Ferill 49. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1989. – 1059 ár frá stofnun Alþingis.
112. löggjafarþing. – 49 . mál.


Sþ.

49. Tillaga til þingsályktunar



um aukin verkefni sveitarfélaga.

Flm.: Birgir Ísl. Gunnarsson, Geir H. Haarde, Salome Þorkelsdóttir,


Guðmundur H. Garðarsson.



    Alþingi ályktar að skora á ríkisstjórnina að hefja nú þegar í samvinnu við Samband íslenskra sveitarfélaga skipulega vinnu við undirbúning lagafrumvarpa um aukin verkefni sveitarfélaga og samsvarandi tilfærslu tekjustofna frá ríkinu.

Greinargerð.


    Á síðastliðnu vori voru samþykkt ný lög um verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga. Þau lög eru góður áfangi að skýrari verkaskiptingu þessara aðila. Þegar upp er staðið eftir þann áfanga kemur þó í ljós að í raun voru fleiri verkefni færð til ríkisins en til sveitarfélaganna. Hugmyndir um að efla sjálfstæði sveitarfélaganna, færa valdið út í héruðin og draga úr miðstýringu náðist ekki nema að litlu leyti fram við þessa lagasetningu. Því er nauðsynlegt að hefja nú þegar að nýju skipulega vinnu við breytta verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga þar sem markmiðið verði að sveitarfélögin fái aukin verkefni. Sem dæmi um slík verkefni má nefna heilsugæslu, grunnskóla og löggæslu. Jafnframt auknum verkefnum til sveitarfélaga þarf að flytja tekjustofna frá ríki til sveitarfélaga þannig að heildarskattbyrði aukist ekki.
    Með þingsályktunartillögu þessari er birt sem fylgiskjal ályktun 28. landsfundar Sjálfstæðisflokksins 4.–8. október sl. um sveitarstjórnarmál.



Fylgiskjal.


28. landsfundur Sjálfstæðisflokksins 1989.

Ályktun um sveitarstjórnarmál.



    Sjálfstæðisflokkurinn leggur ríka áherslu á sjálfstæði sveitarfélaganna. Sjálfstæðisflokkurinn vill draga úr miðstýringu í stjórnsýslukerfinu með því að dreifa valdi og ábyrgð í auknum mæli til sveitarfélaganna.
    Auknar kröfur til menntunar, heilbrigðis- og félagsþjónustu, samgangna og umhverfismála mun á næstu árum hafa veruleg áhrif á atvinnulíf, byggðaþróun, velferð og menningu í landinu. Þeirri þróun verða sveitarfélögin að geta mætt af nægum styrk, hvert og eitt, með samruna eða samvinnu um einstök verkefni.
    Verkefni er tengjast nýjum viðhorfum og þörfum í samfélaginu kalla á þekkingu heimamanna. Sveitarfélögin eru það stjórnvald sem stendur fólkinu næst. Þess vegna leggur Sjálfstæðisflokkurinn áherslu á öflug sveitarfélög sem starfa saman með frjálsum hætti í héruðum og landshlutum.
    Sjálfstæðisflokkurinn leggur áherslu á að tekjustofnalög á hverjum tíma tryggi sveitarfélögunum tekjur samfara auknum lögboðnum verkefnum. Tryggja verður sveitarstjórnum fullt frelsi til þess að verðleggja þá þjónustu sem þau veita.
    Sveitarfélögin geta einungis með traustum tekjustofnum sinnt lögboðnum verkefnum á þeim sviðum sem byggðin í landinu þarf á að halda.
    Landsfundurinn leggur áherslu á að þjónustusvið sveitarfélaga verði endurmetið með hliðsjón af nýrri verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga og mögulegri einkavæðingu þjónustuverkefna.
    Sjálfstæðisflokkurinn vill treysta búsetu í landinu og jafna aðstöðu í landshlutum. Þar gegna sveitarfélögin viðamiklu hlutverki.