Hreggviður Jónsson:
Hæstv. forseti. Það er grundvallarregla í íslensku réttarfari að ekki eigi að leyfa veðsetningu á sköttum og tekjum fram í tímann. Það er í rauninni hneyksli að samþykkja slíkt hér á Alþingi Íslendinga sem hefur þau áhrif að stjórnir sveitarfélaga geta með þessum hætti veðsett tekjur sveitarfélagsins, jafnvel mörg ár fram í tímann. Með þessu geta þau bundið íbúa og komandi sveitarstjórnir á skuldaklafa sem er til kominn vegna lélegrar fjármálastjórnar fyrri sveitarstjórna. Það er ósvinna að setja slík lög því að ef stjórn Lánasjóðs sveitarfélaga treystir sér ekki til að lána sveitarfélagi án veðs í óinnheimtum sköttum og tekjum er sveitarfélagið gjaldþrota.