Fjáraukalög 1990
Laugardaginn 05. maí 1990


     Friðrik Sophusson (um atkvæðagreiðslu) :
    Hæstv. forseti. Í umræðum sl. nótt skoraði hæstv. iðnrh. á mig að kalla brtt. 1249 aftur þar sem hætt væri við að hæstv. ríkisstjórn gæti ekki endurgreitt uppsafnaðan söluskatt ef tillagan félli. Ég hlýt að sjálfsögðu að harma að hæstv. ríkisstjórn skuli ekki á þessari stundu vera tilbúin til að staðfesta annars vegar fyrri fyrirheit sín um niðurfellingu jöfnunargjalds á miðju þessu ári og hins vegar rétt iðnaðarfyrirtækja til að fá endurgreiddan uppsafnaðan söluskatt vegna framleiðslu sl. árs með sama hætti og gert hefur verið frá því að lög um iðnaðargjald voru sett. Ég tel að áskorun hæstv. iðnrh. jafngildi yfirlýsingu um vilja hans til að fá efnisatriði tillögunnar afgreidd í hæstv. ríkisstjórn. Í trausti þess að honum verði ágengt kalla ég tillöguna aftur.