Ferill 68. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1989. – 1059 ár frá stofnun Alþingis.
112. löggjafarþing. – 68 . mál.


Sþ.

68. Tillaga til þingsályktunar



um heilsufarsbók.

Flm.: Guðrún Agnarsdóttir, Anna Ólafsdóttir Björnsson,


Danfríður Skarphéðinsdóttir, Kristín Einarsdóttir,
Málmfríður Sigurðardóttir, Þórhildur Þorleifsdóttir.

    Alþingi ályktar að fela heilbrigðisráðherra í samráði við landlækni að láta hanna heilsufarsbók sem fylgi hverjum einstaklingi frá vöggu til grafar.
    Í heilsufarsbókina skulu skráðar jafnóðum allar þær upplýsingar um heilsufar einstaklingsins sem máli skipta, svo sem sjúkdómar, læknismeðferð og lyfjanotkun.

Greinargerð.


    Skráning og varðveisla ýmissa upplýsinga um heilsufar einstaklinga hefur farið vaxandi á undanförnum árum og áratugum. Þessar upplýsingar er langoftast að finna hjá heimilis- eða heilsugæslulækni hvers einstaklings en einnig hjá sjúkrahúsum eða öðrum rannsókna- eða meðferðarstofnunum. Þrátt fyrir aukna tækni á tölvuöld er þó skipulag á þessum upplýsingum með ýmsum hætti og oft þarf víða að leita fanga til þess að fá heildarupplýsingar um heilsufar fólks. Allt of sjaldan hefur sjúklingurinn sjálfur yfirsýn yfir eigið heilsufar, tímasetningu og niðurstöður rannsókna og læknismeðferðar sem hann hefur fengið (t.d. bólusetningar, lyfjagjöf, skurðaðgerðir o.fl.). Þetta viðheldur vankunnáttu almennings og er ekki í samræmi við stefnu heilbrigðisyfirvalda sem hvetur til aukinna forvarna og frumkvæðis einstaklinga til að taka ábyrgð á eigin heilsugæslu. Til þess að svo geti orðið þarf aukna og skipulega heilbrigðisfræðslu, bæði í skólum og meðal almennings. Fræðslan ein sér nægir þó ekki til að tryggja það að einstaklingar taki ábyrgð á eigin heilsuvernd. Þeim verður jafnframt að vera það kleift efnahagslega og félagslega að velja sér lifnaðarhætti í samræmi við þá heilbrigðisfræðslu sem stunduð er. Stjórnvöld hafa mikilvægu hlutverki að gegna í þessum efnum. Þeim ber t.d. að samstilla ýmsa þætti stjórnsýslunnar þannig að þeir verði samvirkir til að ná markmiðum heilbrigðisfræðslu. Einn þáttur þess að auka hlutdeild almennings í eigin heilsuvernd er að gefa fólki kost á því að skrá í eina bók allt það sem við kemur heilsufari þess. Upplýsingarnar eru þannig í fórum einstaklingsins eða umsjáraðila hans allt frá vöggu til grafar auk þess sem þær er að finna hjá viðkomandi aðilum heilbrigðisþjónustunnar.
    Heilsufarsbækur hafa verið notaðar meðal ýmissa annarra þjóða um nokkurt skeið með góðum árangri. Slíkt skipulag eykur vitneskju einstaklingsins um eigið heilbrigði og heilsufar og skírskotar jafnframt til ábyrgðar og hvetur til þátttöku. Heilsufarsbók er því í fyllsta samræmi við yfirlýst markmið og stefnu heilbrigðisyfirvalda.