Ferill 164. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1989. – 1059 ár frá stofnun Alþingis.
112. löggjafarþing. – 164 . mál.
Ed.
179. Frumvarp til laga
um breytingu á lögum nr. 80 15. ágúst 1966, um kísilgúrverksmiðju við Mývatn.
(Lagt fyrir Alþingi á 112. löggjafarþingi 1989.)
1. gr.
Við 1. gr. laganna bætist ný málsgrein svohljóðandi:Hlutafélaginu er enn fremur ætlað, á eigin vegum, með þátttöku í öðrum félögum eða með stofnun dótturfyrirtækja, að tryggja vöxt fyrirtækisins með arðvænlegum fjárfestingum í skyldum greinum og öðrum greinum atvinnurekstrar.
2. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.Athugasemdir við lagafrumvarp þetta.
Frumvarp þetta er samið í iðnaðarráðuneytinu og er það flutt til að heimila Kísiliðjunni hf. að taka þátt í öðrum atvinnurekstri en framleiðslu kísilgúrs. Frumvarpið byggir á hugmyndum sem ræddar hafa verið í stjórn Kísiliðjunnar hf. og við aðalhluthafa og þeir hafa fallist á.
Hlutafé í Kísiliðjunni hf. skiptist þannig um síðastliðin áramót:
— Íslenska ríkið
59,8%
— Manville Corporation
39,8%
— Sveitar- og bæjarfélög á Norðausturlandi
0,4%
Í júní sl. tókst samkomulag um að Manville Corporation keypti 8,9% af hlutafé ríkisins í Kísiliðjunni hf. og er hlutafjáreign nú þannig:
— Íslenska ríkið
50,9%
— Manville Corporation
48,7%
— Sveitar- og bæjarfélög á Norðausturlandi
0,4%
Í upphaflegum lagaheimildum til stofnunar Kísiliðjunnar hf. er tekið fram að verksmiðjan skuli reist og rekin „til þess að vinna markaðshæfan kísilgúr úr botnleðju Mývatns“. Í samræmi við þetta var tilgangur hlutafélagsins svo skilgreindur í 3. gr. í aðalsamningi milli ríkisstjórnar Íslands og Johns-Manville Corporation (nú Manville Corporation):
„Kísiliðjan skal hafa þann tilgang einan, að
a. vinna jarðlögin í Mývatni samkvæmt námuleyfinu,
b. byggja, eiga og starfrækja verksmiðjuna,
c. framleiða íslensk síunarefni í verksmiðjunni og
d. selja íslensk síunarefni eins og mælt er fyrir um í samningi þessum, sölusamningnum og söluleyfinu.“
Af þessum ákvæðum er ljóst að Kísiliðjunni hf. var eingöngu ætlað að starfa við kísilgúrframleiðslu. Ekki er fært að auka þennan þátt í starfsemi félagsins m.a. vegna framleiðsluaukningar á kísilgúr í heiminum og þar af leiðandi aukinnar samkeppni á kísilgúrmörkuðum. Því er nauðsynlegt að hyggja að öðrum atvinnurekstri sem Kísiliðjan hf. gæti átt aðild að.
Afkoma Kísiliðjunnar hf. hefur á tímabilinu 1983–1988 verið með það miklum ágætum að félaginu hefur tekist að greiða niður allar langtímaskuldir og eignarfjárhlutfall orðið yfir 90%. Nokkur stórverkefni standa fyrir dyrum í verksmiðjunni bæði hvað varðar viðhald og nýjungar, en fljótlega gæti skapast nokkuð svigrúm til fjárfestinga í annarri arðbærri starfsemi.
Samkvæmt efnahagsreikningi 31. desember 1988 var veltufjárhlutfall félagsins 6,94. Á sama tíma námu langtímaskuldir félagsins 560 þús. kr. og heildarskuldir voru samtals 5,6% af heildarfjármagni. Helstu niðurstöðutölur efnahags- og rekstrarreikninga Kísiliðjunnar hf. fyrir árin 1985–1988 eru:
Eðlilegt er að rýmka verksvið Kísiliðjunnar og að félaginu verði gefinn kostur á að nýta þá krafta, sem í því býr, á fleiri sviðum en í upphafi var ætlað. Einnig ber að hafa í huga þann styrk sem samstarfið við Manville Corporation veitir Kísiliðjunni hf. og þá miklu tækni-, markaðs- og stjórnunarlegu þekkingu sem þar er að finna. Með rýmkun á verksviði félagsins gæti Kísiliðjan hf. orðið virkari þátttakandi í atvinnurekstri í landinu, bæði nýiðnaði og þeim rekstri sem fyrir er. Meðal nýiðnaðarverkefna sem Kísiliðjan hf. gæti átt aðild að eru t.d. frekari vinnsla kísilgúrs, annarra ónýttra íslenskra jarðefna og ýmis þróunarverkefni þar að lútandi.
Athugasemdir við einstakar greinar frumvarpsins.
Um 1. gr.
Í greininni er gerð tillaga um að Kísiliðjunni hf. verði veitt almenn heimild til þátttöku í arðvænlegum atvinnurekstri. Aðalsamningur ríkisstjórnar Íslands og Manville Corporation gerir ráð fyrir að breyta megi samningnum „hvenær sem er, eftir því, sem við á, með skriflegum samningi, sem réttilega er undirritaður og afhentur bæði af ríkisstjórninni og Manville Corporation, að áskildu samþykki Alþingis“. Gengið var frá samkomulagi við Manville Corporation um þessa breytingu á aðalfundi félagsins í júní 1989, með fyrirvara um samþykki Alþingis í því formi sem hér er lagt til.
Um 2. gr.
Greinin þarfnast ekki skýringar.