Ferill 30. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1989. – 1059 ár frá stofnun Alþingis.
112. löggjafarþing. – 30 . mál.


Sþ.

30. Fyrirspurn



til landbúnaðarráðherra um greiðslur til bænda samkvæmt jarðræktar- og búfjárræktarlögum.

Frá Alexander Stefánssyni.



1.    Hver er staða lögboðinna greiðslna til bænda samkvæmt jarðræktarlögum:
    a.    fyrir árið 1987 og eldra,
    b.    fyrir árið 1988?
2.     Hver er staða lögboðinna greiðslna til bænda samkvæmt búfjárræktarlögum:
    a.    fyrir árið 1987 og eldra,
    b.    fyrir árið 1988?
3.     Hver er staða lögboðinna greiðslna til búnaðarsambanda:
    a.    fyrir árið 1987 og eldra,
    b.    fyrir árið 1988?