Vegtenging um utanverðan Hvalfjörð
Laugardaginn 05. maí 1990


     Frsm. samgn. (Hjörleifur Guttormsson):
    Virðulegur forseti. Samgn. hefur fjallað um frv. til laga um vegtengingu um utanverðan Hvalfjörð og liggur álit nefndarinnar fyrir á þskj. 1293.
    Nefndin leggur til að frv. verði samþykkt óbreytt. Friðjón Þórðarson og Ólafur Þ. Þórðarson voru fjarverandi við afgreiðslu málsins. Aðrir nefndarmenn standa að álitinu.