Ferill 183. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1989. – 1059 ár frá stofnun Alþingis.
112. löggjafarþing. – 183 . mál.
Ed.
206. Frumvarp til laga
um breytingu á áfengislögum, nr. 82/1969, með síðari breytingum.
Flm.: Jón Helgason, Guðmundur H. Garðarsson, Skúli Alexandersson,
Karvel Pálmason.
1. gr.
Við 9. gr. laganna, sbr. 4. gr. laga nr. 38/1989, bætist ný málsgrein svohljóðandi:Afhending eða veitingar áfengis á vegum ríkisins eða ríkisstofnana eru óheimilar hérlendis.
2. gr.
Lög þessi öðlast gildi 1. júní 1990.Greinargerð.
Með þessu frumvarpi um breytingu á áfengislögum er kveðið á um það að óheimilt verði að afhenda eða veita ókeypis áfengi á vegum ríkisins eða ríkisstofnana. Þrátt fyrir það bannar frumvarpið ekki áfengisneyslu í opinberum veislum eða móttökum því að menn geta keypt áfengi ef veislan eða móttakan fer fram á veitingahúsi eða í sölum þar sem leyft er að selja áfengi.
Það þarf ekki að rökstyðja þá staðreynd að aukin áfengisneysla veldur sívaxandi tjóni svo augljósar eru þær hörmulegu staðreyndir sem blasa við í þjóðfélaginu. Það á ekki hvað síst við um það mikla heilbrigðisvandamál sem af henni hlýst. Það var af þeim sökum sem Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin samþykkti áskorun til aðildarþjóðanna að setja sér það markmið að draga úr áfengisneyslu um 25% á næsta áratug, fram til ársins 2000. Íslendingar hafa fallist á að verða við þessari áskorun, en þrátt fyrir það hefur ekki verið mörkuð nein áfengismálastefna til þess að ná þessu markmiði. Þvert á móti hefur það síðan gerst að Alþingi samþykkti að heimila á ný sölu á sterku öli, en sú samþykkt gekk í berhögg við allar tillögur Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar. Hvarvetna hefur reynslan orðið sú að aukin fjölbreytni í framboði áfengra drykkja hefur aukið neysluna. Sú hefur raunin líka orðið á hér með mikilli aukningu heildaráfengisneyslunnar og þeim afleiðingum sem strax komu í ljós þ.e. vaxandi ölvunarakstur og aukið álag á meðferðarstofnunum fyrir áfengissjúklinga. Þrátt fyrir mikla uppbyggingu á slíkum meðferðarstofnunum síðasta áratuginn anna þessar stofnanir ekki því hlutverki að taka á móti öllum sem þurfa þess með og auðvitað anna þær því alls ekki með þeim samdrætti sem nú er talinn óhjákvæmilegur í rekstri sjúkrastofnana. Einnig má benda á að vandinn verður að sjálfsögðu ekki leystur með meðferðarstofnunum enda þótt þær séu nauðsynlegar þegar skaðinn er orðinn.
En auk þeirra afleiðinga áfengisneyslunnar, sem öllum hafa verið kunnar, hefur nú verið sannað að áfengisneysla þungaðra kvenna, jafnvel í litlum mæli, geti haft ófyrirsjáanlegar afleiðingar fyrir andlegan og líkamlegan þroska ófæddra barna. Fyrirskipað hefur verið í Bandaríkjunum að setja viðvörun á áfengisumbúðir um þessa geigvænlegu vá. Óhætt er að fullyrða að það yrði talið glæpsamlegt athæfi að byrla fólki slíkt ef um annað væri að ræða en áfengi. Því virðist það algjör fjarstæða að ríkisvaldið standi að slíku.
Áfengisneysla er ekki aðeins heilbrigðisvandamál heldur einnig félagslegt vandamál og hún brýtur niður fjölmargar fjölskyldur. Er það hvorki bundið við einstakar stéttir né starfshópa því að flestir virðast geta fallið fyrir áfenginu.
Ákvörðun Alþingis um að ríkið hætti vínveitingum væri skref í þá átt að móta áfengismálastefnu sem yrði til að minnka áfengisneyslu og draga úr því hversu mjög áfengi er otað að fólki í þjóðfélagi okkar.
Alþingismenn geta ekki lengur horft tómlátir og aðgerðarlausir á hvernig áfengisneyslan fer með líf, heilsu og hamingju mikils hluta þjóðarinnar. Það skref, sem hér er lagt til að stigið verði, kostar engin útgjöld heldur þvert á móti stuðlar að því að spara ómældar upphæðir fyrir einstaklingana og þjóðarbúið og vernda heill og hamingju einstaklinganna.