Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins
Laugardaginn 05. maí 1990


     Frsm. fjh.- og viðskn. (Páll Pétursson):
    Herra forseti. Í frv. til laga um Lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins á þskj. 940 er kveðið nánar á um hverjir skuli hafa aðild að Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins. Í nál. sem fyrir liggur á þskj. 1305 segir svo:
    ,,Nefndin hefur fjallað um frv. og leggur til að það verði samþykkt.
    Nefndin telur rétt að fram komi að hún álítur einsýnt að skákmeistarar, er launa njóta samkvæmt nýsettum lögum um launasjóð stórmeistara í skák, eigi réttindi hjá Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins eins og tekið er fram í þeim lögum. Nefndin telur því ekki ástæðu til að bæta þeim inn í upptalningu í 1. gr. frv.``
    Undir þetta rita auk mín Þórhildur Þorleifsdóttir, Friðrik Sophusson, Matthías Bjarnason, Þórður Skúlason, Jón Sæmundur Sigurjónsson með fyrirvara og Guðmundur G. Þórarinsson.