Ólafur Þ. Þórðarson:
    Herra forseti. Mér er ekki að öllu leyti ljóst hvað það er sem verður niðurstaðan ef þetta verður samþykkt eða fellt því að hér eru greidd um það atkvæði hvort leggja skuli til ákveðna hluti. Og þegar samþykkt hefur verið að leggja þá til hlýtur á það að reyna hvort eftir þeirri tillögu verður farið. Þess vegna greiði ég ekki atkvæði.