Ferill 7. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1989. – 1059 ár frá stofnun Alþingis.
112. löggjafarþing. – 7 . mál.
Nd.
7. Frumvarp til laga
um breytingu á lögum um almannatryggingar, nr. 67/1971, með síðari breytingum.
Flm.: Málmfríður Sigurðardóttir, Anna Ólafsdóttir Björnsson,
Kristín Einarsdóttir, Þórhildur Þorleifsdóttir.
1. gr.
13. gr. laganna, sbr. 1. gr. laga nr. 73/1985, orðast svo:Maki eða annar heimilisfastur einstaklingur, sem annast elli- eða örorkulífeyrisþega og getur af þeim sökum ekki stundað vinnu utan heimilis, á rétt á umönnunarbótum er nemi allt að 80% af grunnlífeyri og tekjutryggingu.
Sá sem annast hefur elli- eða örorkulífeyrisþega í a.m.k. fimm ár samfleytt getur við lát hans eða lok umönnunar öðlast rétt til lífeyris hliðstæðs ekkjulífeyri njóti hann ekki greiðslna frá lífeyrissjóði eða Tryggingastofnun ríkisins og sé af einhverjum ástæðum ekki fær um að stunda vinnu utan heimilis.
Hafi einstaklingur ekki getað stundað vinnu vegna umönnunar elli- eða örorkulífeyrisþega samfleytt undanfarin fimm ár á hann rétt á styrk til starfs- eða endurmenntunar samkvæmt mati tryggingaráðs, í því skyni að fá atvinnu á ný til að framfleyta sér þegar umönnunarstarfi lýkur.
2. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.Greinargerð.
Lög um almannatryggingar, sem nú eru í gildi, kveða svo á að greiða megi maka elli- og örorkulífeyrisþega makabætur allt að 80% af grunnlífeyri og tekjutryggingu ef sérstakar ástæður eru fyrir hendi.
Nú er það svo að fleiri en makar kunna að hafa tekið að sér umönnun elli- eða örorkulífeyrisþega. Má þar nefna börn, tengdabörn, skyldmenni eða jafnvel vandalausa sem eru á sama heimili og sá sem umönnunarinnar nýtur. Telja verður eðlilegt að sá sem annast elli- eða örorkulífeyrisþega og getur ekki af þeim sökum stundað vinnu sér til framfæris hljóti einhverjar
bætur vegna þess. Hér er kosið að nefna þær „umönnunarbætur“. Sú stefna hefur að undanförnu rutt sér til rúms að rétt sé að elli- og örorkulífeyrisþegar njóti aðhlynningar í heimahúsum svo lengi sem þeir óska og fært telst. Flestir una sér best og líður best á eigin heimili og í því umhverfi sem þeir hafa vanist.
Mikill kostnaður fyrir ríkissjóð fylgir vistun einstaklinga á elliheimilum og sjúkrastofnunum. Daggjald fyrir einstakling á elliheimilum var 1. janúar 1989 1593 kr. Daggjöld á hjúkrunarstofnunum voru þá allt frá 2799 kr. þar sem það var lægst og allt að 6353 kr. þar sem það var hæst. 1. janúar 1989 voru 80% af grunnlífeyri og tekjutryggingu 22.030 kr. á mánuði eða um 735 kr. á dag. Af þessum tölum má sjá að þótt almannatryggingar greiddu aðstandendum slíka upphæð vegna umsjár einstaklings, sem annars yrði að vera á stofnun, þá sparaðist ríkinu samt sem áður mikið fé. Þá má einnig líta á það að fólk leggur oft og tíðum hart að sér við að hafa ellihruma eða farlama ættingja í heimahúsum og er sanngirnismál að hið opinbera komi til móts við það.
„Foreldraekkjur“ nefna Norðmenn uppkomið fólk sem hefur búið heima og hugsað um sjúka eða fatlaða foreldra eða foreldri sem ekki getur komist af án hjálpar. Yfirleitt eru þetta konur. Við lát foreldris eða umönnunarlok af öðrum ástæðum, svo sem vistunar á sjúkrastofnun, er þetta fólk tíðum mjög illa sett í lífsbaráttunni. Algengt er til sveita að þessar „foreldraekkjur“ sitji á jörð sem hefur lítinn sem engan fullvirðisrétt og er því verðlítil eða verðlaus eign. Yfirleitt eru þetta fullorðnar konur og ógiftar og ekki færar um að reka búskap án aðstoðar. Þær hafa oftar en ekki einangrast inni á heimilinu við einhæf störf og treysta sér ekki út á almennan vinnumarkað vegna ókunnugleika á launuðum störfum en eru ekki komnar á ellilífeyrisaldur. Sjaldnast geta þær talist öryrkjar en lenda milli stafs og hurðar í kerfinu þrátt fyrir að þær með umönnunarstörfum sínum hafi án efa sparað ríkinu stórfé. Þessu frumvarpi er ætlað að rétta hlut þessara einstaklinga og veita störfum þeirra viðurkenningu.
Í norsku tryggingalöggjöfinni eru ákvæði um styrki til starfs- eða endurmenntunar til handa þeim sem langtímum hafa verið bundnir innan heimilis við umönnun sjúkra, aldraðra eða öryrkja til að auðvelda þeim að framfleyta sér af eigin rammleik. Við samningu þessa frumvarps hefur verið stuðst við norsk tryggingalög og tekið mið af því hvernig þar er staðið að bótum til þeirra sem þessu frumvarpi er ætlað að ná til.
Þetta frumvarp var áður flutt á 111. löggjafarþingi og er nú endurflutt óbreytt ásamt óbreyttri greinargerð.