Starfslok neðri deildar
Laugardaginn 05. maí 1990


     Málmfríður Sigurðardóttir:
    Virðulegi forseti. Fyrir hönd okkar þingmanna vil ég þakka forseta góðar óskir okkur til handa. Ég vil enn fremur þakka forseta fyrir hönd okkar þingmanna hv. Nd. góða, réttláta og röggsama fundarstjórn og ánægjulegt samstarf.
    Skrifstofustjóra og öllu starfsfólki Alþingis þökkum við einnig fyrir vel unnin störf. Starfsfólk allt hefur lagt á sig ómælda vinnu og vökunætur og sinnt störfum sínum af kostgæfni og tillitssemi við þingmenn oft við erfiðar aðstæður.
    Við færum forseta og fjölskyldu hans, starfsfólki og fjölskyldum þess óskir um gott og gleðilegt sumar. Megum við öll hittast heil að hausti. Ég vil biðja hv. þm. að taka undir þessar óskir með því að rísa úr sætum. --- [Deildarmenn risu úr sætum.]