Ferill 145. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1989. – 1059 ár frá stofnun Alþingis.
112. löggjafarþing. – 145 . mál.


Sþ.

149. Tillaga til þingsályktunar



um íslenska heilbrigðisáætlun.

(Lögð fyrir Alþingi á 112. löggjafarþingi 1989.)



    Alþingi ályktar að stefna í heilbrigðismálum á Íslandi fram til ársins 2000 skuli verða í samræmi við eftirfarandi heilbrigðisáætlun:

1. INNGANGUR


    Heilbrigði er meðal þeirra lífsgæða sem nú eru mest metin. Heilbrigði er hvort tveggja í senn dýrmætasta eign hvers einstaklings og ein verðmætasta auðlind hverrar þjóðar. Í stofnskrá Sameinuðu þjóðanna segir m.a. að það sé grundvallarréttur hvers manns að fá að njóta bestu heilsu sem völ er á, án tillits til kynþáttar, trúarbragða, stjórnmálaskoðana, efnahagslegra eða félagslegra aðstæðna. Í lögum um heilbrigðisþjónustu frá 1973, nú nr. 59/1983, segir að allir landsmenn skuli eiga kost á fullkomnustu heilbrigðisþjónustu, sem á hverjum tíma eru tök á að veita, til verndar andlegri, líkamlegri og félagslegri heilbrigði. Aðaláherslan er því ekki lögð á lækningar heldur á heilsuvernd. Á undanförnum áratugum hefur heilbrigði Íslendinga gjörbreyst og er nú með því besta sem gerist meðal þjóða. Þrátt fyrir batnandi heilsufar hafa kröfur almennings um aukna heilbrigðisþjónustu stöðugt aukist m.a. vegna nýrra og bættra meðferðarmöguleika og breyttra samfélagsaðstæðna, svo sem fjölgunar aldraðra.
    Heilbrigðishugtakið hefur jafnframt breyst þannig að fólk leitar nú hjálpar heilbrigðisþjónustunnar af öðrum og minni tilefnum en áður.
    Það hefur verið ljóst um nokkurt skeið að lífshættir einstaklinga og umhverfið ráða miklu um heilsufar og framvindu þess. Viðfangsefni heilbrigðisþjónustunnar eru því ekki eingöngu að lækna og hjúkra heldur ekki síður að koma í veg fyrir sjúkdóma. Þetta gerir heilbrigðisþjónustan í samvinnu við fjölda aðila, bæði einstaklingana sjálfa, félög og stofnanir. Heilsufar Íslendinga nú kallar á breyttar aðferðir við skipulagningu og stjórn heilbrigðisþjónustu en ekki síður á breyttar áherslur í heilbrigðisþjónustunni sem aftur gerir aðrar kröfur til heilbrigðisstarfsmanna en verið hefur. Í samræmi við þessar breyttu aðstæður þarf að setja heilbrigðisþjónustunni ný markmið. Í þeim markmiðum verði tekið tillit til þess að:
–      Læknisþjónusta tekur við hinum sjúka og kostar kapps um að bjarga lífi, draga úr þjáningu og örkumlum.
–     Heilsuvernd beinist að þekktri áhættu í umhverfi eða hjá einstaklingnum sjálfum (mengun, reykingum, offitu, of hárri blóðfitu, háþrýstingi o.fl.) og kostar kapps um að útrýma eða draga úr þeirri áhættu eins og frekast er kostur.
–     Heilsurækt miðar að því að gera einstaklingnum kleift að auka hreysti og efla vitund hans og vilja til að viðhalda heilbrigði.
    Heilbrigðismarkmiðið er sett fram til að stuðla að og bæta heilbrigði einstaklingsins. Þessu höfuðmarkmiði má skipta í þrjá þætti:
–     Að bæta árum við lífið. Þetta þýðir að ótímabærum dauðsföllum fækki og lífslíkur aukist.
–     Að bæta heilbrigði við lífið. Þetta þýðir að fólk í framtíðinni eigi fleiri ár heilbrigði og starfsemi, fólk fái færri sjúkdóma og verði sjaldnar fyrir slysum en áður.
–     Að bæta lífi við árin. Þetta þýðir að heilbrigði aukist og að fleira fólki en nú finnist það vera hraust og stjórni starfsdegi sínum þannig að því finnist lífið ríkt af reynslu og breytilegum verkefnum.
    Heilbrigði er hluti af vellíðan einstaklingsins. Menning og fjárhagur getur haft mikil áhrif á heilsufar einstaklinganna. Sjúkdómar eru hluti af lífi hvers manns og fötlun er hluti af lífi margra en hinir sjúku og fötluðu geta einnig notið ánægju lífsins.
    Heilbrigði er að hluta til ákvörðunaratriði einstaklings og fjölskyldna og fullkomin heilbrigðisþjónusta næst aðeins með því móti að þjóðfélagsþegnarnir nýti hana og geri til hennar kröfur.
    Í heilbrigðisþjónustunni á fólkið ekki að líta á sig eingöngu sem neytendur. Hugmyndin er að maðurinn verði þátttakandi og honum sé ljóst hvað hann getur gert fyrir sjálfan sig og hvað heilbrigðisþjónustan getur gert fyrir hann.
    Heilbrigðisþjónustan getur veitt mikla hjálp en án samvinnu við einstaklinginn er hún lítils virði og einstaklingurinn verður að gera sér ljóst að hann er samverkamaður og ekki aðeins neytandi.
    Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin hefur sett fram markmið um heilbrigði allra árið 2000.
    Þau þrjú markmið, sem eru hornsteinar í þessu sambandi, eru:
–     Að stuðla að heilbrigðu líferni.
–     Að draga úr hættum sem valda heilsutjóni.
–     Að reka heilbrigðiskerfi sem þjónar fólkinu.
    Til þess að ná þessum markmiðum þarf, auk heilbrigðisstjórnar, samspil margra þátta, svo sem löggjafar, fjármála, stjórnunar, menntamála, upplýsinga og rannsókna, og árangurinn þarf að meta.

Markmið 1.


    Heilbrigðisáætlun hefur það markmið að bæta heilsufar þjóðarinnar.
    Tilgangur heilbrigðisþjónustunnar er að skapa heilsufarslegt jafnrétti, að bæta árum við lífið, heilbrigði við lífið og lífi við árin.
    Til þess að svo megi verða þarf að tryggja að tekið sé fullt tillit til heilbrigðissjónarmiða í þjóðfélagsumræðunni eftir því sem við á. Einnig að ákvarðanir stjórnvalda séu ekki síður byggðar á vitneskju um heilsufarslegar afleiðingar þeirra ákvarðana en efnahagsleg og menningarleg áhrif. Sérstaklega er áríðandi að gefa gaum að þörfum þeirra sem verst eru settir og þörfum þjóðfélagshópa sem ekki njóta fyllsta jafnréttis til að öðlast heilbrigði eða njóta heilbrigðisþjónustu. Í þessu sambandi er rétt að nefna sérstaklega aldraða og þá sem þjást af langvinnum sjúkdómum sem valda verulegri fötlun.

2. STEFNA Í HEILBRIGÐISMÁLUM


    Á Íslandi hefur heilbrigðisþjónustan lengi verið á ábyrgð ríkisvalds og sveitarfélaga.
    Yfirstjórn heilbrigðismála á Íslandi er í höndum heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytisins og það sér um framkvæmd laga um heilbrigðismál.
    Landlæknisembættið fylgist með heilsufari landsmanna og hefur eftirlit með starfi og starfsaðstöðu heilbrigðisstarfsmanna.
    Heilbrigðismálaráð læknishéraða hafa með höndum stjórn heilbrigðismála, áætlanir um uppbyggingu í heilbrigðismálum og skipulagningu og starf heilbrigðisstofnana undir stjórn héraðslæknis.
    Síðustu hundrað ár hefur verið reynt að fjölga læknismenntuðu fólki á öllum svæðum landsins og síðustu fimmtíu ár hafa einkennst af sérhæfðri uppbyggingu eftir því sem reynsla og menntun hefur gefið tilefni til.
    Síðustu þrjátíu ár hafa einkennst af uppbyggingu stofnana, einkum sjúkrahúsa.
    Lögin um heilsuverndarstöðvar, sem sett voru árið 1944, skiptu sköpum á
sínum tíma í þjónustu ungbarna og mæðraverndar.
    Á tímabili var læknaskortur í landinu og þess gætti mjög í þeim tillögum sem settar voru fram um 1970, en nú er svo komið að læknafjöldi á Íslandi er meiri en þarf til þess að sinna heilbrigðisþjónustu í landinu.
    Lögin um heilbrigðisþjónustu 1973 skiptu verulegu máli í sambandi við að koma upp nútímalegri heilbrigðisþjónustu um land allt og má segja að þjónusta samkvæmt þeim lögum nái nú til alls landsins nema Reykjavíkur.
    Það sem einkennir nú heilbrigðisþjónustu á Íslandi er að sjúkrarúmafjöldi er meiri en víðast annars staðar en skortur hjúkrunarfræðinga og sjúkraliða, ásamt fjárskorti, veldur því að stofnanir eru ekki reknar í þeim mæli sem hægt væri.
    Heilbrigðisþjónusta á Íslandi hefur síðan lög um almannatryggingar komust á verið greidd af opinberum aðilum að mestu leyti. Enginn Íslendingur þarf að greiða beint fyrir dvöl á sjúkrahúsi og lítilræði þarf að greiða fyrir aðra heilbrigðisþjónustu.
    Alþingi þarf reglulega að gera framkvæmdaáætlun í heilbrigðismálum. Stofnanir ríkis, sveitarfélaga og aðrir þeir aðilar, sem að heilbrigðismálum starfa, hafi hana síðan til leiðsagnar. Hæfilegt er að slík áætlun verði endurskoðuð á fimm ára fresti.

Markmið 2.


    Verkaskiptingu milli ríkis og sveitarfélaga um rekstur heilbrigðisþjónustu verði breytt á þann veg að saman fari ábyrgð á fjármögnun og rekstri.
    Jafnframt verði ríki og sveitarfélögum heimilt að gera samninga við félagasamtök um að annast afmarkaða rekstrarþætti sé það hagkvæmt.
    Heilbrigðisráðherra skal annað hvert ár gera Alþingi grein fyrir framkvæmd heilbrigðisáætlunar.

3. STEFNA Í HEILSUGÆSLU- OG SJÚKRAHÚSMÁLUM


3.1 Heilsugæslustöðvar.
    Heilbrigðislöggjöfin frá árinu 1973 var stefnumarkandi í því að byggja upp heilsugæslu í landinu öllu. Uppbyggingin hefur náð til allra landshluta en þó verið minnst á Reykjavíkursvæðinu og er þar mörgum verkefnum ólokið á þessu sviði.
    Nauðsynlegt er að gera sérstakt átak til þess að ljúka því verkefni að byggja upp heilsugæslustöðvar sem þjóni öllum íbúum höfuðborgarsvæðisins og stefna þarf að því að allir landsmenn hafi aðgang að heilsugæslustöð árið 1995.
    Helstu markmiðin með uppbyggingu heilsugæslustöðva hafa verið að auka heilsuvernd, heimilislækningar og heimahjúkrun. Sérstök áhersla hefur verið lögð á heilsuverndarstarf sem hafði staðnað í þeirri mynd sem það áður var. Í dreifbýli hefur þjónusta heilsugæslustöðvanna aukist og öryggið er orðið eins og aðstæður leyfa. Í þéttbýli eru heilsugæslustöðvarnar íbúum til mikils hagræðis. Þær veita þjónustu sem áður þurfti að sækja á margar stofnanir og oft langt frá heimili.
    Síðasti áratugur hefur einkennst af uppbyggingu heilsugæslustöðva og fjölgun starfsfólks í heilbrigðisstétt um land allt.
    Erfitt er að meta árangur þessa starfs en ljóst er að íbúar í dreifbýli landsins una betur við hlutskipti sitt nú en fyrir 15 árum.
    Á síðustu árum hefur tölvuvæðing heilsugæslustöðvanna komist vel áleiðis. Vegna hennar mun brátt verða unnt að meta og sýna hvaða árangur hefur náðst fyrir unga og aldna og líklegt er að uppbygging heilsugæslunnar eigi eftir að skila miklum árangri í heilbrigðisþjónustu aldraðra í framtíðinni.

Markmið 3.


    Heilsugæslustöðvar skulu vera hornsteinar heilsugæslunnar hver á sínu starfssvæði í samvinnu við göngudeildir sjúkrahúsa og sérhæfðar stofnanir.
    Þjónusta heilsugæslustöðva skal ná til allra landsmanna árið 1995. Leitast skal við að auka samstarf heilsugæslunnar við aðra aðila, svo sem íþrótta- og fræðsluyfirvöld og félagsmálastofnanir í því skyni að auka heilsuvernd og heilsurækt.

3.2 Sjúkrahús.
    Dýrasti þáttur heilbrigðisþjónustu á Íslandi er sjúkrahúsþjónusta og er fjöldi sjúkrarúma vegna bráðaþjónustu meiri hér en víðast hvar annars staðar.
    Ekki virðist þörf á fjölgun almennra sjúkrarúma á sjúkrahúsum á næstu árum en fjölga ber rúmum á hjúkrunarheimilum þannig að aldraðir sjúkir geti dvalist sem næst heimilum sínum. Til að tryggja besta nýtingu hjúkrunarrýmis fyrir aldraða þarf vistun á hjúkrunarheimilum til langframa að vera háð því mati sérfróðra aðila að vistun sé óhjákvæmileg.
    Auka þarf göngudeilda- og dagdeildaþjónustu í þeim tilgangi að stytta legutíma og fækka innlögnum.

Markmið 4.


    Setja má reglur um flokkun sjúkrastofnana, verkaskiptingu og starfssvið, og gera þar skýran greinarmun á sérhæfðu sjúkrahúsi, almennu sjúkrahúsi og hjúkrunarheimili.
    Setja má reglur um þjónustusvæði einstakra sjúkrastofnana og um mönnun sjúkrastofnana.

4. HEILBRIGÐIR LÍFSHÆTTIR


    Áróður fyrir heilbrigðum lífsháttum er nauðsyn í nútímaþjóðfélagi enda hefur verið sýnt fram á að venjur og lífshættir hafa veruleg og oft úrslitaáhrif á heilbrigði einstaklingsins.
    Of lítið hefur verið gert að því af heilbrigðisyfirvöldum á Íslandi að taka jákvæða og hvetjandi afstöðu í þessum málum.
    Sérstök áhersla hefur þó verið lögð á þetta allra síðustu árin og því eru þessi heilbrigðismarkmið sett fram.
    Allt starf að heilbrigðisfræðslu geldur þess hve lítið fjármagn fæst til að gera fræðsluefni og hvað því fjármagni er dreift til margra aðila. Fjöldi laga og reglugerða, sem heyra undir mismunandi ráðuneyti, fjallar um heilbrigðisfræðslu í einhverri mynd en lítið verður úr framkvæmdum. Að undirbúa fræðsluefni er vandasamt verk þar sem saman þarf að fara þekking á viðfangsefninu, tæknikunnátta til skýrrar framsetningar og kunnátta í dreifingu og samskiptum við fjölmiðla.
    Stofnanir og ráðuneyti, sem með þessi mál fara nú, hafa yfirleitt ekki yfir að ráða þeim mannafla sem þarf til heilbrigðisfræðslu, frá hugmynd til framkvæmdar. Starfið verður því oft handahófskennt og árangur minni en ella.

Markmið 5.


    Koma skal á fót stofnun forvarna- og heilbrigðisfræðslu. Þessi stofnun skal annast ráðgjöf um heilbrigða lífshætti, gerð fræðsluefnis og endurmenntun starfsliðs í heilsugæslu. Til stofnunarinnar færast m.a. áfengisvarnir, manneldismál, smitsjúkdómavarnir, tannvernd, tóbaksvarnir og CINDI-verkefnið.
    Til að stuðla að heilbrigðum lífsháttum verður lögð á það áhersla að starfslið heilsugæslustöðva og sjúkrahúsa fái grundvallarmenntun og kennslu í heilbrigðisfræðslu og kennslu í heilsufræði til þess að geta miðlað þeim sem þangað leita.
    Hefja skal samvinnu við skóla og félög um að þau taki þátt í herferð fyrir heilbrigðari lífsháttum fjölskyldna og einstaklinga.

4.1 Manneldismarkmið og matvælaframleiðsla.
    Fram á þessa öld veltu menn ekki fyrir sér manneldi á Íslandi að öðru leyti en því hvort allir hefðu mat til næsta máls.
    Nú er þessu öðru vísi háttað. Allir hafa til hnífs og skeiðar og það er ástæða til að gefa ráð um hvaða fæða er holl og hvaða fæða er óholl.
    Almenningur neytir yfirleitt of mikillar fæðu og þess vegna er offita verulegt vandamál á Íslandi. Fæðan á að innihalda nauðsynleg efni til vaxtar, viðhalds, endurnýjunar og brennslu. Hún þarf einnig að vera hættulaus og eftirlit með aukefnum í fæðu er mikilvægt.
    Talið er að leiðbeina þurfi fólki um fæðuval, einkum af þeim ástæðum að minnka þurfi fitu, sykur og matarsalt í fæðunni. Til viðbótar við fræðslu um þessi efni má með verðstýringu hafa áhrif á neysluvenjur.

Markmið 6.


    Enda þótt næringarástand þjóðarinnar sé talið gott þarf að tryggja að allir fái nægan mat og að í honum séu rétt hlutföll frá næringarfræðilegu sjónarmiði.
    Leggja skal áherslu á framleiðslu og framboð hollrar innlendrar fæðu. Ýta þarf undir neyslu kornmetis, fisks, fitulítils kjöts, kartaflna, ávaxta og grænmetis.
    Með fræðslu og verðstýringu skal stuðla að neyslu mjólkurvara með lágu fituinnihaldi. Á sama hátt skal stuðla að minni neyslu sætinda og matar sem inniheldur mikið af sykri og salti.
    Auðvelda þarf fæðuval með áberandi og vel skiljanlegum upplýsingum um vörur.
    Efla þarf eftirlit með aukefnum í matvælum.
    Á grundvelli upplýsinga manneldisráðs hafa verið sett fram matvælaframleiðslu- og manneldismarkmið. Setja skal fram ný slík markmið fyrir árið 1995 og þau síðan endurnýjuð á fimm ára fresti. Markmið þessi skulu hafa að geyma ábendingar um verðlagningu, framleiðslu og aðrar þær upplýsingar sem eru nauðsynlegar til þess að þjóðin snúi sér að heilbrigðara mataræði en nú tíðkast.

4.2 Skaðsemi tóbaksnotkunar.
    Á Íslandi er áætlað að 200 til 300 manns deyi á hverju ári af tóbaksreykingum, beinum og óbeinum. Þess vegna er talið eðlilegt að stuðla markvisst að útrýmingu tóbaksneyslu. Með verðstýringu má hafa áhrif á neyslu tóbaks en óeðlilegt er að hækkun tóbaksverðs hafi áhrif á framfærsluvísitölu.

Markmið 7.


    Markmiðið er að draga úr og helst útrýma neyslu tóbaks með því að halda fólki frá reykingum og fá þá sem reykja til að hætta. Til þess að ná þessu markmiði verður að auka bæði upplýsingar og áróður og taka til sérstakrar íhugunar tengsl milli reykinga og annarra lífshátta. Minnka verður verulega og helst útiloka að fólk, sem ekki reykir, þurfi að líða tóbaksreyk. Verð á tóbaksvörum skal hækka árlega umfram almennar verðhækkanir. Útiloka þarf áhrif innflytjenda á útsöluverð tóbaksvara.

4.3 Skaðleg áhrif áfengis.
    Enda þótt heildarnotkun áfengis á Íslandi sé minni en í flestum löndum er það staðreynd að óæskileg heilsufarsleg áhrif áfengisneyslu eru mikil á Íslandi.
    Þess vegna verður að vinna að því að minnka heildaráfengisneyslu og útrýma ofneyslu. Liður í því er verðlagning áfengis. Koma þarf í veg fyrir að hækkanir á verði áfengis hafi áhrif á framfærsluvísitölu.

Markmið 8.


    Almenna neyslu áfengis þarf að minnka og útrýma ofneyslu. Leggja skal sérstaka áherslu á upplýsingastarfsemi og hefja markvisst áróðursstríð gegn slæmum drykkjusiðum með auglýsingum, stuttum sjónvarpsþáttum, slagorðum o.fl.
    Markmiðið er að minnka og eyða að lokum alveg óæskilegum heilsufarslegum áhrifum áfengisnotkunar. Auka skal rágjöf sem heilbrigðisþjónustan veitir og efla þarf starf að því að greina áfengisvanda á byrjunarstigi.
    Stofna þarf til samvinnu milli heilbrigðisyfirvalda og félagasamtaka sem hafa bindindi á stefnuskrá sinni og reyna að efla starf þessara samtaka.
    Verð áfengra drykkja þarf að hækka á næstu fimm árum þannig að verðið hækki árlega umfram almennar verðhækkanir og sterkt áfengi meira en létt vín og bjór.
    Gera skal áætlun til að ná þessum markmiðum og skal hún endurskoðuð á fimm ára fresti.

4.4 Geðheilsa.
    Vandamál tengd geðheilsu og persónulegum tengslum manna eru fjölmörg og virðast fara vaxandi. Orsakir alvarlegra geðsjúkdóma eru ekki þekktar nema að litlu leyti. Forvarnir byggjast því aðallega á því að veita meðferð og aðra aðstoð eins fljótt og auðið er eftir að búið er að greina vandann.
    Vaxandi athygli beinist að streitu ýmiss konar og þeim áhrifum sem hún hefur á andlega líðan og líkamlega sjúkdóma. Í kjölfar frekari rannsókna má að líkindum grípa síðar til sértækra forvarna.

Markmið 9.


    Til að minnka líkur á geðrænum vandamálum á að auka möguleika fólks til persónulegra tengsla. Til þess að ná þeim markmiðum þarf að auka menntun, leiðbeiningar og hjálp í vandasömum tilvikum.
    Það þarf að aðlaga heilbrigðisþjónustuna þannig að hún hjálpi fólki að fást við vandamál daglegs lífs og jafnframt þarf að auka og bæta félagslega ráðgjöf af hálfu opinberra aðila og félagasamtaka. Gera þarf aðgengilegar upplýsingar um þá þætti sem áhrif hafa á geðheilsu einstaklinga.
    Þeir sem eiga við langvarandi veikindi að stríða, svo og fatlaðir og aldraðir, þurfa sérstakrar hjálpar við til þess að ná og halda tengslum við samfélagið og annað fólk.

4.5 Líkamsrækt og þjálfun.
    Menn eru sammála um að líkamsrækt og líkamleg þjálfun sé undirstaða heilbrigði. Líkamleg þjálfun er nauðsynleg fyrir alla aldurshópa. Breyttar þjóðfélagsaðstæður, atvinnuhættir og færri áreynslutækifæri gera meiri kröfur um líkamsrækt og þjálfun fyrir alla aldurshópa en áður.

Markmið 10.


    Það þarf að gefa þjóðfélagsþegnum fleiri og meiri tækifæri til heilbrigðrar hreyfingar en nú er.
    Efla þarf aðstöðu almennings til íþróttaiðkana innan dyra og byggja í því skyni almenningsíþróttahús eða samnýta betur en nú er tiltæk íþróttamannvirki. Einnig þarf að gefa gaum að því að fólk fái tækifæri til að hreyfa sig utan dyra og setja upp sérstakar gangbrautir og hjólreiðabrautir í þéttbýli.
    Skipulagsmálum skal haga þannig að fólk, einkum það eldra og þeir sem eru fatlaðir, geti notið umhverfisins með hreyfingu og þjálfun utan dyra.

5. HEILBRIGÐISEFTIRLIT OG UMHVERFISVERND


    Tilvist mannkyns er háð því að eðlilegt jafnvægi haldist í sambýli manns og náttúru. Ómenguð náttúra er ein forsenda andlegrar, líkamlegrar og félagslegrar vellíðunar mannsins.
    Heilbrigði hans er háð þeirri fæðu sem hann neytir og því umhverfi sem hann lifir og starfar í. Sífellt þarf að meta hvort heilbrigði manna er hætta búin af nánasta umhverfi, svo og neyslu- og nauðsynjavörum.
    Heilbrigðis- og umhverfiseftirlit á að stuðla að heilsusamlegu umhverfi innan húss og utan, ómenguðu lofti, láði og legi, heilnæmu neysluvatni, matvælum og öðrum neysluvörum, svo og óskaðlegum nauðsynjavörum.
    Hlutverk umhverfis- og heilbrigðiseftirlits er fyrst og fremst fræðsla og upplýsingar um þessi mál og að sjá um að farið sé að lögum og reglum er varða almenna hollustuhætti og heilbrigðiseftirlit og aðbúnað og öryggi á vinnustöðum og að vinna að betri heilsuvernd og mengunarvörnum.
    Stýring þessara mála með lögum og reglugerðum er nauðsynleg og fræðsla og samvinna eru mikilvægir þættir.

Markmið 11.


    Markmið heilbrigðis- og umhverfiseftirlits er að stuðla að líkamlegri og andlegri velferð manna með því að fylgjast með andlegum, líffræðilegum, eðlisfræðilegum og efnafræðilegum áhættuþáttum í umhverfinu og draga úr áhrifum þeirra.
    Stýring þessara mála með sérstökum lögum og reglugerðum kann að vera nauðsynleg, en megináhersla skal lögð á fræðslu og samvinnu fremur en valdboð.
    Fullnægjandi sérfræðiþekking starfsmanna er nauðsynleg við störf að heilbrigðis- og umhverfiseftirliti og verkefni þurfa að vera við hæfi. Þannig skal miðað við það að á hverju heilbrigðiseftirlitssvæði verði að jafnaði einn heilbrigðisfulltrúi á hverja 7000 íbúa eða brot úr þeirri tölu.

5.1 Neyslu- og nauðsynjavörur.
    Með hinum öru þjóðfélagsbreytingum síðustu ára hefur framleiðsla og innflutningur tilbúinna matvæla og annarra tilbúinna neysluvara stóraukist og neysluvenjur fólks breyst verulega. Fjölbreytni neyslu- og nauðsynjavara er mun meiri en áður og hefur áhættuþáttum í sambandi við notkun þeirra fjölgað.
    Þessir þættir varða fyrst og fremst skaðlegar örverur, aukefni, lyfjaleifar í neysluvörum, svo og eiturefni og hættuleg efni í nauðsynjavörum. Stjórnvöld þurfa að meta þessa áhættuþætti, gera viðeigandi ráðstafanir og sjá til þess að almenningur fái sem bestar upplýsingar.

Markmið 12.


    Leggja skal áherslu á eftirlit og grunnrannsóknir varðandi heilnæmi neysluvatns, matvæla og annarra neysluvara.
    Þann árangur, sem náðst hefur í smitsjúkdómavörnum, skal bæta með því að auka almennar varnaðarráðstafanir með auknum ónæmisaðgerðum. Jafnóðum og ný og nothæf bóluefni verða til fyrir smitsjúkdóma skal skipuleggja ónæmisaðgerðir gegn þeim.
    Efla skal rannsóknir og eftirlit til að upplýsa orsakir matarsýkinga og matareitrana. Gera skal ráðstafanir til að koma í veg fyrir þær.
    Hefja skal markvissar þjónusturannsóknir og eftirlit með efnisþáttum, aukefnum, eiturefnum og aðskotaefnum í neysluvörum.

Markmið 13.


    Til að bægja frá þeirri heilbrigðishættu, sem stafar af eiturefnum og hættulegum efnum í nauðsynjavörum, skal koma í veg fyrir að slíkum vörum verði dreift.
    Með viðeigandi ráðstöfunum skal einnig stefnt að því að nauðsynjavörur verði óskaðlegar með tilliti til annarra áhættuþátta, svo sem af völdum hönnunar sem gæti leitt til meiðsla eða kvilla.

5.2 Hávaða- og geislavarnir.
    Hávaði frá umferð og atvinnurekstri, jónandi geislun frá lækningatækjum og notkun kjarnorku og ekki jónandi geislun getur valdið heilsutjóni sem brýnt er að koma í veg fyrir.

Markmið 14.


    Leggja skal áherslu á það að sú geislun, sem fólk verður fyrir, sé í lágmarki.
    Notkun röntgentækja skal stillt í hóf og efla ber fræðslu um ekki jónandi geislun, t.d. við sólböð og notkun sólarlampa.
    Auka skal eftirlit með geislavirkni í matvælum og umhverfi. Við innflutningseftirlit skal þess gætt að geislavirkar neysluvörur komist ekki á markað.
    Áhersla skal lögð á að draga úr hávaða frá umferð og atvinnurekstri og áhrifum hans.
    Að því skal stefnt að við skipulag byggðar verði þess gætt að hávaði af völdum umferðar og hvers konar starfsemi valdi hvergi heilsutjóni né verulegu ónæði eða óþægindum.

5.3 Mengunarvarnir.
    Vandamál vegna mengunar hér á landi eru enn ekki eins mikil og í ýmsum öðrum tæknivæddum ríkjum, en nú þegar má sjá blikur á lofti.
    Tugir þúsunda efna og efnasambanda eru í notkun eða myndast við ýmiss konar starfsemi. Mengun af völdum margra þessara efna getur skapað heilbrigðishættu og leitt til röskunar lífríkis. Stöðugt bætist við ný vitneskja um heilbrigðisáhættu af völdum þessara efna og um áhrif þeirra á vistkerfi vatna, sjávar, lands og lofts.
    Með aukinni fólksfjölgun, þéttbýli, velmegun og tæknivæðingu eykst efnamengun umhverfisins bæði að magni og fjölbreytni.
    Stjórnvöld þurfa ávallt að vera á verði til þess að geta metið hugsanleg áhrif mengunarinnar og gera viðeigandi ráðstafanir.

Markmið 15.


    Koma skal í veg fyrir umhverfismengun eins og frekast er kostur.
    Fylgjast skal með sem flestum mengunarþáttum um allt land. Enn fremur skal reynt að meta þá mengun sem berst til landsins með vindum og hafstraumum.
    Áherslu skal leggja á að draga úr mengun af völdum brennslu eldsneytis í ökutækjum og í iðnaði og mengun vatna og sjávar af völdum fiskeldis.
    Frágangur skolpútrása skal stórlega bættur og að því verði stefnt að allt skolp frá þéttbýli verði grófhreinsað ef það er leitt til sjávar. Fullkomnari hreinsun verði beitt við aðrar aðstæður.
    Að því skal stefnt að við skipulag byggðar sé ávallt gert ráð fyrir fullnægjandi lausn frárennslismála.
    Þær aðferðir, sem notaðar eru við losun úrgangs, verði bættar og stefnt skal að því að endurvinna úrgang þar sem það er framkvæmanlegt.
    Loftmengun skal athuga sérstaklega og setja loftgæðastaðla. Loftræsting í almennum byggingum og á vinnustöðum skal athuguð sérstaklega. Þá skal herða eftirlit með og setja reglur um byggingarefni sem nota má til innréttinga á íbúðarhúsnæði og vinnuhúsnæði og þau efni sem notuð eru í húsgögn til þess að tryggja heilnæmi innilofts.

5.4 Vinnuvernd.
    Breytingar í þjóðfélags- og framleiðsluháttum hafa gert það að verkum að atvinnuhættir hafa breyst verulega. Þessi þróun hefur verið svo hröð að ekki hefur verið tekið nægilegt tillit til einstaklingsins á vinnustað. Það endurspeglast m.a. í streitu, óheppilegu líkamsálagi, hávaðamengun, aukinni slysahættu og hættu á skaðlegum áhrifum efna.

Markmið 16.


    Stefnt skal að fullnægjandi aðbúnaði á vinnustöðum til að fækka alvarlegum vinnuslysum um a.m.k. fjórðung fram til ársins 2000.
    Stefnt skal að því að gera áætlun um vinnuvernd og hrinda henni í framkvæmd þannig að brýnustu verkefni fái forgang.
    Gæta þarf bæði að geðrænum og líkamlegum heilbrigðisvandamálum sem tengd eru vinnu. Gera þarf heilsugæslustöðvar virkari á þessu sviði.
    Leggja skal áherslu á að framfylgt sé reglum um hávaðavarnir á vinnustað og heyrnareftirlit starfsmanna.
    Stefnt skal að því að minnka verulega áhrif skaðlegra efna við vinnu.

5.5 Slysavarnir.
    Slys eru vaxandi heilbrigðisvandamál á Íslandi og hafa veruleg áhrif á kostnað þjóðfélagsins og afkomu einstaklinganna. Slys á börnum og unglingum eru allt of tíð hér á landi.
    Unnt er að koma í veg fyrir slys með fræðslu og ráðgjöf, enn fremur með löggjöf, svo sem vinnulöggjöf og umferðarlögum.

Markmið 17.


    Stefnt skal að því að fækka vinnuslysum, umferðarslysum, slysum á sjó, á heimilum, í skólum, í íþróttum og í frístundum.
    Stefnt skal að því að draga úr slysum vegna áfengis- og vímuefnanotkunar.

6. ÞRÓUN HEILBRIGÐISKERFISINS


    Heilbrigðisþjónustu þarf að byggja þannig upp að hún hvetji alla þegna þjóðfélagsins til heilsuverndar og heilsuræktar. Hún þarf enn fremur að veita þeim jafnan aðgang að forvörnum sjúkdóma, greiningu sjúkdóma á byrjunarstigi, markvissri meðferð og endurhæfingu vegna langvinnra sjúkdóma og fötlunar, jafnframt sem mestu frjálsræði til þess að velja sínar eigin leiðir til heilbrigðs lífs. Þjónustuna ber að skipuleggja á grundvelli ábyrgðar fólks á eigin heilbrigði, en einnig á grundvelli jafnréttis og samábyrgðar.
    Góð heilbrigðisþjónusta:
–     er sveigjanleg til að mæta breytilegum þörfum fólks,
–     eflir ábyrgð fólks á eigin heilbrigði,
–     nýtir vel fjármuni og er ekki ofviða efnahag,
–     þjónar öllum jafnt óháð aldri, kyni, tekjum, stöðu eða búsetu,
–     er samfelld og slítur ekki einstaklinginn úr samhengi við fjölskyldu sína og umhverfi,
–     byggir á bestu þekkingu á eðli heilbrigðis og sjúkdóma.
    Þegar rætt er um heilbrigðiskerfið má greina mismunandi stig þess eftir sérhæfingu:
–     Stig sjálfshjálpar og hjálpar sem veitt er af vandamönnum og vinum.
–     Stig almennrar heilbrigðisþjónustu veittrar af þeim sem hafa hlotið til þess menntun og hafa af því atvinnu.
–     Stig sérhæfðrar þjónustu sem oft er veitt samkvæmt tilvísun frá fyrri stigum.
–     Stig mjög sérhæfðrar þjónustu sem einungis er unnt að veita á landsvísu og í sumum tilvikum þarf að sækja hana til annarra landa.
    Í þróun og uppbyggingu heilbrigðiskerfisins á Íslandi hefur sérstök áhersla verið lögð á heilsugæslukerfið annars vegar og uppbyggingu sérhæfðrar sérfræðiþjónustu hins vegar.
    Þátt í þessu taka ríkisvald, sveitarstjórnir, félagasamtök (sjálfseignarstofnanir) og einstaklingar.
    Heilsugæslukerfið hefur verið byggt upp um landið allt og er lengra komið á strjálbýlissvæðum. Hins vegar er sérfræðiþjónustan mun meiri á þéttbýlissvæðunum. Stefnt hefur verið að uppbyggingu sérfræðiþjónustu á Akureyri, auk Reykjavíkur.
    Sérfræðiþjónusta tannlækna, sérfræðinga sem vinna utan sjúkrahúsa, atvinnusjúkdómavarna, sjúkraþjálfunar og endurhæfingar eru mikilvægur þáttur heilsugæsluþjónustunnar.

Markmið 18.


    Í þróun heilbrigðisþjónustunnar skal sérstök áhersla lögð á heilsugæslu. Sérfræðiþjónustu skal haldið á því háa stigi sem hún er á nú.
    Markvisst skal dregið úr þeim mismun sem enn er á möguleikum fólks til heilbrigðisþjónustu eftir búsetu.
    Starfsliði í heilbrigðisþjónustu mun þurfa að fjölga bæði til að sinna þeim nýju verkefnum sem ráð er fyrir gert að tekin verði upp og auknum verkefnum á öðrum sviðum. Hér vega þungt aukin áhersla á forvarnir annars vegar og hins vegar sú staðreynd að Íslendingar sem þjóð eru að eldast.

Markmið 19.


    Stefnt skal að því að gera heilbrigðisþjónustuna persónulegri og þjálli en hún er nú. Einnig skal reynt að hafa meðferð samfellda þannig að sjúklingar geti ávallt leitað sama læknis þegar um langvarandi meðferð er að ræða.

6.1 Mönnun og starfsemi heilsugæslustöðva.
    Aukin áhersla á forvarnir og heilbrigðisfræðslu og meiri hjúkrunarþjónusta hefur í för með sér þörf fyrir aukinn fjölda starfsmanna í heilsugæslu. Þörf er á auknum upplýsingum um heilsurækt, heilbrigðisviðhorf og lífshætti íbúa heilsugæsluumdæmanna.

Markmið 20.


    Ný áætlun skal gerð um nauðsynlega mönnun á hverri heilsugæslustöð. Áætlunin skal byggjast á skipulegri upplýsingaöflun um starfssvæði hverrar stöðvar (svæðisgreiningu) sem taki tillit til eftirtalinna þátta: íbúafjölda, aldursskiptingar, fjölda íbúa með langvinna sjúkdóma og/eða fötlun, fæðingafjölda, stærð skóla og stærð og eðli atvinnufyrirtækja. Aldrei skal þó vera færri en einn heilsugæslulæknir og einn hjúkrunarfræðingur á hverja 1000 íbúa eða brot úr þeirri tölu á heilsugæslustöðvum í dreifbýli. Í þéttbýli skal vera einn læknir og einn hjúkrunarfræðingur á hverja 1500 íbúa. Annað sérmenntað starfslið ákvarðast af aðstæðum á hverjum stað.
    Ákvarðanir um forvarnaaðgerðir í hverju heilsugæsluumdæmi skal byggja á upplýsingum um lífshætti, viðhorf til heilbrigðis, slysatíðni og ýmsa áhættuþætti heilsutjóns hjá íbúum viðkomandi svæðis.

Markmið 21.


    Fyrir árið 1995 skal vera völ á sérfræðiþjónustu á öllum stærri heilsugæslustöðvum. Skal þetta gert með skipulögðum ferðum sérfræðinga og jafnvel ráðningu sérfræðinga.

Markmið 22.


    Stefnt skal að því að endurhæfingarstarfsemi verði í hverju heilsugæsluumdæmi annaðhvort við heilsugæslustöð eða sjúkrahús. Sérhæfð endurhæfingarstarfsemi skal vera í Reykjavík og nágrenni og á Akureyri.
    Endurhæfingarstarfsemi þarf að fela í sér fræðslu og fyrirbyggjandi þjálfun fyrir einstaklinga, sérstaka hópa og almenning auk endurhæfingar vegna afleiðinga sjúkdóma og slysa. Endurhæfing í forvarnaskyni skal sniðin við hæfi fólks á öllum aldri og veitt í heimahúsum, skólum og á vinnustöðum auk heilbrigðisstofnana.

6.2 Tannheilsa.
    Á síðustu árum hefur orðið veruleg fjölgun tannlækna og er fjöldi þeirra nú svipaður hér á landi miðað við fjölda íbúa og annars staðar á Norðurlöndum. Jafnframt hefur þáttur hins opinbera í kostnaði við tannviðgerðir barna og unglinga aukist. Þrátt fyrir þetta er ljóst að árangur í baráttunni gegn tannskemmdum er mun lakari hér á landi en í nágrannalöndum. Hluti af skýringunni er að ekki hefur verið lögð næg áhersla á varnir gegn tannskemmdum samhliða aukinni og bættri viðgerðarþjónustu. Í lögum um heilbrigðisþjónustu frá 1973 var gert ráð fyrir tannheilsugæslu, forvörnum og tannviðgerðum á heilsugæslustöðvum. Af því hefur ekki orðið. Síðustu árin hafa veruleg skref verið stigin til aukinnar tannverndar á vegum heilbrigðisráðuneytisins og framlög Tannverndarsjóðs í þessu skyni aukin.

Markmið 23.


    Sérstakt átak skal gera til að bæta tannheilsu þjóðarinnar. Kannaðar skulu leiðir til að auka verulega varnir gegn tannskemmdum. Huga þarf að skipulagi tannheilsugæslu með það fyrir augum að áherslur séu í samræmi við meginmarkmið um bætta tannheilsu almennings. Er þá bæði átt við greiðslur hins opinbera og samræmdar aðgerðir til að draga úr tannskemmdum. Sérstaklega þarf að kanna hvernig megi tryggja betur en nú er að tannheilsugæsla sé hluti af almennri heilsugæslu og starfsemi heilsugæslustöðva.

6.3 Sérfræðiþjónusta sjúkrahúsa.
    Markmið sérfræðiþjónustu sjúkrahúsa er að sjá fyrir þeirri sérhæfðu þjónustu sem er nauðsynleg til þess að taka við þeim einstaklingum sem heilsugæslan getur ekki sinnt.

Markmið 24.


    Gæðum sérfræðiþjónustu skal haldið og þau aukin eftir því sem kostur er.
    Hlutverk sjúkrahúsanna í Reykjavík og á Akureyri skulu skilgreind sérstaklega, svo og annarra sjúkrahúsa utan Reykjavíkur þar sem sérfræðingar starfa.
    Tengsl milli sérfræðiþjónustu sjúkrahúsa og heilsugæslustöðva skulu aukin og bein tengsl tekin upp milli heilsugæslustöðva og sjúkrahúsa að þessu leyti.
    Beinum tengslum verði komi á milli sérfræðinga sem starfa á sjúkrahúsum í Reykjavík og á Akureyri og heilsugæsluumdæma þannig að ákveðið sjúkrahús hafi umsjón með sérfræðiþjónustu á ákveðnu heilsugæslusvæði.
    Göngudeildaþjónusta sjúkrahúsa skal skipulögð og efld.

6.4 Geðlækningar.
    Geðlæknisþjónustan hefur á seinni árum tekið verulegum breytingum. Geðdeildir eru nú við þrjú af stærstu sjúkrahúsum landsins, Landspítala, Borgarspítala og sú nýjasta við Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri. Unglingageðdeild hefur tekið til starfa í Reykjavík. Aðbúnaður sjúklinga og starfsfólks hefur víðast hvar tekið stakkaskiptum. Aukið framboð er á sérhæfðri geðlæknisþjónustu utan stofnana. Mikil fjölgun hefur orðið á meðferðarplássum á stofnunum fyrir einstaklinga sem eiga við vandamál að stríða vegna ofneyslu áfengis eða annarra vímuefna. Er svo komið að meðferðarframboð er á því sviði mun meira en þekkist annars staðar.
    Skortur er á aðstöðu á stofnunum fyrir þá sem eru haldnir alvarlegum elliglöpum. Halda þarf áfram uppbyggingu á endurhæfingaraðstöðu fyrir þá sem eru haldnir alvarlegum geðsjúkdómum og auka möguleika þeirra til að geta búið utan sjúkrahúsa. Bið er eftir þjónustu barnageðlækna, sérlega ef um minni háttar vandamál er að ræða. Málefni ósakhæfra afbrotamanna og geðsjúkra fanga eru í ólestri en þau mál tilheyra dómsmálaráðuneyti.

Markmið 25.


    Sérstakar ráðstafanir skal gera vegna geðlækninga og almenn geðlæknisþjónusta aukin.
    Sérstök áhersla skal lögð á að geðlæknisþjónusta komi á heilsugæslustöðvum og menntun heilsugæslulækna og hjúkrunarfræðinga miðist við að þeir geti sinnt geðsjúklingum að ákveðnu marki. Gera skal ráð fyrir að geðspítalar í Reykjavík og á Akureyri taki að sér þjónustuhlutverk fyrir ákveðin heilsugæslusvæði. Barna- og unglingageðdeild verði aðeins í Reykjavík.
    Sjúkrarúmum fyrir geðsjúka verði ekki fjölgað en vaxandi áhersla lögð á að sjúklingar með langvarandi geðsjúkdóma fái inni á langlegudeildum eða sambýlum með öðrum sjúklingum í þeim mæli sem unnt er. Aldraðir geðsjúklingar verði vistaðir svo sem unnt er á almennum hjúkrunardeildum.

6.5 Öldrunarlækningar.
    Ljóst er að á næstu árum fjölgar öldruðum hér á landi bæði hlutfallslega og tölulega. Heilbrigðisþjónustan verður að vera í stakk búin að mæta þjónustukröfum vegna þessa aldurshóps þegar á þessum áratug og í vaxandi mæli eftir það. Það eru hinir elstu sem mest þurfa á öldrunarþjónustu að halda bæði sökum þess að heilsubrestur er þar algengur og félagsleg staða þeirra
hefur gjarnan raskast. Þjónustuþörf þessa aldurshóps vex samfara fjölgun í elstu aldurshópunum og heilbrigðisþjónustan verður að vera við því búin að mæta henni.

Markmið 26.


    Uppbyggingu öldrunarlækninga, sem hafin er, skal haldið áfram. Öldrunarlækningadeildir skulu vera í Reykjavík og á Akureyri. Stefnt skal að því að aldraðir sjúkir verði vistaðir á hjúkrunarheimilum eða sjúkrahúsum í sinni heimabyggð.
    Vinna skal áfram að auknum tengslum öldrunarþjónustunnar og heilbrigðisþjónustunnar annars vegar og félagslegu þjónustunnar hins vegar eins og lög um málefni aldraðra gera ráð fyrir.
    Leggja skal áherslu á endurhæfingu aldraðra og stuðla skal að því að þeir geti dvalið sem lengst í heimahúsum með aðstoð heimilishjálpar og heimahjúkrunar.

6.6 Sjúkratryggingar og örorkumat.
    Almenn sjúkratrygging hefur verið lögboðin hérlendis í áratugi og nú eru allir sjúkratryggðir hafi þeir lögheimili hér á landi.
    Sjúkratryggingar greiða allan kostnað við sjúkrahúsvist en takmarkanir eru á greiðslum fyrir aðra þjónustu. Þannig greiðir fólk að hluta fyrir lyf og læknishjálp bæði á heilsugæslustöðvum og hjá sérfræðingum.
    Sjúkratryggingar greiða ekki heilsuverndarkostnað sem greiddur er með öðru móti og aðeins hluta af kostnaði vegna tannlækninga, endurhæfingar og ferðalaga vegna sjúkdóma. Ýmis þessi atriði þurfa endurskoðunar við, svo og fyrirkomulag dagpeningagreiðslna.

Markmið 27.


    Ákvæði laga almannatrygginga um sjúkratryggingar skal endurskoða. Endurskoða skal og ákvæði sömu laga um örorkumat með það fyrir augum að tryggja réttlátt örorkumat sem hafi hliðsjón af heilsufarslegum og félagslegum aðstæðum tryggðra.
    Stefnt skal að því að örorkumat verði einnig framkvæmt utan Reykjavíkur, t.d. við embætti héraðslækna. Setja skal reglur sem tryggja rétt sjúklinga til að áfrýja örorkumati.
    Taka skal til athugunar að færa allan sjúkrahúskostnað frá sjúkratryggingum til fastra fjárlaga.
    Taka skal til athugunar greiðsluform sjúkratrygginga og greiðsluhlut sjúklinga í hinum ýmsu lækningum. Sérstakan gaum skal gefa að sjúkradagpeningagreiðslum og launum í veikindum þannig að betra samræmi verði á þeim ákvæðum en nú er milli ýmissa stétta og starfshópa. Við endurskoðunina skal þess sérstaklega gætt að fólki sé ekki mismunað eftir því hvar það er búsett á landinu. Þarf því bæði að taka tillit til ferðakostnaðar og dvalarkostnaðar sjúklinga og aðstandenda sé um að ræða sjúkdóma sem ekki er hægt að lækna í heimabyggð.

6.7 Lyfjamál.
    Fyrirkomulag lyfsölu er þannig hérlendis að lyfjaheildsala er öllum frjáls sem hafa í þjónustu sinni lyfjafræðinga. Smásalan er hins vegar með þremur undantekningum bundin við að lyfjafræðingur fái leyfi forseta Íslands til að reka lyfjabúð í tilteknu umdæmi.
    Ekkert mælir á móti breytingum til frjálsræðis og hagræðingar í lyfjasmásölu og er hægt að gera það án þess að slaka á kröfum um sérþekkingu.
    Eftirliti með lyfjasölu er lagalega vel fyrir komið en upplýsingum um lyf og lyfjanotkun er í mörgu ábótavant. Samvinna lækna og lyfjafræðinga í þessum efnum er ófullnægjandi og stórefla þarf upplýsingar til almennings um notkun lyfja og verð þeirra.
    Fjöldi íbúa á hvert apótek er öllu lægri hér á landi en í Noregi, Svíþjóð og í Danmörku og svipaður og í Finnlandi og virðist hæfilegur. Þó er ávallt vandasamt að koma á fót apóteksþjónustu í minnstu heilsugæsluumdæmum landsins og hafa þá læknar farið með lyfjasölu og í sumum tilvikum hafa sveitarfélög rekið lyfjasölu með undanþágum.
    Ekki þykir eðlilegt að læknir fari jafnframt með lyfjasölu. Því þarf að leggja áherslu á að útibú frá apótekum verði sem víðast í dreifbýli og þá í tengslum við heilsugæslustöðvar.
    Forvarnastarf er mjög óverulegt í apótekum þrátt fyrir góða aðstöðu þeirra til þess að ná til fólks með fræðslu og upplýsingar. Ástæða er því til að efla þennan þátt í starfsemi apóteka.

Markmið 28.


    Öll málefni lyfjasölu og lyfjaneyslu skal taka til sérstakrar athugunar. Athuga skal sérstaklega möguleika heilsugæslustöðva til þess að annast lyfjasölu og ráða lyfjafræðinga til að sinna þeim verkefnum á sama hátt og læknar og annað heilbrigðisstarfslið er ráðið.
    Upplýsingar til fólks um lyf og lyfjaneyslu skulu stórauknar og sérstakar ráðstafanir gerðar til þess að draga úr ónauðsynlegri og óhóflegri lyfjaneyslu hvort sem hún er á kostnað sjúkratrygginga eða ekki.
    Verðlagning lyfjaþjónustu skal athuguð með tilliti til breytilegrar álagningar eftir innkaupsverði.
    Endurskoða skal hlutdeild sjúklinga í lyfjakostnaði þannig að gætt verði sérstaklega hagsmuna þeirra sem þurfa lyf að staðaldri og fá ekki ívilnun samkvæmt gildandi ákvæðum. Heimilað verði að gefa út lyfseðla sem gilda fyrir fleiri en eina afgreiðslu til hagræðis fyrir þá sem nota lyf gegn langvinnum sjúkdómum.
    Stefnt skal sérstaklega að virku samstarfi heilsugæslustöðva og sjúkrastofnana annars vegar og apóteka hins vegar í sambandi við hagkvæmt lyfjaval og að læknar fái jafnan upplýsingar um lyfjaávísanir sínar og kostnað af þeim.
    Apótekum verði falin forvarnaverkefni í samvinnu við heilsugæslustöðvar, skóla og áhugamannasamtök.

6.8 Skaðabætur til sjúklinga.
    Reynslan sýnir að af og til verða við lækningar óvænt óhöpp sem engum verður um kennt. Sanngjarnt er að þeir sem fyrir slíkum óhöppum verða fái hæfilegar bætur án þess að stofna þurfi til málaferla.

Markmið 29.


    Setja skal sérstakar reglur um bætur til sjúklinga ef þeir verða fyrir heilsutjóni eða örorku vegna óhappatilviljunar við læknismeðferð eða sjúkrahúsdvöl.

7. FRAMLÖG TIL HEILBRIGÐISMÁLA OG MANNAFLI


7.1 Fjármunir.
    Síðustu 25 ár hafa fjárveitingar til heilbrigðisþjónustu aukist mjög verulega og er nú þannig komið að Ísland eyðir hlutfallslega jafnmiklu af þjóðarframleiðslu og aðrar Norðurlandaþjóðir, eða um 7%.

Markmið 30.


    Stefnt skal að því að útgjöld til heilbrigðismála haldist a.m.k. í sama hlutfalli af þjóðarframleiðslu og nú er. Þetta er nauðsynlegt til að unnt sé að mæta auknum þörfum vegna öldrunar íbúanna og vegna fjölgunar langvarandi sjúkdóma og ráðstafana til fyrirbyggjandi aðgerða og meðferðar.
    Gera skal áætlun um byggingu heilbrigðisstofnana þannig að stofnanir til þess að sinna heilsugæslu verði allar komnar upp fyrir árið 1995 og fyrir árið 2000 verði að fullu sinnt annarri stofnanaþjónustu eins og áætlunin gerir ráð fyrir.

7.2 Mannafli.
    Starfsliði í heilbrigðisþjónustu hefur fjölgað mjög síðustu tvo áratugi án þess að áætlun hafi verið gerð um samræmingu menntunartilboða og starfa. Því er svo komið nú að offjölgun er í sumum starfsstéttum en skortur í öðrum. Til að leiðrétta þetta þarf samræmingu og skipulag og launamálastefnu sem hvetur til þeirra starfa þar sem nú er skortur á mannafla.

Markmið 31.


    Gera skal áætlun fyrir 1992 um heildarmannaflaþörf í heilbrigðisþjónustu og auk þess sértaka áætlun hvað þarf af löggiltum heilbrigðisstéttum fram til ársins 2000.
    Námsskrár grunn- og framhaldsskóla og skóla heilbrigðisstétta sérstaklega skal endurskoða með tilliti til þeirrar áherslu sem leggja skal á heilsugæslu og heilbrigðisfræðslu og skulu allar námsskrár þessara stétta samdar af aðilum sem tilnefndir eru bæði af menntamála- og heilbrigðisyfirvöldum. Sérstaklega skal kanna möguleika á sameiginlegri grunnmenntun þessara stétta þannig að fólk geti skipt um starf án mikillar viðbótarmenntunar.

8. RANNSÓKNIR OG KENNSLA


8.1 Rannsóknir vegna heilbrigðisstefnunnar.
    Heilbrigðisþjónustan þarf að búa við virkt og öflugt upplýsingakerfi til eftirlits og mats á árangri og til ákvarðana. Forsendur heilbrigðisáætlunarinnar eru þekking á heilsufari, dánarorsökum og þeim þáttum sem áhrif hafa til góðs eða ills í því sambandi, eins og lífsmáta fólks, umhverfi þess, notkun og fyrirkomulagi heilbrigðisþjónustunnar ásamt möguleikum á virkum ákvörðunum og stefnumörkun í heilbrigðismálefnum. Núverandi upplýsingakerfi er ófullkomið og þungt í vöfum. Það byggir aðallega á dánarmeinaskrá en tölvuvæðing á útskriftaskrám sjúkrahúsa og samskiptaskrám heilsugæslustöðva er í örri þróun.

Markmið 32.


    Fullnægjandi upplýsingakerfi til eftirlits og mats á heilbrigðisþjónustunni skal skipulagt fyrir árið 1992. Í slíku kerfi felst reglubundið mat á starfsemi heilsugæslustöðva, starfsemi sjúkrahúsa og störfum heilbrigðisstétta og einstakra starfsmanna.
    Heilbrigðisrannsóknir skulu efldar og í því skyni gerð sérstök rannsóknaáætlun fyrir árið 1990 til stuðnings framkvæmd þessarar heilbrigðisáætlunar. Í því skyni skal tryggð nauðsynleg aðstaða og fjölgun fólks sem stundar heilbrigðisrannsóknir. Sérstaklega skal gefa gaum að rannsóknum á sambandi lífshátta og umhverfis á heilsufar, svo og rannsóknum á heilbrigðiskerfinu sjálfu, hvernig það reynist, hvernig það starfar og hver árangur þess er. Vinna skal að því að gera allar upplýsingar aðgengilegar almenningi til fræðslu og upplýsinga.

8.2 Lækningarannsóknir.
    Á síðustu árum hafa orðið miklar framfarir á sviði þjónusturannsókna til þess að aðstoða við greiningu sjúkdóma og fylgjast með árangri sjúkdómsmeðferðar. Sérstaka áherslu þarf að leggja á eflingu þessarar starfsemi til þess að ná árangri við að greina sjúkdóma á frumstigi þeirra. Rannsóknastörf á aðalsjúkrahúsum landsins þarf að efla til þess að ná góðum árangri við að greina sjúkdóma á byrjunarstigi. Brýnt er að fylgjast með tækniþróun á sviði lækningarannsókna til þess að nýta til fulls þær framfarir sem orðið hafa nú þegar. Einnig þarf að fylgjast grannt með nýrri tækni sem stöðugt þróast á þessu sviði.

Markmið 33.


    Gera skal ráðstafanir til þess að fylgjast með nýjungum í læknisfræði og gera ráðstafanir til að nýta þær nýjungar hér á landi eða í samvinnu við önnur lönd í þágu forvarna, fyrirbyggjandi lækninga og meðferðar sjúkdóma.

8.3 Vísindarannsóknir.
    Síðustu tvo áratugi hefur þekking á heilbrigðu og sjúku líkamsástandi aukist gífurlega vegna nýrra rannsóknaraðferða, sem hafa verið notaðar til þess að auka skilning á sviði veirusjúkdóma, ónæmisfræði, lífefnafræði og erfðafræði. Þessar framfarir hafa gert læknum kleift að fyrirbyggja alvarlega sjúkdóma sem þeir áður stóðu ráðþrota gagnvart. Margir sjúkdómar, sem ekki eru sérlega algengir (t.d. erfðasjúkdómar), geta verið mjög kostnaðarsamir fyrir þjóðfélagið vegna þess að sjúkrahúsvist er jafnan löng og veita þarf þessum sjúklingum mikinn stuðning utan sjúkrahúsa. Til þess að lina þjáningar slíkra sjúklinga og spara kostnað við rekstur heilbrigðisþjónustunnar er mikilvægt að finna orsakir þessara sjúkdóma og koma í veg fyrir þá.

Markmið 34.


    Efla þarf vísindarannsóknir til þess að auka þekkingu og skilning á sjúkdómum sem hafa í för með sér alvarleg langvarandi sjúkdómseinkenni. Slíkar rannsóknir verði fyrst og fremst efldar til þess að reyna að koma í veg fyrir sjúkdóma eða til að greina þá á frumstigi. Einkum þarf að einbeita sér að rannsóknum á sjúkdómum sem eru hlutfallslega algengir á Íslandi.

Markmið 35.


    Við aukningu á vísindastarfsemi verði aðstaða á rannsóknastofum nýtt vel til þess að mennta og þjálfa stúdenta, einkum þó þá sem lokið hafa námi í læknisfræði, líffræði og öðrum starfsgreinum heilbrigðisþjónustunnar. Nota þarf rannsóknastofurnar og þá vísindamenn sem þar starfa til þess að vekja áhuga starfsmanna heilbrigðisþjónustunnar á rannsóknum, gildi þeirra og gagnsemi.

8.4 Kennsla.
    Ef einstaklingurinn á að vera virkur þátttakandi í heilbrigðisþjónustunni verður hann að hafa nauðsynlega þekkingu á undirstöðuatriðum líkams- og heilsufræði. Slíka þekkingu þarf að byggja upp í áföngum í skólakerfinu og viðhalda með almenningsfræðslu eða símenntun.
    Forvarnastarf ber því aðeins árangur að einstaklingurinn viti og skilji hvað ber að forðast og hvers vegna. Til þess að forvarnastarf í heilbrigðismálum nái fullum tilgangi þarf fræðsla um mannslíkamann og heilbrigða lífshætti að verða ein af undirstöðugreinum námsins. Einstaklingurinn þarf að öðlast þessa þekkingu í áföngum eftir því sem hann hefur þroska til og þörf fyrir. Fræðslan má ekki vera takmörkuð við skólakerfið. Hún þarf að ná til fólks á öllum aldri. Börn og unglingar hafa aðrar þarfir í þessum efnum en ungt fólk sem hefur stofnað heimili og eignast börn. Þarfir aldraðra eru enn aðrar þannig að einstaklingurinn hefur stöðugt þörf fyrir nýja vitneskju og fræðslu á hinum ýmsu skeiðum ævinnar.
    Tryggja þarf símenntun allra starfandi heilbrigðisstétta því að framfarir í heilbrigðisvísindum eru mjög örar og auknar líkur á betri þjónustu. Einnig er nauðsynlegt að veita heilbrigðisstarfsfólki þjálfun í miðlun upplýsinga. Hollt fæði og hófsemi eru meðal hornsteina heilbrigðis og mikilvægt er að kennarar, læknar og hjúkrunarfræðingar hljóti markvissari menntun í næringarfræði ef þeir eiga að geta veitt æskilegar leiðbeiningar.

Markmið 36.


    Í grunnskólum skal kenna undirstöðuatriði í líkams- og heilsufræði, svo og í næringarfræði og matargerð. Þar skal einnig veita fræðslu um kynlíf, um ábyrgð, um líkamsþjálfun og um vímuefni og fyrstu hjálp við slysfarir.
    Í framhaldsskólum skal efla fræðslu um mataræði og matseld, um kynlíf, samlíf og foreldrahlutverkið, um vímuefni, um hvíld, streitu, geðvernd og fyrstu hjálp við slysfarir.
    Með aðstoð fjölmiðla, einkum sjónvarps, skal koma á framfæri fræðslu um heilbrigða lífshætti, um hollt mataræði, um heilsurækt, geðvernd, lyf, skottulækningar og slysahættu.

9. ALÞJÓÐASAMSTARF


    Skipti á upplýsingum og reynslu um heilbrigðismál, einkum við önnur Norðurlönd og Alþjóðaheilbrigðismálastofnunina, eru sérstaklega mikilvæg fyrir lítið land eins og Ísland. Ísland hefur tekið virkan þátt í þessu samstarfi og verið bæði þiggjandi og veitandi. Nauðsynlegt er að viðhalda og efla þetta samstarf einkum með hliðsjón af þeim möguleikum sem Ísland hefur að miðla af reynslu hér á landi og góðum árangri í heilbrigðismálum.

Markmið 37.


    Gera skal áætlun um í hve miklum mæli og hvernig Ísland getur tekið þátt í alþjóðasamstarfi um heilbrigðismál.

Athugasemdir við þingsályktunartillögu þessa.


    Á fundi ríkisstjórnarinnar 20. mars 1986 var samþykkt eftirfarandi tillaga frá þáverandi heilbrigðisráðherra, Ragnhildi Helgadóttur, um íslenska heilbrigðisáætlun:
    „Ríkisstjórnin samþykkir að vinna að landsáætlun í heilbrigðismálum með hliðsjón af stefnu Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar, sem nefnd er „Heilbrigði allra árið 2000“, í þeim tilgangi að stórauka forvarnir gegn sjúkdómum og slysum ásamt örorku og ótímabærum dauðsföllum af þeirra völdum. Áætlunin skal m.a. taka mið af vörnum gegn langvinnum sjúkdómum og því að búa hinn vaxandi fjölda aldraðra undir gott heilsufar í ellinni. Forgangsverkefni í áætluninni skulu miðast við íslenskar aðstæður.
    Áhersla verður lögð á að kynna og efla heilbrigða lífshætti eftir því sem unnt er með stjórnvaldsaðgerðum og er óskað samstarfs við önnur ráðuneyti um framkvæmd verkefnisins. Heilbrigðisráðherra mun leggja drög að áætluninni fram í ríkisstjórninni innan tíðar.“
    Í framhaldi af þessari samþykkt skipaði heilbrigðisráðherra hinn 10. apríl 1986 sérstakan starfshóp til að gera rammadrög að íslenskri heilbrigðisáætlun þar sem í fyrsta áfanga væru m.a. tillögur um þær aðgerðir sem væru aðkallandi og svo kostnaðarlitlar að unnt væri að hrinda þeim í framkvæmd mjög fljótlega. Enn fremur skyldi í áætluninni mörkuð stefna í aðgerðum til að koma í veg fyrir sjúkdóma og slys svo sem verða má.
    Starfshópinn skipuðu Páll Sigurðsson ráðuneytisstjóri, sem jafnframt var formaður, Guðjón Magnússon aðstoðarlandlæknir og Hrafn V. Friðriksson yfirlæknir sem annaðist fundarritun.
    Við gerð áætlunarinnar miðaði starfshópurinn við íslenskar aðstæður og stefnu Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar „Heilbrigði allra árið 2000“ frá árinu 1977. Einnig var tekið mið af heilbrigðisstefnu og heilbrigðismarkmiðum Evrópuskrifstofu Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar frá 1980 og 1984 og samsvarandi heilbrigðisáætlunum nágrannaþjóða okkar, einkum Finnlands.
    Tillögur hópsins voru lagðar fyrir Alþingi Íslendinga til kynningar í aprílmánuði 1987.
    Haustið 1987 ákvað heilbrigðisráðherra, Guðmundur Bjarnason, að heilbrigðisþing, skv. 5. gr. laga nr. 59/1983, með síðari breytingum, um heilbrigðisþjónustu, skyldi haldið 5. febrúar 1988 og þar skyldi fjallað um drög þau sem fyrir lágu að íslenskri heilbrigðisáætlun.
    Til undirbúnings var ákveðið að skipa sjö vinnuhópa sem fengu það verkefni að endurskoða íslenska heilbrigðisáætlun. Hóparnir voru þessir:
     Stefna í heilbrigðismálum (markmið 1-4 og 33).
    Skúli Johnsen borgarlæknir, formaður,
    Ásmundur Hilmarsson trésmiður,
    Björn Friðfinnsson, aðstoðarmaður dómsmálaráðherra,
    Jóhann Pétur Sveinsson lögfræðingur,
    Sigríður Snæbjörnsdóttir hjúkrunarfræðingur,
    Sigrún Magnúsdóttir borgarfulltrúi.

     Heilbrigðir lífshættir (markmið 5-10).
    Bjarni Þjóðleifsson læknir, formaður,
    Alda Möller næringarfræðingur,
    Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir fréttamaður,
    Jónas Ragnarsson ritstjóri,
    Magnús Einarsson læknir,
    Margrét Þorvaldsdóttir húsmóðir,
    Unnur Stefánsdóttir fóstra.

     Heilbrigðiseftirlit (markmið 11-17).
    Örn Bjarnason forstjóri, formaður,
    Hannes Hafstein, framkvæmdastjóri SVFÍ,
    Hermann Sveinbjörnsson, aðstoðarmaður sjávarútvegsráðherra,
    Katrín Fjeldsted heilsugæslulæknir,
    Oddur Rúnar Hjartarson forstjóri,
    Ólöf Steingrímsdóttir sjúkraþjálfari.

     Heilsugæsla, tannheilsa, sérfræðiþjónusta, geðlækningar (markmið 18-25).
    Guðmundur Sigurðsson heilsugæslulæknir, formaður,
    Guðrún Marteinsdóttir dósent,
    Katrín Pálsdóttir hjúkrunarforstjóri,
    Kristján Guðmundsson bæjarstjóri,
    Sigfús Þór Elíasson prófessor,
    Tómas Zoega geðlæknir.

     Öldrun, lyfjamál, tryggingamál (markmið 26-29).
    Almar Grímsson lyfsali, formaður,
    Adda Bára Sigfúsdóttir veðurfræðingur,
    Gunnhildur Sigurðardóttir hjúkrunarforstjóri,
    Halldór E. Sigurðsson, fyrrv. ráðherra og alþingismaður,
    Helga Jónsdóttir, formaður tryggingaráðs,
    Jón Snædal læknir,
    Margrét Thoroddsen deildarstjóri.

     Fjármunir og mannafli (markmið 30-31).
    Davíð Á. Gunnarsson forstjóri, formaður,
    Edda Hermannsdóttir deildarstjóri,
    Inga Jóna Jónsdóttir viðskiptafræðingur,
    Guðmundur G. Þórarinsson alþingismaður,
    Laura Scheving Thorsteinsson hjúkrunarfræðingur,
    Sigurður Þórðarson aðstoðarríkisendurskoðandi,
    Sveinn Magnússon heilsugæslulæknir.

     Rannsóknir og kennsla (markmið 32).
    Sigmundur Guðbjarnason rektor, formaður,
    Guðrún Agnarsdóttir alþingismaður,
    Jóhann Ágúst Sigurðsson héraðslæknir,
    Jónas Hallgrímsson prófessor,
    Marga Thome dósent,
    Margrét Guðnadóttir prófessor,
    Rúnar Vilhjálmsson lektor.

    Hóparnir unnu starf sitt bæði fljótt og vel og skiluðu álitsgerðum sínum á heilbrigðisþinginu.
    Jafnframt var heilbrigðisáætlunin send til umsagnar fjölmargra aðila innan heilbrigðisþjónustunnar. Allar umsagnir, sem bárust, voru meðal þingskjala fyrir heilbrigðisþingið.
    Til heilbrigðisþings var boðið um 200 manns. Þar áttu fulltrúa allar löggiltar heilbrigðisstéttir, H-2 heilsugæslustöðvar, stærri sjúkrahús, aðrar heilbrigðisstofnanir, sveitarfélög, helstu líknarfélög, þingflokkar, formenn heilbrigðis- og trygginganefnda Alþingis og fjölmiðlar. Auk þess sátu þingið þátttakendur í vinnuhópunum og starfsmenn heilbrigðisráðuneytis og embættis landlæknis.
    Á heilbrigðisþingi skiluðu vinnuhópar áliti auk þess sem almennar umræður urðu um áætlunina og þær breytingartillögur sem vinnuhópar báru fram. Sérstakur gestur þingsins var dr. Mahler sem nýlega lét af störfum sem forstjóri Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar í Genf.
    Í framhaldi af þessu hefur íslensk heilbrigðisáætlun verið endurskoðuð af starfsmönnum heilbrigðisráðuneytisins og er sú þingsályktunartillaga, sem hér liggur fyrir, afrakstur þeirrar vinnu.



Fylgiskjal I.




(Texti ekki til tölvutækur.)