Ferill 23. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1989. – 1059 ár frá stofnun Alþingis.
112. löggjafarþing. – 23 . mál.
Sþ.
23. Tillaga til þingsályktunar
um þátttöku varnarliðsins í gerð þjóðvega hér á landi.
Flm.: Ásgeir Hannes Eiríksson.
Alþingi ályktar að fela utanríkisráðherra að kanna hvort varnarlið Bandaríkjanna á Íslandi og Mannvirkjasjóður Atlantshafsbandalagsins séu reiðubúin til að taka þátt í gerð þjóðvega hér á landi. Ráðherra skili Alþingi skýrslu um málið fyrir 1. nóv. 1990.
Greinargerð.
Bandaríkin tóku að sér að verja lýðveldið Ísland með varnarsamningi frá 5. maí 1951 á grundvelli Norður-Atlantshafssamningsins. Þremur dögum seinna sté bandarískur her á land og hefur dvalið hér síðan.
Þau ríki, sem taka að sér að vernda aðrar þjóðir, mega ekki láta staðar numið við moldina, heldur verður vernd þeirra að ná til fólksins í landinu. Hluti af þeim viðbúnaði eru greiðar samgöngur um landið og opnar leiðir frá hættusvæðum ef til styrjaldar kemur. Á sama hátt eru vel búin byrgi fyrir almenning á ófriðartímum hluti af þeim vörnum fólksins sem búast má við.
Á sínum tíma munu Bandaríkin og Mannvirkjasjóðurinn hafa verið reiðubúin til að leggja akveg frá Keflavíkurflugvelli og að herstöðinni í Hvalfirði utan við byggð, einnig að taka þátt í að leggja núverandi Keflavíkurveg og þá mun jafnframt hafa verið nefnt að hafa hann tvær aðskildar akreinar til að draga úr slysahættu. Þátttaka þeirra mun hafa komið til tals við gerð á stórri höfn við Njarðvík og ýmsum fleiri mannvirkjum hér á landi eins og nýju flugstöðinni. Síðast en ekki síst skal nefnt boð frá bandaríska hernum um að leggja tvöfaldan akveg frá Reykjavík til Akureyrar samkvæmt áætlun um að þjálfa verkfræðisveitir hersins við að leggja vegi við aðstæður áþekkar þeim sem eru á heimskautasvæðum. Öllum þessum viðræðum var hafnað.
Því er rétt að kanna hvort bandaríski herinn og Mannvirkjasjóður Atlantshafsbandalagsins eru reiðubúin til að ræða þessa vegagerð nú með hliðsjón af því að varnarliðið hefur ekki greitt vegagjöld á Íslandi eins og aðrir vegfarendur. Vel er hægt að hugsa sér að fyrsta skrefið sé að tvöfalda Reykjanesbrautina frá Flugstöð Leifs Eiríkssonar til Reykjavíkur og draga þannig úr vaxandi slysahættu á þeirri leið. Síðan mætti halda áfram ferðinni umhverfis landið að öllum athafnasvæðum varnarliðsins og aftur til Keflavíkurflugvallar um sunnanvert Reykjanes. Full ástæða er til að reikna með væntanlegum varaflugvelli og tengja hann við þjóðvegakerfið með vegi yfir hálendið.
Að lokum er rétt að velja jafnan skemmstu leið á milli byggða eftir föngum og losna við ófærð og slysahættu með því að gera göng í gegnum fjöll og múla jafnt sem undir langa firði. Þetta á einkum við um þjóðvegi á Vestfjörðum, Austurlandi og hluta Norðurlands og í Hvalfirði. Þessi göng má síðan nota sem byrgi á vegum Almannavarna fyrir fólk að leita skjóls í ef til tíðinda dregur.