Ferill 112. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1989. – 1059 ár frá stofnun Alþingis.
112. löggjafarþing. – 112 . mál.


Sþ.

116. Tillaga til þingsályktunar



um hitalögn í Suðurlandsveg í Hveradalabrekku.

Flm.: Árni Johnsen, Friðrik Sophusson, Eggert Haukdal.



    Alþingi ályktar að fela samgönguráðherra að kanna kostnað og hagkvæmni við hitalögn í Hveradalabrekku á Suðurlandsvegi.

Greinargerð.


    Á Suðurlandsvegi, frá Reykjavík austur fyrir fjall, er slysatíðni mest á vetrum í brekkunni við Skíðaskálann í Hveradölum. Á þessu svæði er mikill jarðhiti og tiltölulega auðveldur aðgangur að honum. Með hitalögn á þessu svæði mundi slysahætta stórminnka og aukið öryggi í umferðinni er ómetanlegt. Reykjavíkurborg hefur á undanförnum árum sett hitalagnir í brattar brekkur sem eru í borgarbyggðinni þar sem hún stendur hæst. Þessi framkvæmd hefur verið með einföldum en áhrifamiklum hætti og brekkur, sem voru stórhættulegar umferð vegna ísingar og snjóa, eru nú árið um kring eins og vegur á sumardegi, en 50–60 gráðu heitt vatn hefur verið notað í þetta öryggiskerfi höfuðborgarinnar.
    Kostnaður á fermetra í hituðum götum Reykjavíkurborgar er um 1.400 kr. miðað við tvö malbikslög. Þá er lagt þunnt malbikslag með raufum fyrir slöngur og síðan annað lag ofan á. Einnig hafa verið fræsaðar raufar í vegina, slöngur lagðar í og slitlag síðan lagt ofan á. Kostnaður við Hveradalabrekku, sem er um 1 km á lengd, gæti því numið um 14 millj. kr. Forvitnilegt er upp á framtíðarmöguleika að gera tilraun sem þessa utan þéttbýlis þar sem saman fer gnótt jarðhita og erfiðleikar á umferðaræð vegna hálku og snjóa.