Ferill 117. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1989. – 1059 ár frá stofnun Alþingis.
112. löggjafarþing. – 117 . mál.


Sþ.

121. Tillaga til þingsályktunar



um sérstakt veiðieftirlitsskip.

Flm.: Árni Johnsen, Matthías Á. Mathiesen, Salome Þorkelsdóttir.



    Alþingi ályktar að skora á ríkisstjórnina að undirbúa nú þegar rekstur sérstaks veiðieftirlitsskips og kaupa eða leigja togara í því skyni eða láta Hafþór sinna því verkefni sem er hið brýnasta í sjávarútvegi Íslendinga í dag vegna smáfiskadráps. Hraðskreitt fiskveiðieftirlitsskip taki til starfa á árinu 1990.

Greinargerð.


    Á vegum sjávarútvegsráðuneytisins starfa 17 menn við veiðieftirlit. Tveir til þrír þeirra eru við störf á skrifstofu, taka á móti skýrslum, svara fyrirspurnum útgerðarmanna um kvóta, reyna að koma upp um kvótasvindl, fylgjast með síldveiðum og fleira. Þriðji eftirlitsmaðurinn starfar fyrir loðnunefnd.
    Þrettán eftirlitsmenn skiptast á að fara út með togurum og fara í hinar ýmsu verstöðvar úti um land.
    Á togurum er reynt að vera með ekki færri en þrjá menn í senn og fer þá einn austur, annar norður og þriðji til Vestfjarða.
    Ætlast er til að lengdarmælingar á þorski séu gerðar minnst tvisvar á dag og oftar ef þurfa þykir. Stærðarmörkin eru að ekki sé meira en 25% af 200 þorska úrtaki undir 55 sm að lengd.
    Í verstöðvum eiga eftirlitsmenn að fylgjast með smáfiski, vigtun fisks, samsetningu á afla dragnótabáta, fjölda neta í sjó (sem er óframkvæmanlegt) og öðru af svipuðum toga.
    Fiskifræðingar Hafrannsóknastofnunar ákveða lokanir eftir tillögum eftirlitsmanna. Níu fiskifræðingar skipta þessu starfi á milli sín og er hver á vakt tíu daga í senn, svo að nýr maður þarf að setja sig inn í málin á tíu daga fresti. Enginn einn aðili hefur það að aðalstarfi að stjórna eftirlitinu.
    Upplýsingaöflun hefur versnað til muna eftir að ríkismatsmenn voru lagðir af og veiðieftirlitsmenn sjávarútvegsráðuneytisins hafa lítinn sem engan tíma til þess að bera saman bækur, miðla upplýsingum hver til annars og gefa góð ráð til aukins árangurs.
    Eftirlitsmaður sem fer á veiðar með togara er algjörlega háður ákvörðunum skipstjóra sem einn ræður ferðinni. Skipstjórinn getur, ef hann vill, breytt ákvörðun sinni, hætt við að veiða þorsk og farið á karfaveiðar austur í Rósagarð eða suður á Reykjaneshrygg.
    Ákvörðun um skyndilokun í viku er tekin eftir því hve mörg prósent eru undir 55 sm, hve mörg skip eru á slóðinni og aflamagni. Ef t.d. fiskur undir 55 sm er undir 40% af 200 þorska úrtaki er talið þrisvar til að fullvissa sig um að fiskur á viðkomandi slóð sé of smár. Ef prósentan er hærri þá þykir ráðlegt að mæla með lokun fyrr. Alltaf er haft samband við fiskifræðing og honum sagðar niðurstöður og á hann að ákveða lokun svæðis.
    Ýmsir annmarkar eru á þessari aðferð og er það helst að þetta gerist ekki nógu fljótt og markvisst og ætla ég að nefna fjögur dæmi:

I.


    Ef menn byrja að veiða mikið á fiskislóð, hvar sem er á fiskimiðum við landið, flýgur fiskisagan um öll mið og flotinn siglir á fullri ferð, allir á þennan stað, tugir skipa.
    Algengt er nú orðið að toga hvert tog allt að fjórum klukkutímum ef góður botn er, festur sjást á plotternum og á tækjum má sjá hvort varpan er ekki eins og hún á að vera.
    Ef togari með eftirlitsmann togar hvert hal í fjóra tíma líða 13 tímar þangað til gögn eru tilbúin til að láta fiskifræðinginn vita. Það getur því verið mikið magn af smáfiski sem kannski 50 skip eru búin að afla þegar til lokunar kemur.
    Svipað þessu sem ég er að lýsa gerðist á Austfjarðamiðum. Ganga af fjögurra ára fiski byrjaði að veiðast í Seyðisfjarðardýpi og gekk suður. Eftirlitsmenn lokuðu einu svæðinu á fætur öðru eftir því sem þeir höfðu upplýsingar. Veiðin færðist sífellt sunnar, alveg suður á Fót. Lokanirnar komu ekki að tilætluðu gagni. En skip sem hefði getað farið út fyrir svæðið hefði komið þarna að góðum notum.

II.


    Skipstjóri með eftirlitsmann um borð hefur tilhneigingu, eftir að hafa aflað upplýsinga um afla og horfur, til að sneiða hjá því að fara þar sem meira er um smáfisk.
    Dæmi um það: Togari siglir út Eyjafjörð, skipstjóri þarf að taka ákvörðun um að fara austur eða vestur er hann kemur út úr firðinum. Togarar á Sléttugrunni láta vita að þorskur sé smár og standist vart mælingu. Hann tekur ákvörðun um að halda vestur í von um að vera í friði. Þeir á Sléttugrunninu halda óáreittir áfram að veiða þann smáa.

III.


    Frétt berst af því að nokkrir togarar séu að fá góðan afla á Rifsbanka. Togarar á Austfjarðamiðum eru að fá lítinn afla. Þeir hífa upp og setja stefnuna norður fyrir Langanes. Stímið er 8–10 tímar. Þá læðir einn skipstjóri því út úr sér á Rifsbankanum að þetta standist varla mælingu. Togarinn með mælingamanninn breytir stefnu út á Brettingsstað. Best að reyna þar. Til hvers er að sigla í flotann bara til þess að loka og þurfa að sigla til baka.

IV.


    Algengast er að þorskur á togaraslóðum fari stækkandi eftir dýpi. Hann er smæstur upp á grunnunum en stækkar eftir því sem dýpkar niður í kantana. Nefna má sem dæmi um mælingu þorsks á Langanesgrunni. Á 115 faðma dýpi voru 30% undir mörkum, 18% á 130 föðmum, 8% á 150 föðmum og 3% á 170 föðmum.
    Þetta vita menn reyndar af reynslunni en fá ekki tækifæri til að komast og mæla þar sem þörfin er þó að mælingamenn viti af skipum. Sum svæði, t.d. Digranesflak, Glettinganesflak og svæði út af Húnaflóa, mættu vera lokuð langtímum saman.
    Það er augljóst að meiri árangur í veiðieftirliti fengist með því að hafa sérstakt skip til að fylgjast með smáfiski og er tilvinnandi að reyna það þá jafnvel fyrst um tíma og taka eftir það ákvörðun um framhaldið.
    Þetta þyrfti að vera ganggott skip (líkt og Hafþór) með veiðarfæri, tæki og búnað, eins og aðrir togarar. Skipið héldi sig á togaraslóðum, tæki prufuhöl, þó aldrei lengri en 90 mínútur í senn, og lokaði svæðum ef niðurstöður mælinga sýndu að fiskur væri of smár, allt að viku í senn. Farið væri og lokuðu svæðin skoðuð og opnuð fyrr ef sú væri raunin að betur horfði með stærð fisks.
    Þegar tími gæfist til frá því að fylgjast með smáfiskinum kannaði skipið önnur svæði, t.d. grálúðumið og djúpkanta, og miðlaði upplýsingum til flotans.
    Til að fá upp í kostnað yrði fiskur seldur á mörkuðum eða settur í gáma, t.d. 1000 tonna afli á 50–70 milljónir. Gæta yrði þess að ekki hlæðust á skipið stjórar og skrifstofulið í landi.

    Það vita allir sem vilja vita að smáfiskadrápið sem stundað er við landið er geigvænlegt, en það er opinbert leyndarmál að á margan hátt er spilað á það kvótakerfi sem nú er við lýði. Þar er smáfiskadrápið verst. Sumar togaraáhafnir eru svo forhertar að þær hafa aldrei séð smáfisk á togaramiðunum þótt áhöfn á skipi sem veiddi á sömu miðum skilaði nær 200 tonnum af undirmálsfiski á land, en sú áhöfn mátti eiga óskiptan smáfiskinn. Sama er að segja um frystitogarana þar sem stórherða þarf eftirlit með veiðum. Sérstakt veiðieftirlitsskip, sem er óháð stjórn annarra en veiðieftirlitsmanna og fiskifræðinga, er spor í rétta átt, mjög tímabært spor, því hvaða gagn er að veiðieftirliti þar sem veiðimaðurinn sjálfur, undir miklu álagi útgerðar og samkeppni, ræður stund, stað og dýpi þegar mæla skal fiskinn.
    Það er stórkostlegt hagsmunamál fyrir þjóðina alla að taka til hendinni nú þegar í þessum efnum, fjölga veiðieftirlitsmönnum og tryggja sjálfstæði veiðieftirlitsins með sérstöku skipi. Í fjárlagafrumvarpinu fyrir árið 1990 er gert ráð fyrir heimild til þess að selja Hafþór en Hafþór er kjörið skip í það verkefni sem hér um ræðir.