Ferill 51. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1989. – 1059 ár frá stofnun Alþingis.
112. löggjafarþing. – 51 . mál.


Ed.

180. Breytingartillögur



við frv. til l. um skráningu og meðferð persónuupplýsinga.

Frá allsherjarnefnd.



1. Við 5. gr. Í stað „5 ára“ í 4. mgr. komi: fjögurra ára.
2.    Við 9. gr. Í stað orðanna „efni upplýsinganna“ í fyrri málslið fyrri málsgreinar komi: því sem þar er skráð.
3.    Við 12. gr. Í stað orðanna „efni upplýsinga innan fjögurra vikna“ í síðari málslið fyrri málsgreinar komi: því sem um hann er skráð sem fyrst og eigi síðar en innan tveggja vikna.
4.    Við 13. gr. Síðari málsgrein falli brott.
5.    Við 16. gr. Í stað „fimm ára“ í 1. málsl. síðari málsgrein komi: fjögurra ára.
6.    Við 18. gr. 1. mgr. orðist svo:
         Nú telur aðili að upplýsingar um hann séu skráðar skv. 15. gr. og er starfsleyfishafa þá skylt að skýra aðila sem fyrst, og eigi síðar en innan tveggja vikna frá því krafa kom fram um slíkt, frá því sem þar er skráð og því mati sem starfsleyfishafinn hefur látið frá sér fara á síðustu sex mánuðum varðandi hagi beiðanda.
7. Við 19. gr. Í stað „10.000,00“ í fyrri málsl. 3. mgr. komi: 20.000.
8. Við 24. gr.
    a.    Í stað tveggja fyrstu málsliða fyrri málsgreinar komi:
                 Þeir sem í atvinnuskyni annast markaðs- og skoðanakannanir um atriði, sem falla undir ákvæði laga þessara, skulu hafa til þess starfsleyfi, sem tölvunefnd veitir. Starfsleyfishafi skal, a.m.k. sjö sólarhringum áður en könnun er framkvæmd, senda tölvunefnd lýsingu á fyrirhugaðri könnun ásamt spurningalista.
                 Öðrum en starfsleyfishöfum skv. 1. mgr. er óheimilt að annast kannanir þær, sem um ræðir í 1. mgr., án heimildar tölvunefndar.
                 Þeim sem annast markaðs- og skoðanakannanir skv. 1. og 2. mgr. ber við framkvæmd könnunar að gæta eftirtalinna atriða:
    b.    Í stað orðanna „er heimilt að setja“ í síðari málsgrein komi: setur.
9.    Við 30. gr. Síðari málsgrein orðist svo:
             Tölvunefnd er að höfðu samráði við dómsmálaráðherra heimilt að ráða nefndinni nauðsynlegt starfslið.
10. Við 38. gr.
             Á eftir tölunni „21“ í fyrri málslið fyrri málsgreinar komi: 24.