Ferill 149. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1989. – 1059 ár frá stofnun Alþingis.
112. löggjafarþing. – 149 . mál.


Sþ.

153. Fyrirspurn



til heilbrigðisráðherra um fyrirhugaðar glasafrjóvganir á Landspítalanum.

Frá Sigríði Lillý Baldursdóttur.



1.    Hvenær er áætlað að fyrstu glasafrjóvganirnar verði framkvæmdar hér á landi og hve langt á veg er undirbúningurinn vegna þeirra kominn?
2.    Hvaða fagaðilar verða ráðnir til starfa við Landspítalann vegna glasafrjóvgana?
3.    Má búast við að Tryggingastofnun ríkisins hætti greiðslum til þeirra kvenna sem kjósa að fara utan í glasafrjóvgun í stað þess að þiggja hana hér, og ef svo verður, þá hvenær?
4.    Verður tilkoma glasafrjóvgana hér á landi til þess að konur þurfi að bera einhvern hluta af kostnaði við meðferðina?