Forseti (Guðrún Helgadóttir):
    Vegna þess vafa sem hér er upp kominn og áður en frekari umræður hefjast um þingsköp óskar forseti nú eftir þriggja mínútna hléi til að bera sig saman við aðra forseta og embættismenn þingsins. --- [Fundarhlé.]
    Forseti hefur borið þetta mál undir embættismenn þingsins og mun það rétt vera að eðlilegra hefði verið að bera tillöguna sjálfa upp til atkvæða og mun forseti því gera að engu hina fyrri atkvæðagreiðslu og bera tillöguna upp eins og hún var upphaflega lögð fram. Biðst forseti afsökunar á þessu þar sem forseti áttaði sig ekki á að það var ekki einróma tillaga um að tillagan yrði felld heldur er þetta meirihlutaálit.