Ferill 57. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1989. – 1059 ár frá stofnun Alþingis.
112. löggjafarþing. – 57 . mál.


Sþ.

57. Fyrirspurn



til fjármálaráðherra um fjármál og fjárveitingar til ríkisstofnana.

Frá Guðmundi G. Þórarinssyni.



1.
    Hvaða aðilar ríkisins, stofnanir eða ráðuneyti voru rekin innan ramma fjárlaga 1988?
2.
    Hver er hlutfallsleg hækkun í fjárlögum 1988 og 1989 og í fjárlagafrumvarpi 1990 til þessara stofnana milli ára? Er þá átt við samanlagt reglulega starfsemi, nýjungar í starfsemi og fjárfestingar.
3.
    Hvaða 10 aðilar, stofnanir eða ráðuneyti fóru mest umfram fjárlög árið 1988?
4.
    Hver er hlutfallsleg hækkun í fjárlögum 1988 og 1989 og í fjárlagafrumvarpi 1990 til þessara aðila milli ára? Er þá átt við samanlagt reglulega starfsemi, nýjungar í starfsemi og fjárfestingar.