Ferill 90. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1989. – 1059 ár frá stofnun Alþingis.
112. löggjafarþing. – 90 . mál.


Nd.

91. Frumvarp til laga



um breyting á lögum nr. 72/1982, um námslán og námsstyrki.

(Lagt fyrir Alþingi á 112. löggjafarþingi 1989.)



1. gr.

    3. mgr. 4. gr. orðist svo:
    Stjórnin skal skipuð til tveggja ára í senn en auk þess skal skipunartími fulltrúa menntamálaráðherra og fjármálaráðherra takmarkaður við embættistíma þeirra ráðherra sem skipuðu þá eða tilnefndu.

2. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi og skal stjórn skv. 1. gr. skipuð við gildistöku laganna.

Athugasemdir við lagafrumvarp þetta.


    Frumvarp þetta miðar að breytingu á gildandi ákvæðum um skipunartíma stjórnar Lánasjóðs íslenskra námsmanna. Stjórn sjóðsins er að lögum skipuð af menntamálaráðherra þannig: Einn samkvæmt tilnefningu stúdentaráðs Háskóla Íslands, einn samkvæmt tilnefningu Bandalags íslenskra sérskólanema, einn samkvæmt tilnefningu Sambands íslenskra námsmanna erlendis, einn samkvæmt tilnefningu fjármálaráðuneytisins og tveir án tilnefningar og skal annar þeirra vera formaður stjórnarinnar. Varamenn eru skipaðir með sama hætti. Skipunartíma er þannig háttað að fulltrúar ráðuneytanna eru skipaðir til fjögurra ára en fulltrúar námsmanna til tveggja ára.
    Breyting sú, sem frumvarpið gerir ráð fyrir, felur í sér að stjórn Lánasjóðsins verður öll skipuð til tveggja ára. Umboð stjórnarmanns, sem er fulltrúi ráðherra, fellur þó niður ef sá ráðherra, er skipaði hann eða tilnefndi, lætur af embætti. Hefur þá nýr ráðherra frjálsar hendur ef hann kýs að skipta um fulltrúa.
    Stjórn Lánasjóðs íslenskra námsmanna fer með verkefni sem miklu skipta fyrir framkvæmd stefnu í menntamálum og ríkisfjármálum. Er af þeim sökum nauðsynlegt að fullt trúnaðarsamband sé jafnan milli fulltrúa stjórnvalda í sjóðsstjórninni og hlutaðeigandi ráðherra. Lagabreytingu þeirri, sem hér er gerð tillaga um, er ætlað að tryggja þetta svo sem kostur er.
    Núverandi stjórn Lánasjóðs íslenskra námsmanna hefur lýst sig samþykka þeirri breytingu á lögunum sem 1. gr. frumvarpsins gerir ráð fyrir.

Athugasemdir við einstakar greinar frumvarpsins.


Um 1. gr.


    Í þessari grein felast þær efnisbreytingar sem reifaðar eru í almennum athugasemdum hér að framan.

Um 2. gr.


    Þarfnast ekki skýringa.