Ferill 89. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1989. – 1059 ár frá stofnun Alþingis.
112. löggjafarþing. – 89 . mál.
Ed.
90. Frumvarp til laga
um eignaþátttöku lífeyrissjóða í dvalar- og þjónustuheimilum fyrir aldraða.
Flm.: Guðmundur H. Garðarsson.
1. gr.
Stjórnum lífeyrissjóða er heimilt að bæta ákvæði inn í reglugerðir um sjóðina er felur í sér að verja megi allt að 5% af árlegu ráðstöfunarfé til eignaþátttöku í byggingu dvalar- og þjónustuheimila fyrir aldraða sjóðfélaga. Þó skal samanlögð upphæð, sem varið er í þessum tilgangi, eigi vera hærri en sem nemur 4% af heildareignum viðkomandi lífeyrissjóða á hverjum tíma.2. gr.
Kaupskylda lífeyrissjóða af skuldabréfum húsnæðismálastjórnar skal lækka í sama hlutfalli og lífeyrissjóður hagnýtir sér ákvæði 1. gr. laga þessara.3. gr.
Með reglugerð skal fjármálaráðherra setja nánari ákvæði um framkvæmd þessara mála, sem og með hvaða hætti eftirliti skuli háttað varðandi fjárfestingu og meðferð þeirra eigna sem hér um ræðir. Reglugerðin skal samin í samráði við stjórnir þeirra lífeyrissjóða er hyggjast hagnýta sér heimildarákvæði 1. gr. laga þessara.Greinargerð.
Eitt af stærstu vandamálum nútímaþjóðfélags er að brúa það bil sem er að verða milli húsnæðisþarfa aldraðra annars vegar, en sá hópur fer sífellt stækkandi, og yngra fólks hins vegar. Leitað hefur verið margra leiða í þessum efnum með misjöfnum árangri. Þó hefur margt verið gert sem er til fyrirmyndar. Þrátt fyrir það hefur ekki tekist sem skyldi að búa nægilega vel að miklum fjölda aldraðs fólks og á næstu árum mun eiga sér stað mikil fjölgun í hópi þeirra sem teljast til ellilífeyrisþega, þ.e. fólks sem er 67 ára og eldra. Þrátt fyrir þátttöku í lífeyrissjóðum eru lífeyrisréttindi margra mjög takmörkuð, m.a. vegna þess að fjöldi lífeyrissjóða hefur aðeins starfað í 20 ár, þ.e. frá því að samið var um stofnun lífeyrissjóðanna af aðilum vinnumarkaðsins árið 1969. Þeir hófu síðan starfsemi sína 1. jan. 1970 með áfangagreiðslu iðgjalda upp í 10% fyrstu þrjú árin. Þá skorti það inn í reglugerðir sjóðanna að iðgjöld væru greidd af öllum tekjum. Á síðustu árum hafa tekist samningar um það.
Með þeirri aðferð við uppbyggingu öldrunarheimila, sem þetta frumvarp felur í sér, er bent á nýja leið til að tryggja betur stöðu aldraðra með sameiginlegu átaki og jafnframt felst í framkvæmd þess nokkur uppbót á skertan ellilífeyri.
Ráðstöfunarfé lífeyrissjóðanna árið 1989 er áætlað 17,6 milljarðar kr. Miðað við heildareignir lífeyrissjóðanna 31. desember 1988, 70 milljarðar kr., má búast við að heildareignir í árslok 1989 verði orðnar um 90 milljarðar kr. Þá er áætlað að ráðstöfunarfé lífeyrissjóðanna árið 1990 verði 24,1 milljarður kr. Samkvæmt því er ekki óvarlegt að áætla að heildareignir í árslok 1990 verði á bilinu 110–120 milljarðar kr.
Samkvæmt þessu mundi frumvarp þetta, ef það yrði að lögum, geta skapað möguleika til fjármögnunar í þágu íbúðarmála aldraðra sem hér segir:
Heildarráðstöfunarfé lífeyrissjóða.
Milljarðar kr. Þar af 5% til eignaþátttöku
í íbúðabyggingum fyrir aldraða.
1989 ........
17,6
880,0
1990 ........
24,1
1.205,0
Frumvarp þetta, verði það að lögum, felur í sér möguleika á að valda byltingu í því að leysa íbúða- og þjónustumál aldraðra. Afskipti og milliganga hins opinbera yrði óþörf eftir því sem framkvæmd þessara mála færðist í vaxandi mæli í hendur fólksins sjálfs sem er eignaraðilar að lífeyrisréttindum lífeyrissjóðanna.