Fjáraukalög 1990
Laugardaginn 05. maí 1990


     Viðskiptaráðherra (Jón Sigurðsson) (um atkvæðagreiðslu) :
    Virðulegi forseti. Nú þegar virðisaukaskattur hefur leyst söluskattinn af hólmi fer fram á vegum ríkisstjórnarinnar rækileg athugun á því hvernig best verði staðið að sanngjörnu lokauppgjöri á því kerfi jöfnunargjalds á innfluttar iðnaðarvörur og endurgreiðslu uppsafnaðs söluskatts til íslensks iðnaðar sem hefur gilt í meira en áratug. Þar sem niðurstaða liggur ekki fyrir úr þessari athugun er ekki tímabært að taka afstöðu til málsins nú. Það er mikilvægt að afgreiðsla þessa sérstaka fjáraukalagafrv. vegna kjarasamninga 1990 sem hér eru greidd um atkvæði verði hvorki til að tefja né torvelda lausn þessa máls. Á þeim málefnum sem hreyft er með brtt. á þskj. 1249 verður tekið í almennum fjáraukalögum fyrir árið 1990 síðar á þessu ári. Ég fagna því ákvörðun hv. 1. þm. Reykv. að kalla brtt. aftur.