Þinglausnir
Laugardaginn 05. maí 1990


     Forseti (Guðrún Helgadóttir):
    Ég mun fara hér yfir stutt yfirlit yfir störf 112. löggjafarþings. Þingið stóð yfir frá 10. okt. til 22. des. 1989 og frá 22. jan. til 5. maí 1990, alls 178 daga. Þingfundir hafa verið haldnir eins og hér segir:
    Í Nd 92
    Í Ed 104
    Í Sþ 89
        Alls 285 fundir.

     Þingmál og úrslit þeirra.
     Lagafrumvörp voru samtals 205. Stjórnarfrumvörp voru 113 og þingmannafrumvörp voru 92. Lögð voru fyrir Nd. 120 frumvörp, fyrir Ed. 80 og fyrir Sþ. 5. 75 stjórnarfrumvörp voru afgreidd sem lög en óútrædd stjórnarfrumvörp eru 38. 15 þingmannafrumvörp urðu að lögum, 12 var vísað til ríkisstjórnarinnar en 65 þingmannafrumvörp eru óútrædd. Af 205 frumvörpum urðu alls 90 að lögum.
    Þingsályktunartillögur komu fram sem stjórnartillögur 13, þingmannatillögur 112 eða alls 125. 31 var samþykkt sem ályktanir frá Alþingi, 12 var vísað til ríkisstjórnarinnar, 80 óútræddar og 2 felldar.
    Beiðnir um skýrslu ráðherra voru 5 og var þeim öllum svarað með skýrslum. Aðrar skýrslur lagðar fram í Sþ. voru 17.
    Þá voru bornar fram í Sþ. 230 fyrirspurnir. Allar voru fyrirspurnir þessar afgreiddar nema 10. Munnlegar fyrirspurnir sem bornar voru fram voru 158 og 151 var svarað. Skriflegar fyrirspurnir voru 72 og 69 var svarað.
    Alls voru til meðferðar í þinginu 582 mál. Þar af voru 372 afgeidd og tala prentaðra þingskjala var 1330. Er víst lítill vafi á því að aldrei hefur verið jafnmikill málafjöldi á einu þingi.
    Síðar í þessum mánuði, 20. maí, er þess að minnast að þá verða liðin 150 ár frá því að Kristján VIII., konungur í Danmörku, þá nýkominn til valda að Friðriki VI. látnum, gaf út úrskurð um endurreisn Alþingis á Íslandi. Undanfari þessarar ákvörðunar konungs var stofnun stéttaþinga suður í Evrópu og síðan ráðgefandi fulltrúaþinga í ríki Danakonungs þar sem fulltrúum Íslendinga var ætluð seta á þingi í Hróarskeldu. Íslendingar sættu sig lítt við þá skipan, vildu þing á Íslandi. Kunnastir forvígismanna þess eru Baldvin Einarsson, Fjölnismenn og síðan Jón Sigurðsson. Á Íslandi var safnað undirskriftum víða um land undir bænaskrár til konungs um þing á Íslandi og íslenskir stúdentar í Kaupmannahöfn báðust hins sama.
    Í úrskurði konungs 20. maí 1840 er embættisnefndinni svonefndu, nefnd tíu íslenskra embættismanna ásamt stiftamtmanni, falið að ráðgast um hvort ekki muni vel til fallið að stofna ráðgjafarþing á Íslandi og láta þar eiga setu menn þá er landsmenn hafa sjálfir kjörið auk nokkurra manna tilnefndra af konungi. Einkum eiga þeir vel að því að hyggja hvort ekki sé réttast að nefna fulltrúaþingið Alþing og eiga það á Þingvöllum eins og Alþing hið

forna.
    Þessum boðskap konungs var fagnað mjög á Íslandi. Jónas Hallgrímsson lagði konungi orð í munn í kvæði sínu um Alþing hið nýja og segir þar:

Frelsi vil ég sæma
framgjarnan lýð,
ættstóran kynstaf
Ísafoldar.

Ríða skulu rekkar,
ráðum land byggja,
fólkdjarfir fyrðar
til fundar sækja,
snarorðir snillingar
að stefnu sitja,
þjóðkjörin prúðmenni
þingsteinum á.

Svo skal hinu unga
alþingi skipað
sem að sjálfir þeir
sér munu kjósa.
Gjöf hef ég gefið
gagni sú lengi
foldu og fyrðum
sem ég fremst þeim ann.

    Björtustu vonir þeirra sem fögnuðu mest hinu nýja Alþingi rættust að vísu ekki á næstunni. Hér var þó stigið fyrsta skrefið að endurreisn Alþingis á Íslandi, lögð drög að stofnun ráðgjafarþings sem öðlaðist fullt löggjafarvald síðar meir. Þess ber að minnast.
    Hinn 8. mars 1843 gaf konungur út tilskipun um stofnun Alþingis og voru þar ákvæði um tölu þingmanna, kosningarrétt og kjörgengi, kjördæmaskipun, meðferð
mála á þinginu og fleira. Á Alþingi skyldu sitja 20 þjóðkjörnir þingmenn kosnir til sex ára og 6 konungkjörnir þingmenn. Þingið skyldi haldið í Reykjavík annað hvert ár. Hið fyrsta Alþingi kom síðan saman 1. júlí 1845.
    Í tilefni þessara minningadaga í sögu Íslendinga og Alþingis hafa forsetar þess falið doktor Aðalgeiri Kristjánssyni að semja rit um aðdragandann að endurreisn Alþingis og um störf Alþingis að þjóðfrelsismálum fram yfir Þjóðfundinn 1851. Stefnt er að því að ritið komi út í marsmánuði 1993 þegar 150 ár verða liðin frá útgáfu tilskipunar um stofnun Alþingis.
    Þá er þess einnig að minnast að á yfirstandandi ári eru 75 ár liðin síðan íslenskar konur fengu kosningarrétt. Mun afmælisins verða minnst á margvíslegan hátt og m.a. hefur verið leyft að Alþingishúsið verði opið þeim konum sem það vilja sækja heim hinn 19. júní nk.
    Ekkert starfandi þjóðþing í veröldinni á sér lengri sögu en Alþingi Íslendinga. Þá sögu ber að hafa í heiðri. Hún er og á að vera þjóðarstolt okkar Íslendinga. En sú saga er því aðeins einhvers virði

núlifandi kynslóðum að menn skipi þinginu þann sess í raunveruleika líðandi stundar sem það hefur haft í sögu þeirra kynslóða sem gengnar eru. En því eru svo augljós sannindi hér við orð höfð að engu er líkara en þjóðþingið eigi nú í vök að verjast. Lítt grunduð orð eru um það höfð og störf þingmanna höfð í flimtingum. Aukin tækni í fjölmiðlun hefur fært störf þingsins inn á hvert heimili í landinu og er það bæði eðlileg og nauðsynleg fréttamiðlun, enda er óvíða svo grannt fylgst með störfum þjóðþings sem hér tíðkast og er það vel. Raunverulegt lýðræði byggist á þekkingu á því sem er að gerast í þjóðmálum. En á hitt ber einnig að líta að þingið sjálft ræður litlu um það sem í fjölmiðlum birtist og því verður vart neitað að oft sýnist áhugaverðara það sem aflaga fer eða ekkert er en það starf sem unnið er landi og lýð til farsældar. Það starf er þó umtalsvert. Og nægir að líta til þeirra lífskjara sem mönnum eru búin jafnt meðal hinna ríkustu þjóða heims sem meðal hinna fátækustu. Geri menn það með opnum huga og nokkurri sanngirni má íslensk þjóð vel meta þá karla og konur sem að því verki hafa komið að leiða þjóð okkar úr aldalöngu umkomuleysi inn í samfélag upplýstra velferðarþjóðfélaga.
    Vissulega er ótal margt óunnið og verkefnin blasa hvarvetna við. Margvíslegar hættur steðja stöðugt að lítilli þjóð sem á tilveru sína undir sterkri sjálfsvitund með djúpar rætur í sögu sinni og menningu og er forsenda farsællar afkomu, einnig hinnar efnahagslegu velferðar. Ég leyfi mér að fullyrða að þessi markmið hafa allir hv. þm. að leiðarljósi í störfum sínum þó að menn greini á um þann veg sem ganga skal að markinu. Og eitt vita þingmenn öðrum betur að þeim störfum lýkur aldrei. Engin augljós og endanleg lausn er til við stjórnun landa og þjóða. Þar verða þjóð og þing að axla sameiginlega ábyrgð og minnast þess stöðugt að ótrúlega auðvelt er að missa það sem áunnist hefur ef andvaraleysið ræður för. Það má því aldrei vera á valdi misábyrgra manna að ráða þeirri mynd sem þjóðinni berst af Alþingi. Alþingi á að vera þess umkomið að kynna störf sín sjálft og þau áhersluatriði sem löggjafarsamkoman hefur í fyrirrúmi hverju sinni. Því er það skoðun mín að tímabært sé að kynning á störfum Alþingis verði stóraukin og til þess ráðinn aðili sem ábyrgur er gagnvart þinginu sjálfu. Frjáls fjölmiðlun er sjálfsögð í lýðræðisþjóðfélagi og þar á þingið engu að ráða um. En það á jafnframt að hafa sama frelsi til kynningar á sínum eigin störfum.
    Forsetar Alþingis hafa ásamt embættismönnum unnið að umtalsverðum skipulagsbreytingum á starfsemi þingsins eins og vart hefur farið fram hjá neinum sem hér starfar. Með tilkomu nýrra vel menntaðra starfsmanna hefur verið unnt að bæta þjónustu við þingmenn til muna, enda er það skylda forseta að sjá svo til að starf þingsins megi fara sem best fram. Þrátt fyrir umbætur á ýmsum sviðum og aukna þjónustu tókst að skila reikningum Alþingis fyrir árið 1989 með 2,9% raunlækkun frá fyrra ári.
    Á sumri komanda verður svæðið sem í eigu

þingsins er fært í búning sem Alþingi sæmir og verður það verk unnið í samvinnu við Reykjavíkurborg. Vonast forsetar til að hv. þm. kunni vel að meta þær breytingar og ekki síður íbúar Reykjavíkurborgar.
    Það verkefni er hins vegar óleyst að finna starfsemi þingsins húsnæði sem er þjóð og þingi sæmandi og munu forsetar leitast við að vinna það verk nú þegar þingi lýkur samkvæmt þeirri heimild sem þeim hefur nú verið fengin.
    Þegar nú þessu löggjafarþingi er að ljúka vil ég þakka hv. þm. góða og drengilega samvinnu. Það þing sem lýkur í dag hefur verið mjög annasamt eins og áður hefur komið fram, stundum umhleypingasamt eins og veðráttan á þessum langa vetri. Því hefur gott samstarf forseta verið mikilvægt og færi ég hæstv. forsetum Ed. og Nd. miklar þakkir fyrir að það hefur verið með ágætum. Varaforsetum og skrifurum þakka ég þolinmæði og samviskusemi í starfi og allt framlag þeirra til þess að þinghald mætti fara fram eins og krefjast verður.
    Starfsmönnum þingsins færi ég hugheilar þakkir fyrir vel unnin störf. Alþingi er viðkvæmur vinnustaður sem gera verður miklar kröfur til starfsmanna sinna. Milli þeirra og þingsins verður að ríkja órofa trúnaður og hollusta og
öll störf þeirra jafnt sem hv. þm. að stjórnast af virðingu fyrir löggjafarsamkomunni. Forsetar hafa unnið nokkuð að því að bæta aðbúnað starfsmanna. Stofnaður hefur verið endurmenntunarsjóður og ýmis önnur mál er varða hag starfsmanna eru í athugun. Ég endurtek þakkir mínar til starfsliðs alls.
    Við lok 112. löggjafarþings óska ég hv. þm. góðrar heimferðar og ánægjulegrar heimkomu og farsældar í störfum þeirra heima í héraði á komandi sumri. Ég bið einnig fyrir kveðjur til fjölskyldna þeirra og vonast til að við hittumst öll heil á hausti komanda. Íslendingum öllum bið ég árs og friðar.