Landbúnaðarráðherra (Steingrímur J. Sigfússon):
Hæstv. forseti. Ég veit ekki til að það þurfi að vera neinn misskilningur um það sem hér eru greidd atkvæði um. Ég er sammála tillögu utanrmn. og reyndar þakklátur fyrir hana og í raun þakklátur flm. hinnar upphaflegu þáltill. fyrir það eitt að gefa mér færi á því að taka þátt í því að fella þessa tillögu hér á Alþingi. Ég segi því já og styð tillögu utanrmn.