Ólafur Þ. Þórðarson:
Herra forseti. Ég þakka forseta fyrir afskipti hans af þessu máli. Ég minni á það að þegar mál eru samþykkt til Ed. er það gjarnan orðað á þann veg að þau séu send forseta Ed. til fyrirgreiðslu. Ég hef litið svo á að þau væru ekki send þangað til söltunar heldur til vinnu.
Mér þykir vænt um að heyra að málið hefur verið tekið úr nefnd. Að vísu mun það trúlega fara eftir trausti manna á ríkisstjórninni hverjir vísa því til stjórnarinnar, því til ófarnaðar, og hverjir vísa því til ríkisstjórnarinnar til velfarnaðar. --- [Fundarhlé.]