að góðu. En þeir standa hér uppi sem blekkingarmeistarar í þessu efni. Ég er alveg hissa á hæstv. utanrrh. að fara að éta þetta upp eftir hæstv. iðnrh. hér fyrir alþjóð fyrir tveimur kvöldum síðan, eftir að málið hefur verið tekið hér upp og hefur komið til almennrar umræðu og ósannindin í þessu efni blasa við hverjum manni.
    En það voru viðbrögðin hjá hæstv. iðnrh. og hrokinn sem kom fram í hans máli þegar hann var að beina orðum sínum til talsmanns 2. minni hl. iðnn. sem hafði leyft sér að nefna það að uppi væru grunsemdir um það og umræða að notkun á
áli gæti tengst ákveðnum sjúkdómi og þeir sem framleiddu ál hefðu áhyggjur af því vegna eftirspurnar. Þetta leyfði hæstv. iðnrh. sér að brennimerkja sem gróf ósannindi, (Gripið fram í.) óheiðarlegan málflutning. Ef vitneskjan í málum hjá hæstv. ráðherra og þekkingin að baki mála er byggð á þeim þunna ís sem endurspeglast í þessum orðum, þá erum við verr stödd varðandi þetta stóra mál sem hér er rætt en ég hefði haldið.
    Ég get greint hæstv. ráðherra frá því að ég fékk fyrst vitneskju um þessi efni, varð var við umræðu um það, það er liðið bráðum eitt og hálft ár síðan, í norska umhverfisráðuneytinu. Yfirmaður ákveðinnar deildar þar greindi frá því, þar sem ég var að fara yfir málefni ráðuneytisins og hvernig þar væri staðið að verkum, greindi frá því í óspurðum fréttum að norska ríkisstjórnin, stjórn Gro Harlem Brundtland, hefði séð ástæðu til þess að ætla fjármagn upp á 1 millj. nkr.

sérstaklega til að rannsaka hugsanlegt samhengi milli notkunar á áli í matvælaiðnaði og þessa tilgreinda sjúkdóms.
    Að ætla að eyða slíkum efnum með hrokagikkshætti og fullyrðingum þar sem ummæli gáfu ekkert tilefni til þess er ekki trúverðugur málflutningur. Við eigum að reyna að nálgast þessi stóru mál hlutlægt og ekki að draga fjöður yfir vísbendingar, áhyggjur manna, áhættu sem tengist þessum málum. Við eigum að reyna að greina kjarnann frá hisminu og leitast við að lýsa í gegn þar sem hula er til þess að komast að hinu sanna. Það er ekki nema gott að okkur greini á, en við verðum að gæta þess að vegast á með þeim hætti að menn hafi ekki fyrir fram þau orð uppi sem hér féllu af þessu tilefni sem varð til þess að ég bað hér um orðið.