Ferill 127. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1989. – 1059 ár frá stofnun Alþingis.
112. löggjafarþing. – 127 . mál.
Nd.
131. Frumvarp til laga
um breyting á lögum um greiðslujöfnun fasteignaveðlána til einstaklinga, nr. 63 26. júní 1985.
Frá fjárhags- og viðskiptanefnd.
1. gr.
6. gr. laganna orðist svo:Með launavísitölu, sem beitt er við framreikning greiðslumarks, sbr. 5. gr., er átt við þá vísitölu sem Hagstofa Íslands reiknar og birtir samkvæmt lögum nr. 89/1989. Launavísitala sú, sem Hagstofan birtir í mánuði hverjum, skal gilda við útreikning greiðslumarks lána frá og með fyrsta degi næsta mánaðar.
2. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.Ákvæði til bráðabirgða.
Launavísitala samkvæmt lögum þessum skal tengd eldri launavísitölu til greiðslujöfnunar fyrsta dag næsta mánaðar eftir gildistöku laga þessara. Hagstofa Íslands skal ákveða og birta opinberlega hvernig þessar vísitölur skulu tengdar.
Greinargerð.
Frumvarp þetta er flutt að beiðni Hagstofu Íslands og í samráði við félagsmálaráðherra.
Í gildandi lögum nr. 63/1985, um greiðslujöfnun fasteignaveðlána einstaklinga, er í 6. gr. kveðið á um „launavísitölu til greiðslujöfnunar“. Þessi vísitala skal að jöfnu samsett úr vísitölu atvinnutekna á mann og vísitölu meðalkauptaxta allra launþega. Launavísitala til greiðslujöfnunar er metin mánaðarlega og nýtt til greiðslujöfnunar opinberra húsnæðislána en ekki í öðru skyni. Undanfarin tvö ár hefur ekki verið hægt að reikna þessa vísitölu í samræmi við fyrirmæli laganna þar sem mánaðarlegar áætlanir um vísitölu atvinnutekna og meðalkauptaxta hafa ekki verið tiltækar. Hagstofan hefur því reist vísitölu þessa á áætlunum um breytingar greiddra launa, einkum dagvinnulauna, að teknu tilliti til samningsbundinna breytinga annarra launaþátta.
Á síðastliðnu vori voru sett almenn lög um launavísitölu, nr. 89/1989. Við umfjöllun málsins í fjárhags- og viðskiptanefndum Alþingis var á það bent af hálfu Hagstofunnar að eftir gildistöku nýrra laga um launavísitölu væri æskilegt að færa ákvæði um gerð launavísitölu til greiðslujöfnunar til samræmis við ný lög um launavísitölu. Hér kemur tvennt til. Annars vegar hefur eins og áður segir ekki verið unnt að fullnægja þeim fyrirmælum um útreikning launavísitölu til greiðslujöfnunar sem fram koma í núgildandi 6. gr. laga nr. 63/1985 og hins vegar er ekki heppilegt að beitt sé mörgum opinberum launavísitölum. Af þessum ástæðum er frumvarp þetta flutt.
Frumvarpið þarfnast ekki sérstakra skýringa, en um gerð hinnar nýju launavísitölu vísast til þeirra skýringa sem fram komu í frumvarpi til laga þar að lútandi (þskj. 361 á 111. löggjafarþingi 1988–89).