Frsm. allshn. (Jón Kristjánsson):
Herra forseti. Ég mæli fyrir áliti allshn. um frv. til laga um breytingu á umferðarlögum, nr. 50/1987, með síðari breytingum.
Nefndin hefur fjallað um frv. og mælir með að það verði samþykkt með einni breytingu sem gerð er tillaga um á sérstöku þingskjali. Er það gert til að taka af allan vafa um að ákvæðið nái ekki til farþega í aftursæti leigubifreiða.
Friðjón Þórðarson var fjarverandi við afgreiðslu málsins en undir nál. rita Jón Kristjánsson, Ólafur G. Einarsson, Guðni Ágústsson, Aðalheiður Bjarnfreðsdóttir, Sighvatur Björgvinsson og Ingi Björn Albertsson.