Ferill 166. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1989. – 1059 ár frá stofnun Alþingis.
112. löggjafarþing. – 166 . mál.
Sþ.
183. Tillaga til þingsályktunar
um skólamáltíðir.
Flm.: Guðmundur G. Þórarinsson, Ólafur Þ. Þórðarson,
Alexander Stefánsson, Stefán Guðmundsson.
Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að undirbúa og leggja fram lagafrumvarp er tryggi að komið verði á máltíðum í hádegi í öllum grunnskólum landsins haustið 1990.
Greinargerð.
Vegna breyttra aðstæðna í þjóðfélaginu hefur skipan máltíða í vaxandi mæli riðlast á heimilum á síðustu árum. Síaukinn fjöldi mæðra vinnur utan heimilis. Fjöldi barna á grunnskólaaldri gengur sjálfala mikinn hluta dagsins.
Mörg börn fá í hendur fjármuni í stað fæðu og fæðuval og neysluvenjur mótast um of af framboði söluskála í grennd við skóla. Oft er þar aðallega á boðstólum sælgæti, sætabrauð og gosdrykkir. Fæðan verður því vítamínsnauð og sykurneysla úr hófi, margfalt hærri en þekkist meðal grannþjóða okkar. Miklar tannskemmdir íslenskra barna eiga m.a. rætur að rekja til rangs mataræðis.
Of algengt er að börn borði ekki áður en þau fara í skóla á morgnana, og fá síðan ekki viðunandi máltíð í hádeginu. Fyrir börn og unglinga á vaxtarskeiði er ein máltíð á dag engan veginn nægjanleg. Talið er að börn þurfi auk morgunverðar tvær aðalmáltíðir á dag. Rétt fæðuval er sérstaklega mikilvægt fyrstu 15 árin en næringin hefur áhrif bæði á andlegan og líkamlegan þroska.
Skólinn er vinnustaður barnanna. Foreldrar fá í auknum mæli hádegisverð á vinnustað en börnin eru ekki alltaf tilleiðanleg til að taka með sér nesti í skólann. Helst eru það yngstu börnin, sem varla eru nema hálfan daginn í skóla, ýmist fyrir eða eftir hádegi, er hafa með sér smánesti, en skólarnir hafa þá gjarnan á boðstólum til sölu ýmiss konar drykkjarvörur og jógúrt. Spurning er hvort þessir nemendur fái góðan hádegisverð þegar heim kemur.
Tvísetning eykur enn meir á óreglu á matmálstíma á heimilum barnanna, en Ísland hefur nokkra sérstöðu hvað þetta snertir.
Tilraunir hafa verið gerðar með sölu á matarpökkum frá Mjólkursamsölunni, en þá vantaði m.a. starfsmenn í skólana til þess að annast þessa þjónustu. Sumum þótti þetta einnig dýr og leiðigjörn fæða.
Í Kópavogi hefur vel miðað að koma á skólamáltíðum.
Kannanir í Bandaríkjunum hafa leitt í ljós að færni og námsgeta barna sé að hluta háð því fæði sem þau neyta. Nauðsynlegt er því að skólinn stuðli að hollum lífsvenjum með áherslu á heilbrigðu líferni og góðri næringu.
Skólinn á að ganga á undan og virða þau manneldismarkmið sem Íslendingar hafa sett sér. Koma þarf upp skólaeldhúsum í flestum ef ekki öllum grunnskólum. Máltíðir þurfa að miðast við góða, holla og næringarríka fæðu. Víðast geta börnin borðað í skólastofunum.
Til greina kemur að miða við að hið opinbera greiði rekstrarkostnað vegna matmálstímanna sem og starfsmannahald og 25% hráefniskostnaðar.
Þingsályktunartillaga þessi gerir ráð fyrir að skólamáltíðum í hádegi verði komið á í grunnskólum haustið 1990. Framhaldsskólar þurfa síðan að fylgja í kjölfarið.
Fylgiskjal I.
Máltíðir í grunnskólum í Kópavogi.
Útdráttur úr erindi Heiðrúnar Sverrisdóttur, formanns skólanefndar
Kópavogs, 3. nóv. 1989, hjá Manneldisfélagi Íslands.
Eftir bæjarstjórnarkosningarnar 1982 ákváðu þeir flokkar sem mynduðu meiri hluta bæjarstjórnar í Kópavogi að vinna að samfelldum skóladegi og að boðið yrði upp á máltíðir í skólum.
Árið 1981–1982 hafði verið gerð tilraun með skólamáltíðir í einum grunnskólanum. Það var svo í janúar 1983 sem ákveðið var að gera tilraun með skólamáltíðir í tveimur skólum. Strax haustið 1983 fóru hinir skólarnir eitthvað af stað með þessa þjónustu, en aðstaðan var mjög misjöfn. Lagt hefur verið kapp á að lagfæra húsnæði til að auðvelda þetta í framkvæmd, og er það orðið vel viðunandi í dag.
Framkvæmd er þannig að í sumum skólum eru matmæður. Þá er brauð smurt á staðnum og er auðvelt að breyta til eftir óskum nemenda. Bæjarfélagið greiðir starfsmönnum laun og 25% af hrásefniskostnaði. Í tveimur skólum vinna nemendur við að afgreiða matinn.
Sú skólanefnd sem nú situr hefur reynt með öllum ráðum að ýta undir að vel væri staðið að þessum málum og vandað væri til þess matar sem boðið er upp á. En það sem er á boðstólum í dag er súpur, jógúrt, kakó, samlokur og ávextir, svo eru seldir kaldir drykkir. Til að freista þess að hafa áhrif á hvaða drykkir væru seldir í skólum gerði skólanefndin eftirfarandi samþykkt samhljóða árið 1986:
„Skólanefndin álítur að skólar bæjarins eigi að hafa frumkvæði að bættum venjum barna með því að hafa aðeins til sölu ósykraða og lítið sykraða mjólkurdrykki og hreina ávaxtasafa. Enn fremur álítur nefndin að sætabrauð skuli ekki selt á vegum skólanna en áhersla lögð í staðinn á sölu brauða með áleggi og sölu ávaxta.“
Sumir skólamenn litu mjög jákvætt á þetta og sögðu þetta stuðning við það sem reynt væri að gera í skólum, öðrum fannst þetta óþarfa afskiptasemi og væri til ills eins að skólanefndin væri að skipta sér af því hvað blessuð börnin drykkju!
Í dag finnst öllum sjálfsagt að skólinn gangi á undan í þessum efnum og ekkert er kvartað yfir því þó gervisafinn sjáist þar ekki.
Rétt er að ræða um í þessu sambandi hvernig staðið er að heimilisfræðslunni í skólunum.
Skólanefndin ákvað 1986 að komið yrði upp í öllum skólum kennslueldhúsum og stefna sett á einn skóla á ári. Þetta hefur gengið eftir hjá okkur og 1990 verða þá allir skólanna með þokkalega aðstöðu til kennslunnar.
Manneldis- og neyslustefna.
Um miðjan mars síðastliðinn lagði heilbrigðisráðherra, Guðmundur Bjarnason, fram tillögu til þingsályktunar um manneldis- og neyslustefnu. Við stefnumörkun þessa eru manneldismarkmið fyrir Íslendinga lögð til grundvallar. Til að ná þeim markmiðum er bent á ýmsar aðgerðir sem ríkisstjórnin skuli beita sér fyrir á árunum 1990–2000. Af þessum aðgerðum má nefna t.d. að fella skal innlenda matvælaframleiðslu að settum manneldismarkmiðum. Á sama hátt á að beita tollum og sköttum. Efla á rannsóknir á sviði næringar og heilsu og eftirlit með matvælum. Auka á alla fræðslu á þessu sviði bæði innan skóla og utan. Nemendum í grunn- og framhaldsskólum á að gefast kostur á að borða í skólanum. Og síðast en ekki síst á að framkvæma mikla neyslukönnun hér á landi, en niðurstöður könnunarinnar verða síðan lagðar til grundvallar aðgerðum í manneldismálum.
Undirbúningur að neyslukönnuninni hefur þegar farið af stað og hefur dr. Laufey Steingrímsdóttir næringarfræðingur verið ráðin til að annast og bera ábyrgð á könnuninni.
Í tengslum við þingsályktunartillöguna hefur verið tekið saman viðamikið rit með ritgerðum 28 höfunda þar sem gerð er grein fyrir heilsufari íslensku þjóðarinnar almennt og markmiðum í heilbrigðismálum og rætt um áhrif mataræðis á heilsu fólks almennt og aðaldánarorsakir þjóðarinnar. Þá er í ritinu glöggt yfirlit um framleiðslu og neyslu og helstu áhrifavalda á því sviði. Rit þetta hefur fengið nafnið: „Manneldi og neysla“ og verður til sölu í heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu á meðan birgðir endast. Auk þess verður það selt á aðalfundinum og kostar 700 kr.
Þess er að óska að þingsályktunartillaga þessi fái góðar undirtektir á Alþingi og verði samþykkt hið bráðasta.
Það þarf varla að minna félagsmenn á að þetta er í annað sinn í sögu félagsins sem umræðuefni á ráðstefnum félagsins hafa fengið áframhaldandi umfjöllun og komist á opinbera pappíra. Árið 1980 stóð Manneldisfélagið fyrir ráðstefnu undir heitinu „Manneldismarkmið“. Á árinu 1986 kynnti svo þáverandi heilbrigðisráðherra, Ragnhildur Helgadóttir, Manneldismarkmið fyrir Íslendinga. Haustið 1987 stóð félagið svo fyrir ráðstefnu undir heitinu: „Manneldisstefna á Íslandi“. Þetta færir okkur heim sanninn um það að þó að félagið láti lítið yfir sér þá hefur það sannanlega áhrif á stjórnun manneldismála hér á landi.
Fylgiskjal II.
Mataræði og tannheilsa.
Útdráttur úr erindi Magnúsar Gestssonar tannlæknis í
heilbrigðisráðuneytinu, 3. nóv. 1989, hjá Manneldisfélagi Íslands.
Í Íslendingum skemmast fleiri tennur en í flestum öðrum þjóðum. Tannskemmdarstuðull 12 ára barna var árið 1986 mun hærri en á Norðurlöndunum og er svo enn. Það sést fljótt á tönnum ef fæðuval, matarvenjur og tannhirða eru ekki í lagi. Breyttir þjóðfélagshættir, m.a. aukin sókn kvenna út á vinnumarkaðinn hafa leitt til þess að víða hérlendis hefur vönduðum heimilismáltíðum fækkað, sérstaklega á morgnana og í hádeginu. Aðrar þjóðir bregðast við sama vanda með skólamáltíðum en við með því að fjölga sjoppum enda sýna rannsóknir að Íslendingar fá 20% af orkuþörf sinni með neyslu sykurs, þegar æskilegt er talið að aðeins 10% komi úr sykri. Hluti sjoppufæðis, aðallega sykurs, í næringunni er því oft stór, ekki síst hjá börnum og unglingum, enda selt víða. Sjoppur eru ótrúlega margar hérlendis og auk þess er algengt að svonefnt sjoppufæði sé til sölu á ólíklegustu stöðum eins og t.d. bensínstöðvum, myndbandaleigum og sjúkrahúsum.
Í lauslegri athugun sem var gerð á fjölda sjoppa kom í ljós að ein sjoppa er á hverja 300–400 íbúa. Sums staðar er ein á hverja 100–200 íbúa. Í Reykjavík er ein sjoppa á hverja 170–180 íbúa. Til samanburðar má geta þess að í Helsingfors er ein sjoppa á hverja 1200 íbúa.
Víða á landinu virðist sjoppan vera miðstöð félagslífsins hjá yngri kynslóðinni. Við verðum að koma á skólamáltíðum og sjá um að börn og unglingar eigi kost á heppilegri næringu í félagsheimilum og íþróttahúsum í stað núverandi sjoppufæðis. Víðast hvar er t.d. erfitt að fá vatn að drekka í þessum stöðum, en sætir drykkir eru alls staðar til sölu.
Varla er opnaður svo nýr skóli að ekki sé sett upp sjoppa í næsta nágrenni, jafnvel í bráðabirgðahúsnæði á skólalóðinni ef ekki er annað hús til staðar fyrir. Sama er að segja um sundstaði og íþróttahús.
Sykur-, sælgætis- og gosdrykkjaneysla er mikil hérlendis og á hún stóran þátt í tannskemmdum Íslendinga. Íslendingar hafa í gegnum árin lagt megináherslu á viðgerðarþjónustu í heilbrigðismálum. Við notum stærsta hluta af kostnaði við tannlækningaþjónustu í viðgerðir. Danir nota t.d. um 40% af kostnaði við tannlækningaþjónustuna í viðgerðir og um 60% til forvarna. Það tekst vonandi að snúa þessu við eftir að ríkisstjórnin hefur ákveðið að leggja aukna áherslu á forvarnir undir forustu Guðmundar Bjarnasonar heilbrigðis- og tryggingarmálaráðherra.
Fylgiskjal III.
Heilbrigðisráðuneytið 1989:
MANNELDIS- OG NEYSLUSTEFNA
Hvers vegna manneldisstefna?
Reynslan hefur sýnt að ríkulegt framboð matvöru er ekki trygging fyrir æskilegri samsetningu fæðunnar. Þetta hefur komið glöggt í ljós meðal þjóða Vesturlanda, þar sem ýmiss konar sjúkdómar er tengjast fæðuvali aukast stöðugt þrátt fyrir ríkulegt framboð matvæla. Því er talin ástæða fyrir stjórnvöld að fylgjast með neyslunni og beina henni, ef ástæða er til, í heppilegri farveg með fræðslu og kynningu og beitingu stjórnvaldsaðgerða sem til þess eru fallnar.
Ekki er ætlunin að framfylgja neyslustefnunni með boðum og bönnum heldur jákvæðri fræðslu og upplýsingum fyrir almenning og góðri samvinnu við þá sem matvæli framleiða og einnig þá sem flytja matvæli til landsins.
Fyrirhugaðar aðgerðir.
Heilbrigðisráðuneytið stefnir að eftirfarandi aðgerðum til að bæta fæðuval og neysluvenjur Íslendinga:
a. Að innlend matvælaframleiðsla falli að settum manneldismarkmiðum. Sérstaka áherslu skal leggja á að draga úr sykur- og fituinnihaldi matvara og viðhalda jákvæðum þáttum íslenskrar matarhefðar. Við innflutning matvara skal gætt sömu meginmarkmiða um sykur- og fituinnihald.
b. Að tekið sé mið af settum manneldismarkmiðum við ákvörðun tolla og skatta og hvers konar annarra opinberra aðgerða, sem hafa áhrif á verðlag matvæla, svo sem við ákvörðun niðurgreiðslna.
c. Að auka fræðslu í matreiðslu og almennt um manneldis- og neyslumál í grunnskólum og framhaldsskólum landsins.
d. Að efla nám í matvælaiðn, efla heimilisfræðikennslu og nám fyrir starfsmenn og stjórnendur mötuneyta, veitinga- og skyndibitastaða.
e. Að nemendur í grunn- og framhaldsskólum eigi kost á að borða í skólunum.
f. Að auka almenna fræðslu og kynningu um tengsl mataræðis og heilsu og hvers konar önnur næringarfræðileg efni.
g. Að áhersla sé lögð á almenna fræðslu um tengsl heilsufars og líkamlegrar hreyfingar.
h. Að haft sé strangt eftirlit með matvælum með tilliti til smithættu, aukefna og aðskotaefna sem hættuleg geta verið heilsu manna.
i. Að heilbrigðisráðherra láti gera heildarúttekt árið 1990 á fæðuvenjum þjóðarinnar. Þar komi fram m.a. hlutdeild einstakra matvara í daglegri fæðu fólks og magn einstakra næringarefna. Skýrsla um niðurstöður könnunarinnar skal lögð fyrir Alþingi þegar þær liggja fyrir. Niðurstöður neyslukönnunarinnar skulu lagðar til grundvallar aðgerðum í manneldismálum liðum a–h. Á árunum 1990–2000 skal gera smærri neysluathuganir í því skyni að fylgjast með þróun neyslunnar. Skulu niðurstöður slíkra athugana lagðar fyrir Alþingi. Í fyrsta sinn eigi síðar en árið 1996.
j. Að metin verði hlutdeild innlendrar matvælaframleiðslu í fæðu þjóðarinnar á grundvelli neyslukönnunarinnar. Niðurstöður þeirrar könnunar skulu lagðar til grundvallar við gerð áætlunar um æskilega og nauðsynlega hlutdeild innlendrar framleiðslu í heildarnæringarþörf þjóðarinnar. Sé þar tekið tillit til almennra hagkvæmnisjónarmiða og nýtingar innlendra auðlinda. Einnig sé tekið tillit til mataröryggis þjóðarinnar, ef aðflutningar teppast eða nauðsynleg öflun matvæla erlendis frá er hindruð með öðrum hætti.
k. Að efldar verði rannsóknir á sviði næringar og heilsu svo og innlendar matvælarannsóknir.
l. Að endurskoðuð sé stefnumótun í manneldis- og neyslumálum með hliðsjón af nýrri þekkingu á hverjum tíma, ekki sjaldnar en einu sinni á áratug.
Manneldismarkmiðin.
Við mótun manneldisstefnunnar eru manneldismarkmið Manneldisráðs Íslands lögð til grundvallar.
Einstakar greinar markmiðanna eru eftirfarandi:
1. Orkuefni.
Heildarneysla orkuefna sé miðuð við að viðhalda eðlilegri líkamsþyngd.
Á síðari tímum hefur orðið sú breyting á lifnaðarháttum þorra manna að mikil líkamleg áreynsla við vinnu er úr sögunni. Því þarf að draga úr orkumagni fæðisins í samræmi við það. Samt sem áður þarf að fást í daglegu fæði jafnmikið af steinefnum og flestum vítamínum eins og áður, ásamt fæðutrefjum sem kyrrsetumenn mega síst án vera. Því er ráðlegt að skerða hlut orkuauðugra og bætiefnasnauðra fæðutegunda, svo sem sætra og feitra matvæla.
Kostir þess að orkuefni fæðunnar gefi einungis næga orku til viðhalds störfum líffæranna og orkukræfra athafna eru einkum að með því er komið í veg fyrir ofeldi og spornað við þeim kvillum sem því fylgja.
2. Kolvetni.
Hæfilegt er að úr kolvetnum fáist 50–60% af orkunni, einkum úr kornmat, grænmeti og ávöxtum, þar af ekki yfir 10% úr sykri.
Samkvæmt könnun Manneldisráðs 1979–1980 gaf sykur um 19% að meðaltali af heildarorku fæðisins. Draga þarf stórlega úr sykurneyslu en auka að miklum mun hlut sterkju sem fæst úr kornmat, baunum, kartöflum og í minna mæli úr öðrum garðávöxtum.
Kostir þess að auka hlut sterkjuauðugra fæðutegunda eru einkum að þeim fylgja mikilvæg bætiefni og fæðutrefjar. Kím og híðishlutar korntegundanna geyma megnið af vítamínum, steinefnum og trefjaefnum sem þar er að finna og auk þess fituefni af bestu gerð. Því þarf að leggja áherslu á að velja korntegundir sem ekki hafa verið sviptar þessum bætiefnum, svo sem haframjöl, rúgmjöl og heilhveiti.
Kostir þess að skerða sykurneyslu eru einkum að með því dregur úr hættu á tannskemmdum, einnig fá þá fjölþættari fæðutegundir stærri hlutdeild í heildarneyslunni.
3. Fita.
Fituneysla fari ekki yfir 35% af heildarorkunni og fitan verði mýkri.
Til þess að ná þessu marki má draga úr neyslu kjötfitu, mjólkurfitu og harðrar jurtafeiti en nota þess í stað mjúka fitu. Gott er að auka neyslu á fiski, fiskolíum og annarri mjúkri fitu. Mælt er með að skerða fituneyslu að mun. Samkvæmt könnun Manneldisráðs 1979–1980 gaf fita að meðaltali 41% af orkumagni fæðisins, en æskilegt hlutfall er innan við 35%. Því markmiði skal ná með því að draga úr notkun feitra kjöt- og mjólkurafurða, spara feitt viðbit og takmarka fitunotkun við daglega matreiðslu. Jafnframt er ráðlagt að auka fiskolíur í fæði og nota jurtaolíur í matreiðslu, fitu sem storknar ekki í kæliskáp, en takmarka hlut harðrar fitu svo sem kostur er. Kostir þess að minnka heildarmagn fitu í fæði eru einkum að með því er mögulegt að auka hlut fæðutegunda sem auðugri eru af bætiefnum en gefa minni orku, færri kaloríur. Fæðið verður með því fullkomnara og leiðir síður til ofeldis.
Kostir þess að nota mjúka fitu en sniðganga harða felast í mismunandi eiginleikum fitutegunda. Mjúk fita, rík af fjölómettuðum fitusýrum lækkar fremur kólesteról í blóði en í harðri fitu eru fitusýrur sem hafa gagnstæð áhrif, auka kólesteról í blóði og þar með hættu á hjarta- og æðasjúkdómum.
4. Hvíta (protein).
Hæfilegt er að hvíta veiti að minnsta kosti 10% orkunnar.
Nægileg og fullkomin hvíta fæst úr innlendum fæðutegundum: fiski, kjöti, mjólkurmat og eggjum. Í neyslukönnun Manneldisráðs 1979–1980 fengust að meðaltali 16% af orku fæðisins úr hvítu. Þess ber að gæta að í fæðutegundum auðugum af hvítu eru mörg önnur efni, líkamanum nauðsynleg, svo sem járn í kjöti, kalk í mjólkurmat og hollar fitusýrur í fiski. Því má ekki ganga of langt í að takmarka neyslu þessara fæðutegunda.
5. Matarsalt.
Talið er að mikil saltneysla geti átt þátt í að auka háþrýsting.
Of hár blóðþrýstingur er einn af áhættuþáttum hjarta- og æðasjúkdóma. Því er mælt með að takmarka saltneyslu með því að sneiða hjá saltmeti og takmarka salt í matreiðslu og við borðhald að því marki að dagsneysla sé undir 8 grömmum.
6. D-vítamín.
Samkvæmt neyslukönnun Manneldisráðs 1979–1980 var að meðaltali of lítið af D-vítamíni í daglegu fæði landsmanna, miðað við ráðlagða dagskammta. Ráðlagt er að bæta úr því með lýsisneyslu. Í einni teskeið (5 ml) af þorskalýsi fæst dagskammtur af D-vítamíni og að auki fjölómettuð fita.
D-vítamín er nauðsynlegt til þess að kalkið í fæðunni skili sér inn í efnaskipti líkamans (frásogist) og nýtist við myndun og viðhald beinvefs, þar á meðal tanna. Fleiri efnaferlar eru háðir D-vítamíni og kalkbúskap líkamans. Af ufsalýsi þarf aðeins hálfa teskeið til þess að fá dagskammt af D-vítamíni, en sé það notað skerðast fiskolíurnar að sama skapi. Í lýsispillum er D-vítamín en lítið af fiskolíum.
Þess ber að gæta að óhófsneysla A- og D-vítamína getur verið skaðleg, t.d. ef margra vítamínauðugra meðala er neytt samtímis að staðaldri.
7. Fæðuval.
Stefnt skal að sem fjölbreyttustu fæðuvali úr eftirfarandi fæðuflokkum í þeim hlutföllum orkuefna sem að framan greinir:
— Kornmat.
— Mjólkurmat.
— Grænmeti og ávöxtum.
— Kjöti, fiski og eggjum.
Engin ein fæðutegund hversu holl sem hún er talin inniheldur í hæfilegum hlutföllum öll þau næringarefni sem nauðsynleg eru. Því getur einhæft fæði aukið líkur á að einhver næringarefni skorti.
Með fjölþættu vali fæðutegunda er unnt að gera fæðisáætlanir sem uppfylla kröfur um alhliða næringu.