80. mál úr nefnd í efri deild
Laugardaginn 05. maí 1990


     Forseti (Árni Gunnarsson):
    Hv. 2. þm. Vestf. hefur beðið um orðið um þingsköp en forseti vill taka fram og gera grein fyrir því að hann mun gera um stundarfjórðungs hlé á þessum fundi nú á eftir. Er þá óskað eftir því að þingflokkar komi saman og ræði við sína formenn um framgang mála, það sem eftir lifir af þessum degi til þess að niðurstaða fáist í það hvenær megi ljúka hér þinghaldi.