Ferill 24. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1989. – 1059 ár frá stofnun Alþingis.
112. löggjafarþing. – 24 . mál.


Sþ.

24. Tillaga til þingsályktunar



um byggðaáætlun fyrir suðurfirði Austurlands.

Flm.: Egill Jónsson, Jón Kristjánsson, Hjörleifur Guttormsson.



    Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að hlutast til um það við Byggðastofnun að hún geri byggðaáætlun fyrir suðurfirði Austurlands, frá Fáskrúðsfirði að norðan til Geithellnahrepps að sunnan.
    Í áætlun þessari verði gerð grein fyrir ástandi og horfum í byggðaþróun. Sérstök áhersla er lögð á tillögur til úrbóta í atvinnumálum og opinberum framkvæmdum.
    Fullt samráð um áætlunargerðina verði haft við sveitarstjórnir á þessu svæði, Samband sveitarfélaga á Austurlandi og alþingismenn Austurlands.

Greinargerð.


    Tillaga þessi var flutt á 111. löggjafarþingi en varð ekki útrædd. Henni fylgdi þá svohljóðandi greinargerð:
    Suðurfjarðabyggðir eru þéttbýlisstaðirnir Búðahreppur, Stöðvarhreppur, Breiðdalsvík og Djúpivogur ásamt aðliggjandi sveitabyggðum. Þarna búa rúmlega 2.000 manns. Miðað við árið 1971 hefur íbúum þessara byggðarlaga fjölgað um nálega 100.
    Atvinnulíf suðurfjarða er með því einhæfasta sem er að finna á landinu. Á þéttbýlisstöðunum er sjávarútvegur alls staðar yfir helmingur atvinnustarfsemi og á Stöðvarfirði starfa meira en tveir af hverjum þremur í þeirri atvinnugrein. Enda þótt svæðið liggi mjög vel við fiskimiðum hefur útgerð og fiskvinnsla átt í margvíslegum erfiðleikum. Fjárhagsstaða margra stærstu útgerðar- og fiskvinnslufyrirtækjanna er alls óviðunandi og hefur svo verið lengi. Þetta hefur m.a. komið í veg fyrir eðlilega uppbyggingu og veikt byggðarlögin.
    Þrátt fyrir þessar erfiðu aðstæður í rekstri margra fyrirtækja í fiskvinnslu og útgerð í þessum byggðarlögum er þar rekin ákaflega mikilvæg framleiðslustarfsemi. Samkvæmt upplýsingum frá Fiskifélagi Íslands, sem birtast í fylgiskjali I, var landaður afli á þessu svæði 28.463 tonn. Verðmæti hans nam 520 millj. kr. Afli heimaskipa, sem seldur var erlendis, var 4.120 tonn að verðmæti 210 millj. kr. Samtals var afli því 32.583 tonn að verðmæti 730 millj. kr.
    Útflutningsverðmæti sjávarafurða, sem framleiddar voru í þessum byggðarlögum árið 1987 (tafla 2), var 1.210 millj. kr. en það er 2,92% af verðmæti útfluttra sjávarafurða landsmanna. Mikilvægi þessara byggðarlaga í framleiðslu sjávarafurða skýrist enn betur þegar til þess er litið að miðað við íbúatölu þeirra 1. desember 1987 nam verðmæti útfluttra sjávarafurða 650 þús. kr. á hvern íbúa.
    Fylgiskjal II skýrir hvernig framleiðsla mjólkur- og sauðfjárafurða sveitabyggðanna hefur þróast hin síðari ár. Þar kemur fram að mjólkurframleiðslan hefur dregist saman um 103 þúsund lítra og hlutdeild í heildarmjólkurframleiðslunni minnkað úr 0,60 í 0,55%. Samdráttur sauðfjárafurða nemur 616 ærgildisafurðum sem er nokkuð í samræmi við almenna þróun í þeirri framleiðslu.
    Segja má að sú þróun í landbúnaðarframleiðslu, sem að framan er skýrð, sé ekki einstakt áhyggjuefni, ef ekki kæmi fleira til. Á undanförnum árum hefur riða í sauðfé verið töluvert útbreidd í sumum sveitanna, einkum Breiðdal, en nú er með niðurskurði sauðfjár leitast við að útrýma sjúkdómnum. Augljóst er að riðuveikin hefur skapað mikla erfiðleika í búrekstri þar sem hennar hefur gætt og þannig lamað sauðfjárbúskapinn á þessu svæði. Færi svo að einhverjir bændur hæfu ekki aftur sauðfjárbúskap eykur það enn á vanda þessarar greinar, m.a. vegna smölunar á afréttum sem þá færist á færri bændur.
    Þá veldur það enn fremur áhyggjum að starfsemi mjólkurbúsins og sláturhússins á Djúpavogi hefur nú verið lögð niður. Mikilvægt er að þessar aðstæður komi til sérstakrar athugunar við gerð þessarar áætlunar.
    Þótt á síðustu árum hafi náðst umtalsverður árangur í samgöngumálum og öðrum opinberum framkvæmdum er samt margt ógert sem sérstaklega verður að huga að. Leggja ber áherslu á að koma á sem greiðustum samgöngum á landi með fjörðum til Reyðarfjarðar og enn fremur er nauðsynlegt að byggja upp greiða leið um Breiðdal til Egilsstaða. Halda ber áfram uppbyggingu flugvallarins í Breiðdal og brýn verkefni í hafnarmálum eru vissulega fyrir hendi.
    Á síðustu árum hefur samvinna á milli sveitarfélaga á þessu svæði aukist og þau fjalla reglulega um hagsmuna- og framfaramál sín. Það sýnir að fólkið í þessum byggðum og þeir, sem þar eru í forustu, eru tilbúnir til að takast á við aðsteðjandi vandamál. Af hendi stjórnvalda ber að mæta slíku starfi með jákvæðum viðhorfum. Gerð byggðaáætlunar, eins og hér er lögð til, hefur grundvallarþýðingu fyrir slíkt starf.



Fylgiskjal I.


Fiskifélag Íslands.

Tafla 1.

Unninn afli á Fáskrúðsfirði, Stöðvarfirði, Breiðdalsvík og Djúpavogi árið 1987.



     Tegund     
Tonn
     Þús. kr.
    Þorskur ........
14.610
    328.541
    Ýsa ............
2.018
    48.053
    Ufsi ...........
2.220
    28.614
    Karfi ..........
858
    13.992
    Langa ..........
85
    1.287
    Blálanga .......
1
    23
    Keila ..........
15
    259
    Steinbítur .....
407
    7.248
    Hlýri ..........
68
    825
    Skötuselur .....
6
    6
    Skata .........
    6
    Lúða ..........
23
    1.204
    Grálúða ......
288
    6.048
    Skarkoli........
42
    719
    Síld ...........
7.388
    42.077
    Rækja ..........
348
    22.082
    Humar .........
91
    12.028
    Ósundurliðað ...
15
    6
              
—–
     ——
     Samtals     
28.463
    519.139

    Ráðstöfun aflans var þessi:

                    Tonn     Þús. kr.
    Frysting .......     15.499
    Söltun .........     12.329
    Hersla .........     9
    Bræðsla ........     602
    Annað ..........     74

    Auk þess skal telja til verðmæta sem beint tilheyra heimahöfnum:
    Afli seldur erlendis:

    Úr skipum ......
3.463
177.611
    Selt úr gámum...
657
32.783
              
——-
——–
     Samtals     
32.583
729.532


Tafla 2.

Afli skipa sem skrásett eru á Fáskrúðsfirði, Stöðvarfirði, Breiðdalsvík og


Djúpavogi árið 1987, landað í heimahöfn, öðrum höfnum innan lands,


frystur um borð, landað erlendis eða sendur úr landi í gámum.



         Tegund          Tonn     Þús. kr.
    Þorskur .........         18.095    492.232
    Ýsa .............         2.743    88.176
    Ufsi ............         2.774    42.873
    Karfi ...........         1.170    24.418
    Langa ...........         115    2.352
    Blálanga ........         5    156
    Keila ...........         41    910
    Steinbítur ......         465    9.914
    Hlýri ...........         73    883
    Skötuselur ......         6    241
    Skata ...........         2    16
    Lúða ............         34    2.894
    Grálúða .........         866    35.462
    Skarkoli ........         75    2.218
    Lýsa ............              8
    Gulllax .........         34    699
    Þykkvalúra ......         4    396
    Langlúra ........               1
    Stórkjafta ......               2
    Rækja ...........         1.032    70.371
    Síld ............         3.859    24.274
    Loðna ...........         46.019    98.135
    Loðnuhrogn ......         193    8.412
    Ósundurliðað ....         25    306
                        ——–     ——–
     Samtals              77.630    905.349

    Ráðstöfun þessa afla hefur verið sem hér segir (í tonnum):

    Heimalandanir ......................     
23.424

    Landað annars staðar innan lands ...     
49.164

    Fryst um borð í skipum .............     
924

    Landað erlendis ....................     
3.463

    Selt erlendis úr gámum .............     
657

                  
——-

     Samtals     
77.632


(Tveggja tonna mismunur liggur í uppfærslu brota úr tölum.)

    Sem athugasemd við töflu 2 viljum við geta þess að tvö skip, Hilmir SU 171 og Hilmir II SU 177, eru skrásett á Fáskrúðsfirði. Því kemur afli þeirra hér með, en þessi skip munu lítil samskipti hafa við sína heimahöfn hvað áhöfn snertir eða útgerð.


     Afli þeirra var:          Tonn     Þús. kr.
    Hilmir SU 171 ......................         35.615    118.917
    Hilmir II SU 177 ...................         15.745    45.006
                       ——-     ——–
     Samtals         51.360    163.925

    Afli annarra heimaskipa er því .....         26.273    741.426

    Samkvæmt töflu 1 má segja að unnin
    hafi verið á þessu svæði úr skipum
    sem eiga sér aðra heimahöfn, en
    tilheyra svæðinu ...................         2.190
                       ——-
     Samtals         28.463


               Hlutfall af heildarverðmæti     Hlutfall af heildarafla
                 

Unnið á svæðinu ...............................     2,08%     1,75%
Afli skipa skrásettra á svæðinu ...............     3,63%     4,78%
Afli skipa annarra en nefndra tveggja skipa ...     2,97%     1,62%

     Ef meta skal útflutningsverðmæti mundum við telja verð afurða vera (í millj. kr.):
    Afli unninn á staðnum
1.000

    Afli seldur erlendis frá skipum og gámum
210
                                        ——-
    Samtals     
    1.210 1)
1 )2,92% af áætluðu verðmæti útfluttra sjávarafurða.




Fylgiskjal II.


21. nóv. 1988.QR
Hr. Egill Jónsson, alþingismaður,
Alþingi,
150 Reykjavík.

    Vegna fyrirspurnar yðar í síma um þróun framleiðsluréttar og framleiðslumagn í sex syðstu hreppum Suður-Múlasýslu skal eftirfarandi tilgreint:
    Fullvirðisréttur til framleiðslu mjólkur var fyrst ákvarðaður fyrir verðlagsárið 1985–1986 og hefur virkur framleiðsluréttur verið þannig eftir verðlagsárum (tölur eru í lítrum). Tölur fyrir 1988/1989 eru bráðabirgðatölur:


     Sveitarfélag     
1985/1986
1986/1987 1987/1988      1988/1989
    Fáskrúðsfjarðarhreppur .....
128.986
129.926 126.797 126.996
    Stöðvarhreppur
    Breiðdalshreppur ...........
216.874
222.059 168.578 168.972
    Beruneshreppur .............
240.781
232.829 229.686 232.977
    Búlandshreppur
    Geithellnahreppur..........
69.791
67.129 63.046 68.222
              
——–——–
——–      ——–
     Samtals
656.432
651.943 588.107 597.167
     % af heild
0,60
0,62 0,57 0,58

    Bundinn réttur hjá Framleiðnisjóði landbúnaðarins var í byrjun september sl. 38.074 lítrar úr Breiðdalshreppi.
    Innvigtun mjólkur þessi sömu verðlagsár var þannig úr þessum sveitarfélögum (tölur eru í lítrum):


          Sveitarfélag
1985/1986 1986/1987 1987/1988
    Fáskrúðsfjarðarhreppur ................     
136.520
130.361     116.655
    Stöðvarhreppur og Breiðdalshreppur ....
214.385
237.667 164.273
    Beruneshreppur ........................     
250.438
240.607 223.821
    Búlandshreppur og Geithellnahreppur ...
70.261
70.191 63.719
              ———     ——–     ———
     Samtals     
671.604
678.826 568.468
     % af heild     
0,60
0,63 0,55

    Fullvirðisréttur til framleiðslu sauðfjárafurða var fyrst ákvarðaður fyrir verðlagsárið 1987–1988. Tölurnar fyrir verðlagsárið 1988–1989 eru nálægt því að vera endanlegar.

    Virkur réttur er skráður þannig (tölur í ærgildum):

     Sveitarfélag          1987/1988     1988/1989
    Fáskrúðsfjarðarhreppur ....         3.892,4    3.597,3
    Stöðvarhreppur ............         715,4    71,7
    Breiðdalshreppur ..........         5.152,5    2.007,2
    Beruneshreppur ............         4.701,8    4.375,1
    Búlandshreppur ............         408,9    370,4
    Geithellnahreppur .........         5.048,0    4.902,6
              ———     ——–
     Samtals         19.919,0    15.324,3
     % af heild         3,17    2,52



    Ein ærgildisafurð jafngildir hér 18,2 kg af kindakjöti. Bundinn réttur vegna samninga við Framleiðnisjóð landbúnaðarins og sauðfjársjúkdómanefnd verðlagsárið 1988–1989 var skráður þannig (tölur eru í ærgildum):

     Sveitarfélag          Framleiðni sjóður Sauðfjársjúk-dómanefnd
    Fáskrúðsfjarðarhreppur ....         29,2     282,2
    Stöðvarhreppur ............         316,7     324,7
    Breiðdalshreppur ..........         180,8     3.100,6
    Beruneshreppur ............         317,3     0
    Búlandshreppur ............         37,3     0
    Geithellnahreppur .........         128,8     0
             ———    ———-
     Samtals         1.010,1     3.707,5

    Vitað er að bundinn réttur mun aukast á næsta verðlagsári. Skýrslur um innvigtun kindakjöts undanfarandi verðlagsár í þessum sveitarfélögum gefa eftirfarandi til kynna í ærgildisafurðum talið:

     Sveitarfélag          1985/1986     1986/1987 1987/1988
    Fáskrúðsfjarðarhreppur ...     4.054,9    4.706,5    4.069,5
    Stöðvarhreppur ...........    775,8    937,4    408,3
    Breiðdalshreppur ........    5.386,8    6.006,9    5.098,1
    Beruneshreppur ...........    4.765,3    5.352,4    4.697,3
    Búlandshreppur ...........     562,8    581,3    467,2
    Geithellnahreppur ........     4.896,5    5.218,3    5.085,7
                  ———     ———-     ———
     Samtals     20.442,1    22.802,8    19.826,1
     % af heild     3,07    3,26    3,14

    Innvigtunartölur fyrir verðlagsárið 1988–1989 liggja fyrst fyrir um miðjan desember nk.
    Með von um að framanritaðar upplýsingar varpi nokkru ljósi á þróun búskapar í umræddum sveitarfélögum hin seinni ár.

Virðingarfyllst,


f.h. Framleiðsluráðs landbúnaðarins,


Gísli Karlsson.