Ferill 70. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1989. – 1059 ár frá stofnun Alþingis.
112. löggjafarþing. – 70 . mál.


Sþ.

70. Fyrirspurn



til fjármálaráðherra um samningaviðræður við EB.

Frá Kristínu Einarsdóttur.



    Hvað liggur að baki staðhæfingar í greinargerð með fjárlagafrumvarpi (bls. 276) varðandi utanríkisráðuneytið þar sem segir: „Ljóst er að á næsta ári munu hefjast umfangsmiklar samningaviðræður við Evrópubandalagið … “?
    Hefur ríkisstjórnin þegar tekið afstöðu til samningaviðræðna við EB?