Ferill 186. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1989. – 1059 ár frá stofnun Alþingis.
112. löggjafarþing. – 186 . mál.
Nd.
209. Frumvarp til laga
um breytingu á lögum nr. 73/1980, um tekjustofna sveitarfélaga, með síðari breytingum.
Flm.: Friðrik Sophusson, Ásgeir Hannes Eiríksson,
Ingi Björn Albertsson, Sigríður Lillý Baldursdóttir.
1. gr.
2. mgr. 25. gr. laganna, sbr. 2. gr. laga nr. 38/1987, orðast svo:Útsvar af þeim tekjum barna, sem um ræðir í 65. gr. laga nr. 75/1981, skal eigi vera hærra en 7,5%, sbr. 1. mgr., af útsvarsstofni af tekjum umfram 250.000 kr., hækkuðum í samræmi við skattvísitölu skv. 122. gr. laga nr. 75/1981.
2. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi og koma til framkvæmda við álagningu útsvars árið 1989.Greinargerð.
Frumvarp þetta á samleið með frumvarpi á þskj. 208 um breytingu á lögum um tekjuskatt og eignarskatt.
Um rökstuðning vísast til greinargerðar þess frumvarps.
Fylgiskjal.
Drög að breytingum á lögum um tekjustofna sveitarfélaga.
25. gr.
Útsvar skal vera ákveðinn hundraðshluti af tekjum hvers almanaksárs, en má þó eigi vera hærra en 7,5% af útsvarsstofni og skal sami hundraðshluti lagður á tekjur allra manna í hverju sveitarfélagi.Útsvar af þeim tekjum barna, sem um ræðir í 65. gr. laga nr. 75/1981, skal eigi vera hærra en 7,5%, sbr. 1. mgr., af útsvarsstofni af tekjum umfram 250.000 kr., hækkuðum í samræmi við skattvísitölu skv. 122. gr. laga nr. 75/1981.